Fréttablaðið - 11.12.2010, Síða 8
11. desember 2010 LAUGARDAGUR
■ Útlán VBS Fjárfestingarbanka
námu tæpum 26,4 milljörðum
króna í lok árs 2008. Þar af voru
lánveitingar til byggingarstarfsemi
eignarhaldsfélaga, til einstaklinga
og annars 12,6 milljarðar króna.
Áhættuskuldbinding bankans lá að
mestu í lánum til kaupa á lóðum og
byggingar húsa við Selfoss, í Reykja-
nesbæ og Mosfellsbæ; áhættu-
samra verkefna sem sum hver urðu
að engu í efnahagshruninu.
■ Bankinn var annar tveggja sem
tók þátt í svokölluðum ástarbréfa-
viðskiptunum við Seðlabankann,
sem gekk út á að afla viðskipta-
bönkunum þremur lausafé þegar
aðrar dyr voru þeim lokaðar. Þegar
stóru bankarnir féllu í október fyrir
tveimur árum stóð VBS uppi með
milljarðaskuld við Seðlabankann.
Ríkissjóður lánaði honum því 26
milljarða króna til sjö ára í mars í
fyrra til að geta staðið við skuld-
bindingar sínar. Fyrsta vaxtagreiðsla
ríkislánsins var í byrjun þessa
árs og gat bankinn ekki staðið í
skilum. Seðlabankinn er langstærsti
kröfuhafi VBS en hann lýsti kröfu
upp á 30 milljarða króna í búið. Það
jafngildir rúmlega 60 prósentum
allra krafna.
■ Talið er að VBS hafi með réttu
verið kominn í vandræði löngu fyrr,
jafnvel undir 8,0 prósenta lágmarks-
eiginfjárkröfu sem Fjármálaeftirlitið
setur fjármálafyrirtækjum snemma
árs árið 2008. Í mars á þessu ári
greip svo Fjármálaeftirlitið inn í
rekstur bankans og skipaði nýja
stjórn yfir hann.
■ VBS Fjárfestingarbanki var tekinn
til slitameðferðar í mars og rann
kröfulýsingarfrestur út um miðjan
nóvember.
Fall VBS í hnotskurn
VIÐSKIPTI Stjórnendur VBS Fjár-
festingarbanka lánuðu háar fjár-
hæðir til áhættusamra fasteigna-
verkefna fyrir hrun sem ekki
stóðu undir lánveitingum. Í ein-
hverjum tilvikum lánaði bankinn
gegn veði í lóðum sem til stóð að
byggja á.
„Þess eru dæmi að gefin hafi
verið út skuldabréf á byggingar
húsa á lóðum án þess að byggt
hafi verið á lóðinni,“ segir Hró-
bjartur Jónatansson, lögmaður
sem sæti á í slitastjórn VBS.
„Þarna voru aðilar sem VBS
tók að sér að fjármagna sem
settu lóðir að veði sem ekki var
byrjað að byggja hús á. Lítil verð-
mæti voru á bak við þau bréf og
ljóst að ekki hafa verið fullnægj-
andi veð í ýmsum tilvikum fyrir
endur greiðslu. Það er ekki mikið
til staðar ef ekki stendur hús á
lóðinni,“ bætir hann við.
Hróbjartur segir erfitt að sjá
forsendur sumra fasteignaverk-
efnanna í dag. Ljóst sé að verk-
efnin standi ekki undir lánveit-
ingum VBS. „Veðin eru talin það
léleg að þau skila ekki miklu til
félagsins,“ segir hann.
Fyrsti kröfuhafafundur VBS
var haldinn í fyrradag. Þar kom
fram að lýstar kröfur nema 48
milljörðum króna. Þar af eru
launakröfur upp á tæpar hundrað
milljónir króna.
Aðrar kröfur eru víkjandi
skuldabréf og fleira sem ekki
þótti ástæða til að taka afstöðu
til þar sem ekkert mun fást upp
í þær.
Fram kom á kröfuhafafundin-
um að búið væri að færa ofmetið
eignasafn bankans niður úr 52
milljörðum króna í tíu milljarða,
eða um rúm áttatíu prósent. Af
milljörðunum tíu eru níu millj-
arða innstæður í Seðlabankanum
og gamla Kaupþingi. Þær eru
veðsettar upp í rjáfur og því
aðeins einn milljarður í bók-
færðu eiginfé til skiptanna fyrir
kröfuhafa.
„Það er okkar mat að eignir eru
ekki nægar til að mæta skuldum,“
segir Hróbjartur.
jonab@frettabladid.is
Þrotabú VBS á einn
milljarð upp í kröfur
Heildarkröfur í bú VBS Fjárfestingarbanka nema 48 milljörðum króna. Léleg
veð eru á bak við lánveitingar til fasteignaverkefna. Einn óveðsettur milljarður
er til í sjóði. Erfitt að sjá forsendur lánveitinga, segir fulltrúi í slitastjórninni.
Helstu hluthafar VBS fyrir hrun*
Nafn Eignarhlutur
Sparisjóðurinn í Keflavík 13%
IceCapital / Sund 12%
Byr sparisjóður 11%
Sparisjóður Mýrasýslu 10%
* Samkvæmt ársreikningi VBS 2008
HRÓBJARTUR JÓNATANSSON Dæmi eru um að VBS hafi gefið út skuldabréf út á
byggingar húsa á lóðum án þess að byggt hafi verið á lóðinni, að sögn lögmanns
sem sæti á í slitastjórn fjárfestingarbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
vodafone.is
Meiri jól,
meiri jól,
meiri jól
Þunnur og léttur sími með bæði
hefðbundnu lyklaborði og snertiskjá.
Farsíminn er með 5 megapixla mynda-
vél, styður WiFi og honum fylgja
auðveld forrit fyrir Facebook og MSN.
Nokia X3
0 kr. útborgun
og 2.499 kr. á mán. í 12 mán.
Netið í símann, 100 MB,
fylgir með í 1 mánuð.
Staðgreitt: 29.990 kr.
Partý Alias
spilið fylgir á
meðan birgðir
endast
Glæsilegur Google sími með Android
2,2 stýrikerfi, íslensku valmyndakerfi
og snertiskjá. Farsíminn er með 3,15
megapixla myndavél og býður upp á
flýtileiðir á vefsamfélög eins og
Facebook. Með símanum fylgja
mánaðaráskrift að Tónlist.is og
platan Best of Bang Gang.
LG Optimus One
0 kr. útborgun
og 4.166 kr. á mán. í 12 mán.
Netið í símann, 100 MB,
fylgir með í 1 mánuð.
Staðgreitt: 49.990 kr.
Partý Alias
spilið fylgir á
meðan birgðir
endast
Við afborgunarverð á farsímum bætist við 250 kr. greiðslugjald á mánuði.
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl-
maður, Valur Sigurðsson, hefur
verið dæmdur í tveggja ára fang-
elsi fyrir að ráðast á fyrrverandi
unnustu sína með hnúajárni.
Maðurinn réðst á konuna í sept-
ember, sló hana með hnúajárninu
í höfuðið og ýtti við henni svo hún
féll í gólfið. Þar sem hún lá sló
hann hana ítrekað með handar-
jaðrinum, með hnefann kreppt-
an um hnúajárnið, bæði í höfuð
og líkama. Eftir þetta greip hann
um háls hennar og lyfti henni upp
að vegg. Þar þrengdi hann svo að
öndunarvegi hennar að henni
sortnaði fyrir augum. Maðurinn
sleppti þá takinu og hrinti henni
svo að hún féll niður og lenti ofan
í baðkari. Konan slasaðist mikið
og hlaut sár, bólgur og mar á
höfði og víðs vegar á líkama.
Eftir þetta ók maðurinn undir
áhrifum fíkniefna og án öku-
réttar þar til lögregla stöðvaði
hann við Rauðavatn. Í vasa hans
fannst hnúajárnið, svo og amf-
etamín í bílnum. Þá hafði hann
einnig kannabislauf í vörslum
sínum.
Maðurinn játaði sök fyrir
dómi. Hann var auk fangelsis-
dómsins dæmdur til að greiða
konunni rúmlega 770 þúsund
krónur í skaðabætur. Hann var
sviptur ökurétti ævilangt. - jss
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir stórhættulega líkamsárás og fleiri brot:
Réðst á konu með hnúajárni
SVÍÞJÓÐ Peter Mangs, 38 ára Svíi
sem er grunaður um eitt morð
og nokkrar skotárásir í Malmö
undan farið ár, er nú grunaður um
að hafa skotið sextán ára pilt fyrir
fjórum árum. Þessi árás bætist við
langan lista af ódæðisverkum sem
Mangs er grunaður um að hafa
framið, þar á meðal tvö morð árið
2003.
Í frétt sænska dagblaðsins Syd-
svenskan kemur fram að pilturinn
hafi fundist í blóði sínu í Kroks-
bäck-hverfi Malmö árið 2006.
Hafði hann verið skotinn í höfuðið
með lítilli skammbyssu af árasar-
manni sem hafði falið sig í runn-
um við fáfarna götu.
Samkvæmt Börje Sjöholm, yfir-
manni hjá rannsóknarlögreglunni
í Malmö, er Mangs nú grunaður
um tólf skotárásir fyrir árið 2009,
eða áður en glæpaaldan hófst sem
leiddi til handtöku hans. Þegar
allt er talið eru þrjú morð og átján
skotárásir til rannsóknar með til-
liti til þess að Mangs hafi framið
glæpina.
Eins og komið hefur fram eru
árásirnar í öllum tilvikum, nema
einu, gegn fólki af erlendum upp-
runa. Þá var ungur Svíi skotinn í
bíl sínum. Farþegi í bílnum var af
erlendum uppruna. - shá
Enn bætist við langan glæpalista Peter Mangs í Malmö:
Grunaður um enn eitt ódæðið
PETER MANGS Mangs hefur verið í
gæsluvarðhaldi um nokkurra vikna
skeið, en neitar sök staðfastlega.
NORDICPHOTOS/AFP