Fréttablaðið - 11.12.2010, Page 24

Fréttablaðið - 11.12.2010, Page 24
24 11. desember 2010 LAUGARDAGUR Lúxusþjónusta Besta flokksins Varaformaður velferðarráðs, Ágúst Már Garðarsson, birti grein hér í blaðinu þann 8. desem- ber í þeim tilgangi að leiðrétta rangfærslur og hártoganir sem hann segir að hafi verið settar fram. Hann telur brýnt að gerð- ur sé greinarmunur á lögbund- inni þjónustu og annarri, enda geti gjaldheimta fyrir lögbundna þjónustu virkað sem óbeinn skatt- ur. Með þessu gefur Ágúst sér að öll sú þjónusta sem ekki er lög- bundin sé ekki nauðsynleg eins og sést ágætlega í málflutningi hans. Skilgreiningar á grunnþjónustu Í greininni leggur Ágúst gjald- skrárhækkanir vegna sundferða og heimsókna á menningarstofn- anir að jöfnu við gjaldskrár- hækkanir vegna skólamáltíða og frístundaheimila og gengur svo langt að fullyrða að það að telja þetta til grunnþjónustu sé ámóta og að taka verð á Range Rover inn í vísitöluviðmið Seðlabank- ans. Skólamáltíðir eru sumsé lúxus á borð við Range Rover. Ég kannast ekki við að nokkur borgarfulltrúi hafi litið á gjald- skrár sundstaða eða menningar- stofnana sem jaðarskatta enda væri það ansi langsótt. Hitt er aftur á móti augljóst, að skóla- máltíðir og frístundaheimili hafa um langt skeið talist til mikil- vægrar grunnþjónustu borgar- innar, jafnvel þótt löggjafinn hafi enn ekki viðurkennt mikil- vægið. Raunverulegt val Þegar kemur að skilgreiningu á grunnþjónustu verður að meta hversu raunverulegt valið er sem borgarbúar standa frammi fyrir. Ætli það séu margir foreldrar sem velta því fyrir sér hvort börnin þeirra eigi að vera á frí- stundaheimilum? Um hvað snýst það val? Foreldrar hafa í fæstum tilfellum raunverulega möguleika á að minnka við sig vinnu til að taka á móti börnum sínum upp úr kl. 14 á daginn, enn síður ef þeir eru einstæðir eða á lágum laun- um. Þá gæti verið valkostur að senda 6 ára gamla barnið heim úr skólanum með lykil og láta það sjá um sig sjálft þar til vinnudegi lýkur. Það er varla valkostur sem margir foreldrar telja skynsam- legan. Foreldrar í sam félagi sam- tímans þurfa langflestir á þess- ari þjónustu að halda til að geta framfleytt fjölskyldunni. Gjald- skrárhækkanir á frístundaheimil- um eru því ekkert annað en jaðar- skattar á foreldra barna í 1.-4. bekk sem koma til með að bitna verst á þeim sem minnst eiga valið – en þetta mætti koma í veg fyrir ef skattkerfið væri nýtt sem skyldi. Að sama skapi eru óskaplega fáir foreldrar sem telja það betra fyrir börn sín að hafa nesti með að heiman í stað þess að borða heitan mat í skólamötuneytunum. Þessu virðist Ágúst átta sig á, sem og þeirri staðreynd að skólamáltíðir séu velferðarmál og þær skipti sér- staklega miklu máli nú þegar fólk býr í auknum mæli við atvinnu- leysi og erfiðar fjárhags aðstæður. Engu að síður telur hann eðlilegt að hækka gjaldskrárnar flatt í stað þess að fólk greiði í sameigin- legan sjóð eftir getu. Nýja aflið spreytir sig Það er einkar athyglisvert að fylgjast með störfum og rök- semdafærslu nýja stjórnmála- aflsins sem hét breytingum og umbótum og því besta fyrir alla. Sér í lagi vekur það furðu að varaformaður velferðarráðs skuli telja skólamáltíðir og frístunda- heimili vera sambærilegan lúxus og Range Rover jeppa – og ekki síður að fulltrúi þessa nýja afls skuli hengja sig í lagatæknileg atriði við skilgreiningu á grunn- þjónustu í stað þess að vega og meta þörfina fyrir þjónustuna og hver besta leiðin sé til að koma til móts við hana. Borgarmál Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi VG Það er einkar athyglisvert að fylgjast með störfum og röksemdafærslu nýja stjórnmálaaflsins sem hét breytingum og umbótum og því besta fyrir alla Forsetinn og fjárfesting Ólafur Ragnar Grímsson hefur undanfarið ár verið á við margar ríkisstjórnir í kynn- ingu á málstað Íslands erlendis. Ólafur Ragnar lét nýverið hafa eftir sér í viðtali við The Banker að Íslendingar kæmust af án erlendrar fjárfestingar. Nokkrir spekingar sem einhverra hluta vegna hafa látið kynningarstarf forsetans fara í taugarnar á sér sáu sér leik á borði. Þarna virt- ist komið kjörið tækifæri til að sýna að forsetinn væri heim- óttarlegur og óraunsær. Komið var nýtt tilefni til að koma með yfirlætislegar yfirlýsingar um að við getum nú ekki lokað land- inu og farið aftur í torfkofana og allt þetta dæmalausa frasa- rugl. Hver var boðskapurinn? Í fyrsta lagi voru skilaboðin ekki þau að erlend fjárfesting væri alltaf slæm heldur miklu frekar að Íslendingar gætu bjargað sér sjálfir ef svo bæri undir. Þetta eru æskileg skila- boð vilji menn auka á viðskipti við útlönd enda ekki eftirsótt að eiga viðskipti við þá sem eru á vonarvöl (nema af hálfu þeirra sem vilja nýta sér neyðina). En málið minnir einnig á nokkuð sem oft vill gleymast í umræðu um erlenda fjárfestingu, nefni- lega það að hagfræðilega er erlend fjárfesting sama eðlis og erlend lántaka. Meira út en inn Þegar útlendingar kaupa íslensk hlutabréf eða ráðast sjálfir í framkvæmdir hér á landi er ætlunin sú að þeir fái á endan- um meira til baka en þeir lögðu fram, þ.e. taki á endanum hærri upphæð út úr hagkerfinu en þeir settu inn í það. Helst tölu- vert hærri upphæð því annars hefði viðkomandi einfaldlega lagt peningana inn á öruggan vaxtareikning. Fólki hættir til að ímynda sér að erlend fjár- festing valdi hreinu innstreymi fjármagns í hagkerfið en sú er ekki raunin. Þó geta fylgt kostir Hins vegar er erlend fjárfesting mikilvæg í bland vegna þess að henni fylgir oft sérfræðiþekk- ing og bolmagn til að ráðast í stórar framkvæmdir. Auk þess er stundum skortur á fólki eða fyrirtækjum sem eru til í að leggja fram áhættufé og æski- legt getur verið að deila áhættu með útlendingum. Þegar vel gengur skapast störf í land- inu og ríkið fær skatttekjur en fjárfestirinn hirðir hagnaðinn. Það væri til dæmis óskandi að álverin væru í eigu Íslendinga þegar þau skila miklum hagn- aði sem streymir út úr land- inu til erlendra eigenda. Spurn- ingin er hins vegar sú hvort Íslendingar hafi verið fjár- hagslega og tæknilega í stakk búnir til að reisa eigin álver og bera alla áhættuna. Það er hins vegar ekki að ástæðulausu sem við takmörkum erlenda fjár- festingu í grundvallarauðlind- um landsins. Þjóðir sem missa yfirráð yfir auðlindum og fram- leiðsluþáttum sínum til erlendra fjárfesta verða af stórum hluta verðmætasköpunarinnar og verða öðrum háðar. Hvers erum við megnug nú? Þá komum við aftur að þeirri skoðun forsetans að hér sé nægt fjármagn til uppbyggingar. Það er rétt að ótrúlega mikið íslenskt fjármagn liggur aðgerðalaust á bankareikningum og ávaxtast á kostnað ríkis ins, líklega hátt í 2.000 milljarðar. Ef ríkis valdið skapar þær aðstæður að fólk sjái sér aftur hag í að fjárfesta í stað þess að láta fjármagnið liggja óhreyft má skapa mikla atvinnu og verðmæti fyrir þjóð- arbúið úr þessum peningum. Í bland væri þó æskilegt að útlendingar með sérþekkingu á ólíkum sviðum sæju sér hag í að fjárfesta hér í fjölbreyttri atvinnustarfsemi. Því miður hefur stefna stjórnvalda hins vegar verið þveröfug. Háir vextir hafa verið greiddir fyrir að halda fjármagni úr umferð, skattar hækkaðir, ýmsir öfugir hvatar innleiddir og útlending- ar fældir burt með óstöðugu stjórnarfari. Það er mikil synd því að hér voru á margan hátt að skapast kjöraðstæður fyrir fjárfestingu. Tækifærin og hætturnar Ef við snúum dæminu við getur Ísland fljótt orðið að landi tæki- færanna. Eins og forsetinn benti óbeint á verðum við þó að muna að erlend fjárfesting er ekki ókeypis peningur. Erlend fjár- festing til að skapa verðmæti er góð en innlend fjárfesting er betri (ef hún gefur sama arð). Hér er allt til reiðu. Það að ætla að skuldsetja ríkið í von um að þannig streymi inn erlent fjár- magn, eins og sumir af gagn- rýnendum forsetans virðast telja vænlegt, er hins vegar stór- hættulegt. Gegndarlaus erlend skuldsetning ríkis um leið og kerfinu er haldið gangandi með erlendri fjárfestingu er upp- skriftin að arðrændu þriðja- heimsríki. Þetta er í raun sáraeinfalt. Það á að reka ríki eins og gott bú. Það getur borgað sig að taka lán til að kaupa dráttarvél en við seljum ekki frá okkur mjólkur- kýrnar. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta um að skapa verðmæti og eyða ekki meiru en aflað er. Erlend fjárfesting Sigmundur Davíð Gunnlaugsson form. Framsóknarflokksins Erlend fjárfesting til að skapa verð- mæti er góð en innlend fjárfesting er betri (ef hún gefur sama arð). AF NETINU Umboðslaus? Það nýjasta í Staksteinum er að 80% kjósenda eigi engan fulltrúa á stjórn- lagaþingi og því sé þingið umboðslaust. Þar áður sögðu sumir að aðeins 3% kjósenda hefðu kosið Þorvald Gylfason, en af því hlaut að leiða að 97% kjósenda vildu ekkert með hann hafa. Nú liggur það hins vegar fyrir að 33% þeirra, sem kusu, settu Þorvald Gylfa- son í eitthvert af 25 sætunum á kjörseðlum sínum og er það alveg nýtt að kjörfylgi sé ekki miðað við þá sem kusu heldur alla sem voru á kjörskrá.[...] Nú bíð ég spenntur eftir Staksteinaskrifum sem sýna fram á að meirihluti íslensku þjóðarinnar hafi gefið frat í stjórnarskrána 1918 af því að meirihluti þjóðarinnar, 52%, kaus ekki í kosningunum um hana. herdubreid.is Ómar Ragnarsson GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000NB I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t . 4 7 1 0 0 8 - 0 2 8 0 . Ein gjöf sem hentar öllum E N N E M M / S ÍA / N M 4 4 18 8 Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður upp á að gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina. Gjafakortið er viðskiptavinum að kostnaðarlausu til áramóta. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.