Fréttablaðið - 11.12.2010, Page 54
54 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
F
réttablaðið leitaði til álitsgjafa
og voru þeir beðnir um að nefna
bestu og verstu bókatitlana,
með hliðsjón af því hvort þeir
hitta í mark eður ei án tillits til
gæða sjálfra verkanna.
Margir titlar voru nefndir til sögunn-
ar og fengu nokkrar bækur hvorutveggja
atkvæði fyrir besta og versta bókartitilinn.
Sem dæmi má nefna að Handritið að kvik-
mynd Arnar Featherby og Jóns Magnús-
sonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir
Jenný Alexson eftir Braga Ólafsson, sem
deildi öðru sætinu yfir bestu titlana með
Blóðhófni Gerðar Kristnýjar, þótti einn-
ig fráhrindandi og til þess fallið að vekja
plottkvíða. Þá voru ekki allir jafn hrifnir
af titlinum Hið dökka man, sögu Catalinu
eftir Jakob Bjarnar Grétarsson og Þórar-
in Þórarinsson, sem varð í fjórða sæti yfir
bestu titlana en þykir einnig vondur orða-
leikur og vafasamt að tengja forsprakka
vændishrings við kvenskörunginn Snæ-
fríði Íslandssól.
En skiptar skoðanir um slík mál eru að
sjálfsögðu engin ný tíðindi. Fréttablaðið
stóð fyrir sams konar könnun á bókatitlum
um jólin 2008 og þá þótti titill bókarinn-
ar 10 ráð til að hætta að drepa fólk og fara
að vaska upp eftir Hallgrím Helgason sá
versti. Bókin var svo gefin út í Þýskalandi
og hefur þar fengið verðlaun sem besti titill
ársins. Misjafn er mannanna smekkur, eins
og einn af téðum mönnum sagði.
Doris Deyr besti bókartitillinn
Titlar bóka eru mikilvægir og telja margir að góðir slíkir þurfi að fela ýmislegt í sér, til að mynda að vera forvitnilegir, söluhvetj-
andi og lýsa umfjöllunarefni bókanna. Fréttablaðið leitaði álits valinkunns andans fólks á bestu og verstu bókartitlum ársins.
„Skemmtilegur orðaleikur og tilvísun
í magnaða manneskju. Titillinn er
afar grípandi.“
- Freyr Eyjólfsson
„Orðaleikir í titlum eru yfirleitt kjána-
hrollvekjandi, en ekki þessi. Knappur,
eftirminnilegur, stuðlaður en samt
ekki tilgerðarlegur. Kvenmannsnafnið
er framandi fyrir íslenska skáldsögu
og maður spyr sig strax hvernig og
hvers vegna í ósköpunum Doris deyr.“
- Stígur Helgason
„Þessi titill er dramatískur á
snyrtilegan hátt. Miðað við
innihaldslýsinguna á bókinni
þá finnst mér líka tengingin við
amerísku leik- og söngkonuna
Doris Day vel við hæfi.“
- Lóa Hjálmtýsdóttir
„Svo lélegur brandari, en mjög
svo góður titill á bók, einkum
fyrst hann er ekki útskýrður.“
- Halldór Högurður
Blóðhófnir:
„Sterkur, spennandi og meitlaður
titill.“
- Halla Sverrisdóttir
„Magnaður og skotheldur titill sem
vekur upp áleitna forvitni.“
- Viðar Eggertsson
„Fallegt orð í stíl við einstaklega
fallega bókarkápu og að auki
bein vísun í verkið. En orðið sjálft
er bara eitthvað svo fallegt þó að
blóðugir hófar séu það kannski
ekki.“
- Brynhildur Björnsdóttir
„Skemmtilega háðsk
og glúrin tilvísun í
íkonískustu kvenpersónu
íslenskra bókmennta.“
- Örn Úlfar Sævarsson
„Svalur titill sem fær mig
til að langa að lesa um
miðbaugs maddömuna.“
- Dögg Hjaltalín
„Sérlega skemmtilegur
bókartitill. Merkilegt að
engum skuli hafa dottið í
hug að nota hann áður.“
- Ölvir Gíslason
„Titillinn segir það sem
segja þarf um hvers konar
texta bókin inniheldur.“
- Dögg Hjaltalín
■ BESTI TITILLINN
Doris Deyr, titillinn á fyrsta smásagnasafni Kristínar Eiríksdóttur, hittir í mark hjá álitsgjöfum
og þykir sá besti þetta árið. Rætt er við Kristínu í menningarblaði Fréttablaðsins í dag.
■ ANNAÐ - ÞRIÐJA SÆTI
Blóðhófnir, ljóðabók Gerðar Kristnýjar, og Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns
Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson, skáldsaga Braga Ólafsson-
ar, fengu jafn mörg atkvæði og eru jafnar í öðru og þriðja sæti yfir bestu bókatitlana í ár.
Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar
um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson:
„Þetta er fyrir mína parta besti
bókatitill ársins. Punktur. Það
þarf að lesa hann tvisvar eða
þrisvar í hvert sinn, og maður
man hann samt ekki á milli
herbergja. Einhvernveginn nær
hann að gera mig forvitinn um
bókina og fólkið í titlinum. En
það er eins gott að bókin sé
góð með svona góðan titil. Ann-
ars hefði hún betur bara heitið
„Handritið“.
- Pétur S. Jónsson
„Ég hef ekki lesið bókin þar sem ég
ætla að panta hana í jólagjöf en titill-
inn ber þess merki að ég muni eiga
stórkostlegt jólafrí í góðum félagsskap.
Titillinn er þurr og fyndinn eins og
flasa á öxlum miðaldra manns í fínum
jakkafötum.“
- Lóa Hjálmtýsdóttir
„Titillinn sem enginn man en allir
muna eftir að er langur. Ákveðin snilld
að koma þremur nöfnum inn í titil.
Vekur áhuga á sögunni og er í takt við
skáldskap Braga.“
- Kolbeinn Óttarsson Proppé
■ FJÓRÐA SÆTI
Hið dökka man - saga Catalinu e. Jakob
Bjarnar Grétarsson og Þórarin Þórarinsson.
■ FIMMTA SÆTI
Ég sé ekkert svona gleraugnalaus e. Óskar
Magnússon
„Er almennt frekar lítið fyrir stuðlaða
bókatitla; mér finnst „milli“ alltaf ótrúlega
hjákátlegt orð og þessi titill er einmitt það
– hjákátlegur.“
- Halla Sverrisdóttir
„Kannski er titillinn réttnefni og útrásarvík-
ingar þessa lands skjálfa á beinunum af
ótta við að lesa um sín eigin leyndarmál í
bókinni hans Óskars. En þetta er samt vont.
Klassískt dæmi um vonda stuðlun og ekki
bætir slangrið úr skák. Óskar ku hafa notið
leiðsagnar bestu manna við skrifin og gaf út
hjá stærsta forlagi landsins. Það er með ólík-
indum að á þeirri leið hafi enginn komið í
veg fyrir að þessi martröð yrði að veruleika.“
- Stígur Helgason
„Eins og titill á teiknimyndasögu eftir níu
ára ofurhetjunörd. „Hann var útsmoginn
og snar. Hann lét þá ekki komast upp með
neitt múður. Hann var....martröð millanna“.“
- Brynhildur Björnsdóttir
„Er þetta ekki örugglega saga í Andrésblaði?“
- Stefán Pálsson
■ VERSTI TITILLINN
Martröð millanna, titill fyrstu skáldsögu Óskars Hrafns Þorvaldssonar, á ekki upp á pallborðið
hjá álitsgjöfum blaðsins, sem telja hann þann versta í ár.
„Það er bjánalegt að sniðganga hið
ágæta orð kynbomba, bara til þess að
ná fram einhversskonar vandræðalegri
stuðlun orðanna sexbomba og sex-
tugsaldri. Svo er þessi titill full hreinn
og beinn, ekki nógu skáldlegur eða
skemmtilegur.“
- Vigdís Þormóðsdóttir
„Djarfur - en skýtur hátt yfir öll
mörk.“
- Örn Úlfar Sævarsson
„Hvað er hægt að segja?“
- Kolbeinn Óttarsson Proppé
■ ANNAÐ SÆTI
Loksins sexbomba á sextugsaldri e. Helgu Thorberg
Biðukollur út um allt:
„Maður hefur á tilfinningunni að
höfundar bíði kollur út um allt. Maður
fær sömu ónotatilfinningu og maður
fær eftir að hafa innbyrt of mikið
majónes í fermingarveislu.“
- Halldór Högurður
„Hvað get ég sagt? Barnalegt?
Asnalegt? Vekur mér slæmar
kenndir sem erfitt er að lýsa.“
- Ágúst Borgþór Sverrisson
■ ÞRIÐJA - FJÓRÐA SÆTI
Biðukollur út um allt eftir Kleópötru Kristbjörgu og Mörg eru ljónsins eyru eftir Þórunni Erlu
Valdimarsdóttur eru jafnar í þriðja sæti yfir verstu bókatitlana.
Álitsgjafar: Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur | Brynhildur Björnsdóttir, dagskrárgerðarmaður | Dögg Hjaltalín, verslunarstjóri Máls og Menningar við Laugaveg | Freyr Eyjólfsson, útvarpsmaður | Halla Sverrisdóttir, þýðandi |
Halldór E. Högurður | Kolbeinn Óttarsson Proppé, kynningarfulltrúi BSRB | Lóa Hjálmtýsdóttir, listamaður | Pétur S. Jónsson, tónlistarframleiðandi | Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur | Stefán Pálsson, sagnfræðingur |
Stígur Helgason á Fréttablaðinu | Viðar Eggertsson, leikhússtjóri | Vigdís Þormóðsdóttir, fjölmiðlafræðingur | Ölvir Gíslason, þýðandi | Örn Úlfar Sævarsson, íslenskufræðingur
Mörg eru ljónsins eyru:
„Nei, eyrun eru tvö. Nema að um
ræði stökkbreytt eða vanskapað
ljón. Skrítinn rugltitill. Kannski þarf
maður að lesa bókina til þess að
þetta skýrist.“
- Vigdís Þormóðsdóttir
„Hvað getur eitt ljón haft mörg
eyru? Þessi titill kallar ósjálfrátt upp
í hugann mynd af ljóni með ótal
eyru og sú mynd er frekar kjánaleg.“
- Halla Sverrisdóttir
„Ævisögu óperusöngvara valinn titill
sem hæfir 40 ára gömlum ástarróm-
an. Þarf að segja meira? Passar þó
kannski við melódramatík óperunnar
en mér finnst þessi titill umfram allt
lýsa skorti á frumleika.“
- Ágúst Borgþór Sverrisson
„Fyrir utan að vera öllum
áhugamönnum um Rauðar
ástarsögur að góðu kunnur
hefur þessi titill þegar verið
notaður á ævisögu óperu-
söngvara.“
- Ölvir Gíslason
■ FIMMTA SÆTI
Á valdi örlaganna e. Þórunni Sigurðardóttur
(um Kristján Jóhannsson óperusöngvara).