Fréttablaðið - 11.12.2010, Side 110
82 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 11. desember
➜ Tónleikar
16.00 Föruneyti G. H. verður með
tónleika í Miðgarði í Garði, á Reykja-
nesi, í dag. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og
er aðgangseyrir 1.500 krónur.
22.00 Hljómsveitin Mogadon verður
með tónleika á Gallery - Bar 46, að
Hverfisgötu 46 í kvöld. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 22, 500 króna aðgangseyrir.
22.00 Í kvöld verða hljómsveitirnar
Berndsen og Valdimar með tónleika á
Sódóma Reykjavík. Húsið opnað kl. 22
og aðgangseyrir er 1.000 krónur.
22.00 Hljómsveitin Dikta verður með
tónleika á Græna hattinum, Akureyri,
í kvöld. Cliff Clavin sér um upphitun.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er forsala í
verslun Eymundsson.
➜ Opnanir
15.00 Í dag kl. 15 er opnuð sýning
Páls Guðjónssonar, Form - Fegurð -
Flæði, í Listasal Mosfellsbæjar. Sýning-
in stendur til 3. janúar. Allir velkomnir
og aðgangur ókeypis.
16.00 Gísli Hrafn, Einar og Jón opna
samsýningu í Gallerí Tukt, Hinu hús-
inu, að Pósthússtræti 3-5 í dag. Sýn-
ingin er opin frá 16-18 í dag og eru allir
velkomnir.
➜ Síðustu Forvöð
14.00 Leiðsögn um sýningu Guð-
mundar Sigurðssonar í dag kl. 14 í
Náttúrufræðistofu Kópavogs. Síðasta
sýningarhelgi. Ókeypis aðgangur.
Um helgina eru lokadagar ljósmynda
og sölusýningarinnar flickr-iceland
hópsins. Sýningin er til styrktar blátt
áfram og er í Tjarnarsal Ráðhússins.
Opið til kl. 18 alla helgina.
➜ Upplestur
13.00 Guðrún Helgadóttir les úr nýj-
ustu bók sinni Lítil saga um latan unga í
Grasagarðinum. Jólabasar verður opinn
frá 13-18 á sama stað.
➜ Opið Hús
13.00 Íslandsdeild Amnesty Inter-
national býður öllum að taka þátt og
koma á skrifstofu deildarinnar í Reykja-
vík í dag frá kl. 13-18. Skrifstofa Amne-
sty er að Þingholtsstræti 27.
➜ Bókmenntir
13.30 Í dag verður haldin árleg
bókmennatkynning Menningar- og
friðar samtakanna MFÍK í MÍR-salnum
að Hverfisgötu 105. Höfundar lesa úr
verkum sínum. Húsið opnar kl. 13.30.
Aðventustemmning og kaffisala. Allir
velkomnir.
➜ Dansleikir
13.00 Hljómsveitin Sálin spilar á Nasa
í kvöld og opnar húsið á miðnætti.
Miðar eru seldir á staðnum í forsölu frá
13-17 í dag.
➜ Tónlist
14.00 Í dag verður aðventustemmning
með tónlist og heitu súkkulaði í Hall-
grímskirkju frá 14-17. Kórsöngur og
orgeltónlist. Aðgangseyrir er 1.000 krón-
ur, frítt fyrir börn yngri en 16 ára.
➜ Markaðir
14.00 Jólaþorpið í Hafnarfirði er
opið frá 13-18 um helgina. Dagskrá í
Jólaþorpinu hefst kl. 14 og stendur til
16.30. Jólaþorpið er staðsett við Strand-
götu og Verslunarmiðstöðina Fjörð.
➜ Forsýning
20.30 Frumsýning á dansleikhús-
gjörningi fjöllistahópsins Skyr Lee Bob,
Square Wunder Globe verður í kvöld í
Gerðasafni í Kópavogi. Sýningin hefst
kl. 20.30. Miðaverð er 2.000 krónur og
eru miðar seldir við inngang.
➜ Útivist
14.00 Göngugarpar sameinast við að
búa til Ljósafoss niður Esjuna í dag.
Mæting við Esjustofu kl. 14. Gangan
hefst stundvíslega kl. 14.30. Allir ágóði
af kaffisölu Esjustofu rennur til Ljóssins
í dag.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 12. desember
➜ Tónleikar
14.00 Í dag kl. 14.00 verða tónleikar í
Listasafni Íslands í minningu listmál-
arans Karls Kvaran. Tónleikarnir eru
haldnir í tengslum við yfirlitssýningu
á verkum hans sem nú stendur yfir í
safninu
15.00 Léttir harmonikkutónleikar í
Ráðhúsinu við Vonarstræti í dag kl.
15. Lindy hop dansinn sýndur og boðið
upp á almennan dans.
16.30 Kór Átthagafélags Stranda-
manna heldur Aðventuhátíð í Bústaða-
kirkju í dag kl. 16.30. Stjórnandi er
Krisztina Sxklenár. Aðgangseyrir er
2200 krónur, frítt fyrir 14 ára og yngri.
17.00 Drengjakór Reykjavíkur heldur
aðventutónleika í Hallgrímskirkju í dag
kl. 17. Miðasala við innganginn, frítt fyrir
börn 12 ára og yngri.
21.00 Jóel Pálsson og hljómsveit hans
fagnar útkomu plötunnar HORN með
tónleikum í kvöld á Rósenberg. Tónleik-
arnir hefjast kl. 21 og er miðasala við
innganginn.
➜ Opnanir
12.10 Sýning Hannesar Lárussonar
Líkamshlutar í trúarbrögðum opnar í
dag kl. 12.10 í fordyri Hallgrímskirkju.
➜ Síðustu forvöð
13.00 Í tengslum við Jól í bæ í Hvera-
gerði verður opnaður jólagluggi í Lista-
safni Árnesinga í dag kl. 13. Einnig
verður leiðsögn og samræður um sýn-
inguna „Þjóðleg fagurfræði” kl. 15 með
Ingu Jónsdóttur sýningarstjóra. Allir
velkomnir og aðgangur ókeypis.
Um helgina eru lokadagar ljósmynda
og sölusýningarinnar flickr-iceland
hópsins. Sýningin er til styrktar blátt
áfram og er í Tjarnarsal Ráðhússins.
Opið til kl. 18 alla helgina.
➜ Opið Hús
13.00 Jólasýning Árbæjarsafns verður
opin í dag frá kl. 13-17. Dagskrá frá 14-
16. Aðgangseyrir er 600 krónur fyrir full-
orðna, ókeypis fyrir börn, ellilífeyrisþega
og öryrkja.
➜ Kvikmyndir
15.00 Ballettinn Hnotubrjóturinn
verður sýndur í bandarískri útgáfu á
kvikmyndasýningu MÍR, að Hverfisgötu
105. Sýning hefst kl. 15. Aðgangur
ókeypis.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni verður að
Stangarhyl 4, í kvöld frá kl. 20-23.
Danshljómsveitin Klassík leikur danslög
við allra hæfi.
➜ Dagskrá
11.00 Fjölskyldudagskrá verður í Þjóð-
minjasafni Íslands í dag. Dagskrá hefst
kl. 11 og er aðgangur ókeypis.
➜ Leiðsögn
15.00 Leiðsögn um sýningu listamanns-
ins Gardars Eide Einarssonar í Hafnar-
húsinu kl. 15. Kristín Dagmar Jóhann-
esdóttir leiðir gesti um sýninguna. Allir
velkomnir og aðgangur ókeypis.
➜ Samkoma
16.00 Jólaskemmtun/styrktartónleikar
Samhljóms verður haldin á Fosshótel
Húsavík í dag kl 16. Fram koma Hjálm-
ar og þeir ásamt gestum.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
27.DES
19.DES
Ólafur Arnalds
Seabear
Sudden Weather Change
Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks
Nýtt leikverk eftir Jón Atla
Miðasalan er opin
virka daga frá kl. 13-15
Sími: 527 2100
www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík
Mojito
Augastein – Á senunni
Ævintýrið um 12.DESkl. 14 OG 16
10.DES
KL. 20:00
útskriftarsýning
DanslistaskólaJSB
12.DES
16.DES
KL. 20:30
FRAMUNDAN:
28.-30.des
Ég vil hjálpa með 100 krónum á mánuði.
Ég skrái mig með SMS- skilaboðunum FHI í síma 1900 og eftir það
styrki ég Fjölskylduhjálp Íslands með 100 krónum á mánuði.
Viðkomandi fær svo sent eitt SMS á mánuði sem kostar 100 krónur
sem færist á símareikning um hver mánaðarmót.
Öll símafyrirtækin gefa sína þjónustu.
Hátíð fer
að höndum ein
Kórar og tónlistarfólk Hallgrímskirkju bjóða upp á
samfellda tónlistardagskrá
Í DAG, LAUGARDAGINN 11. DESEMBER KL. 14-17
Aðgangur kr. 1.000/ ókeypis fyrir yngir en 16 ára
DAGUR HARMONIKUNNAR
Velkomin á létta tónleika Harmonikufélags Reykjavíkur í
Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, sunnudaginn 12. desember
kl. 15.00. M.a. verður Lindy hop dansinn sýndur
og boðið upp á almennan dans.
Harmonikufélag Reykjavíkur
Jólatrésskemmtun kl. 14.00
Skemmtunin hefst í kirkjunni með stuttri helgistund.
Kveikt á þriðja kertinu í aðventukransinum.
Þá verður haldið í Safnaðarheimilið þar sem dansað verður í
kringum jólatréð, jólasveinninn kemur í heimsókn með góðar
gjafir og svo fá allir hressingu.
Aðventukvöld kl. 20.00
Ræðumaður Guðrún Ögmundsdóttir.
Anna Sigga tónlistarstjóri og Aðalheiður organisti ásamt Kór
Fríkirkjunna sjá um tónlistina.
Hjörtur Magni og Bryndís leiða stundina.Hlökkum til að sjá sem
flest ykkar til að njóta stundarinnar með okkar frábæra fólki.
Þriðji sunnudagur
í aðventu
12. desember
Heill þér, hafsins stjarna
AÐVENTUTÓNLEIKAR
í Seltjarnarneskirkju
Valgerður Guðnadóttir
Einsöngvari
Haukur Gröndal
Steingrímur Þórhallsson
Þorgrímur Jónsson
Klarinett
Orgel og píanó
Kontrabassi
Stjórnandi
Magnús Ragnarsson
Miðvikudaginn 15. des. kl. 20:00
Sunnudaginn 12. des. kl. 20:00
Miðar til sölu hjá félögum, í tólf tónum og við innganginn.
Jóladagatal Norræna hússins 1.-23. des. kl: 12.34
Bækur ★★★
Heimanfylgja. Skáldsaga um
uppvöxt Hallgríms Péturs-
sonar byggð á heimildum um
ættfólk hans og samtíð.
Steinunn Jóhannesdóttir
Heimildir um ævi Hallgríms
Péturs sonar eru af skornum
skammti eins og gefur að skilja.
Þótt hann sé einhver þekktasti
Íslendingur sinnar samtíðar og
án efa þekktasta og virtasta skáld
þjóðarinnar á milli Snorra og
Jónasar vitum við lítið fyrir víst
um æsku hans og uppvöxt. Þetta
er auðvitað alveg eðlilegt. Hall-
grímur var á dögum löngu áður
en höfundar og ævi þeirra kom-
ust í tísku meðal fræðimanna og
lesenda og það var ekki fyrr en
löngu síðar að menn fóru að reyna
að grafast fyrir um ætterni hans,
uppvaxtarskilyrði og annað sem
við höfum undanfarin tvö hundr-
uð ár litið á sem lykil að skáldskap
og tjáningu skálda.
Við lifum á hinn bóginn á ævi-
sögulegum tímum og undanfarin
ár hafa verið gerðar ýmsar atlög-
ur að því að skilja Hallgrím og
setja ævi hans í samhengi sem
er okkur nútímamönnum skiljan-
legt. Hallgrímur hefur áður birst
sem aukapersóna í sögu Steinunn-
ar Jóhannesdóttur um eiginkonu
hans Guðríði Símonardóttur sem
kom út fyrir tæpum áratug og
fyrir þremur árum skrifaði Úlfar
Þormóðsson um Hallgrím mikla
sögulega skáldsögu þar sem hann
dró upp sína mynd af Hallgrími,
mikið stílfærða og býsna nútíma-
lega.
Ný skáldsaga Steinunnar
Jóhannesdóttur um fyrstu æviár
Hallgríms stefnir í þveröfuga átt
við sögu Úlfars að sumu leyti en
ekki öllu. Steinunn er miklu trúrri
sögulegum heimildum um lífið á
tímum Hallgríms, en beinagrind-
in í sögu hennar er samt sem áður
nútímaleg eða öllu heldur rómant-
ísk. Hennar Hallgrímur mótast
fyrst og fremst af áfalli í æsku,
móðurmissi sem hefur djúpstæð
áhrif á sálarlíf hans og gerir hann
kannski að því skáldi sem hann
seinna varð. Þetta er auðvitað
þekkt minni úr íslenskum bók-
menntum, undirritaður er að vísu
alltaf með hausinn fullan af Fjall-
kirkju Gunnars Gunnarssonar,
en samt verður vart hjá því kom-
ist að bera Hallgrím Steinunnar
saman við Ugga Greipsson – til
þess eiga þeir of margt sameigin-
legt. Önnur og minna þekkt saga
Gunnars kemur líka upp í hugann
við lestur Heimanfylgju, uppvöxt-
ur Hallgríms á biskupssetrinu á
Hólum kallast á við fyrsta hluta
sögu Gunnars um Jón Arason sem
var strákur á sömu slóðum rúmri
öld fyrr.
Sögu Hallgríms í þessari bók
lýkur þegar hann er aðeins fjór-
tán ára gamall og heldur af landi
brott eftir að hann er rekinn úr
Hólaskóla. Hann er þá enn ómót-
aður að mestu eins og gefur að
skilja. Enda er það ekki Hallgrím-
ur sjálfur sem rís hæst í þessari
sögu. Til þess er hann ekki nógu
sérkennilegur eða að minnsta
kosti tekst ekki að gera sálar-
líf hans svo ríkulegt eða óvenju-
legt að það hrífi lesandann. Saga
Hallgríms er vel sögð saga af því
hvernig hann hefði getað verið,
hvernig strákur af góðum ættum
en fátæku foreldri sem ólst upp í
nábýli við stórmenni sinnar tíðar
hefði getað hugsað og lifað. En
það eru þessi stórmenni sem lyfta
sögunni og bera uppi bestu kafla
hennar. Sagan rís hæst undir
lokin þegar Halldóra Guðbrands-
dóttir, dóttir Guðbrands Þorláks-
sonar biskups, tekur yfir sviðið.
Lýsingarnar á stórmennsku henn-
ar á síðustu æviárum föður henn-
ar, innibyrgðri ástríðu og átökum
við valdamenn er á köflum býsna
mögnuð lesning. Í lokahluta sög-
unnar rís ekki bara dramatíkin
hæst heldur einnig frásögnin og
stíllinn. Jón Yngvi Jóhannesson
Niðurstaða: Heimanfylgja er þegar
best lætur mögnuð lýsing á and-
rúmslofti sautjándu aldar á Íslandi en
aðalpersónan sjálf hverfur stundum í
skuggann.
Eins og hver annar strákur