Fréttablaðið - 11.12.2010, Qupperneq 112
84 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
12 ÁR ERU LIÐIN frá því að söngkonan Britney Spears sendi frá sér sitt
fyrsta lag, „Baby One More Time“, en þá var hún aðeins sautján ára.
„Þeir báðu mig bara um að koma
og ég söng þarna fimm lög,“ segir
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng-
kona. Breska tímaritið Monocle
bauð henni til London til að koma
fram í útvarpsþætti tímaritsins
sem það heldur úti í ansi glæsilegu
hljóðveri sínu.
Starfsmenn Monocle eru ansi
hrifnir af Jóhönnu því þetta er í
annað sinn sem hún mætir í hljóð-
verið og syngur, hún gerði slíkt hið
sama í fyrrasumar. Jóhanna flaug
út strax á mánudagsmorgni eftir
að hafa sungið á fernum Jólagesta-
tónleikum í Laugardalshöllinni þá
helgi. „En maður fær alveg svaka-
lega góða meðhöndlun hjá þeim
enda stórt tímarit og svo fékk ég
að vinna með Friðriki Karlssyni,
ég kalla alltaf í hann þegar ég er
í London.“
Jóhanna söng tvö ný lög sem
verða væntanlega á nýrri plötu.
Og svo íslenska jólalagið Ó helga
nótt. „Þeir báðu mig alveg sérstak-
lega um það, að syngja jólalag á
íslensku.“ Söngkonan er ákaflega
upptekin í mánuðinum en í kvöld
koma Jólagestir Björgvins í heim-
sókn til Akureyrar. Jóhanna hefur
hins vegar síður en svo fengið nóg
af ferðalögum því hún hyggst
heimsækja nokkrar kirkjur á land-
inu og halda litla tónleika ásamt
kærastanum sínum, gítarleikar-
anum Davíð Sigurgeirssyni. „Þetta
eiga að vera svona fjölskyldutón-
leikar með hátíðlegum og poppuð-
um jólalögum í bland,“ en jólalag
sem þau sömdu saman er farið að
hljóma á öldum ljósvakans. Þau
skötuhjú verða í Reykholti hinn
17. desember og svo verða tónleik-
ar í Keflavík, á Grundarfirði og á
Egilsstöðum. - fgg
Jóhanna söng Helga
nótt fyrir Monocle
Í MONOCLE Jóhanna Guðrún ásamt Friðriki Karlssyni í hljóðveri breska tímaritsins
Monocle. Jóhanna söng meðal annars Ó helga nótt á íslensku í þættinum.
Kourtney Kardashian er sögð
miður sín vegna orðróms um að
unnusti hennar, Scott Disick, sé
samkynhneigður og hrífist af
klæðskiptingum.
„Hún er búin að fá sig full-
sadda á öllum þessum slúðursög-
um um samband þeirra Scotts og
hún meira en nóg af öllu því ljóta
sem sagt er um Scott á netinu,“
var haft eftir vini raunveruleika-
stjörnunnar. „Kourtney finnst
sem þau Scott séu stanslaust að
takast á við ný vandamál og
hún er uppgefin. Hana lang-
ar í góðan mann sem mun
passa upp á hana og barnið.
Kourtney veit að Scott er
ekki samkynhneigður en hún á
ekki að þurfa að hafa áhyggjur af
svona slúðri,“ sagði vinurinn.
Þreytt á
slúðrinu
ÁHYGGJUFULL Kourtney Kardashian
er þreytt á slúðursögum um hana og
kærastann. NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Rihanna er með fatastíl sem tekið
er eftir og er stúlkan óhrædd við að
fara sínar eigin leiðir þegar kemur
að tískunni. Hin 22 ára gamla söng-
kona sló fyrst í gegn árið 2005 og
hefur síðan þá átt hvern smell-
inn á fætur öðrum. Það er
forvitnilegt að líta til baka
yfir farinn veg og skoða
hin mörgu andlit Rihönnu.
Fjölmörg andlit Rihönnu
Jólakaupauki
Flottur hátalari fylgir
GSM tilboði á meðan
birgðir endast.
Vertu með YouTube
í símanum
Jólainneign 1.000 kr. á mánuði í 12 mánuði fylgir.
Samsung Galaxy 5
0 kr. útborgun
m.v. 12 mánaða greiðsludreifingu eða 12x3.325 kr.*
www.ring.is / m.ring.is www.facebook.com/ringjarar
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
6
9
0
*Dreifingargjald 250 kr. á mánuði.
NÝSTIRNI Söngkonan sló fyrst í
gegn árið 2005, þá aðeins 17 ára
gömul. Fatastíllinn var þá enn nokk-
uð stelpulegur líkt og sjá má.
STELPULEG Söngkonan var aðeins 18
ára gömul þegar hún tróð upp í spjall-
þættinum Today Show í júli árið 2006.
GAMALDAGS Rihanna
minnir hér svolítið á söng-
konur sjöunda áratugarins
með bleikar varir og stutt
hár. Myndir er tekin í
desember árið 2008.
FRAM-
ÚR STEFN-
U LEG
Söngkonan mætti í
þessum undarlega kjól á
AMA-tónlistarhátíðina árið
2007.
NORDICPHOTOS/GETTY
RAUÐKLÆDD Rihanna
mætti í rauðum blúndu-
kjól og með eldrauða
lokka á AMA-tónlistar-
hátíðina í nóvember á
þessu ári.