Fréttablaðið - 11.12.2010, Síða 118

Fréttablaðið - 11.12.2010, Síða 118
90 11. desember 2010 LAUGARDAGUR Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria sótti nýverið um skilnað frá eiginmanni sínum, körfuboltamann- inum Tony Parker. Ástæða skilnaðarins er sú að Parker átti að hafa átt vingott við aðra konu. Nú er því haldið fram að Parker hafi ekki verið einn um að halda framhjá á meðan á hjónabandinu stóð því Longoria á að hafa átt í sambandi við hjól- reiðakappann Lance Armstrong, en sá hefur verið kenndur við konur á borð við Kate Hudson og söng- konuna Sheryl Crow. „Opinberlega láta þau sem þeim þyki enn vænt hvoru um annað en raunin er önnur. Þau gera ekki annað en að kenna hvort öðru um hitt og þetta til að reyna að fá samúð almennings,“ var haft eftir innanbúðarmanni. Tímaritið Enquirer heldur því fram að Parker hafi átt vingott við sjö konur, þar á meðal Erin Barry, eiginkonu fyrrverandi liðsfélaga síns, og dansara með hljómsveitinni Pussycat Dolls. Longoria sökuð um framhjáhald SAKLAUS? Eva Longoria er sögð hafa haldið framhjá Tony Parker með hjólreiðakappanum Lance Armstrong. NORDICPHOTOS/GETTY Eftir fimm ára hlé snýr Margeir Ingólfsson aftur með sitt vinsæla diskókvöld á annan í jólum. Tilefni endurkomunnar er skinku- vandamál unglingsstúlkna í tengslum við svínaflensuna og ævisaga hans sem var rituð í hans óþökk. Diskókvöld Margeirs voru haldin tíu ár í röð og nutu mikillar hylli þangað til plötusnúðurinn ákvað að setja þau í salt. Núna, fimm árum síðar, hefur hann snúið aftur og í þetta sinn verður diskóið á skemmtistaðnum Austur á annan í jólum. „Ég var eiginlega búinn að ákveða að enda ekki sem enn einn glataði gaurinn sem kemur með kommbakk á Súlnasal Hótel Sögu. En Það sem rak mig af stað aftur var að ég rakst á til- kynningu frá sóttvarnarlækni um að á landinu hefði greinst skætt tilvik svokallaðrar svína- flensu,“ útskýrir Margeir. „Þessi skæða veirusýking herjar aðal- lega á unglingsstúlkur og lýsir sér þannig að hárið á þeim aflitast og andlitið á þeim verður appelsínu- gult. Þær skinkast sem sagt upp á mettíma. Það er ljóst að hraði og eðli útbreiðslunnar gefur tilefni til að hafa miklar áhyggjur og þess vegna taldi ég það skyldu mína að bregðast við. Það má segja að þessi endurkoma sé ákveðið sam- félagsverkefni því diskóið læknar skinkur.“ Önnur ástæða er einnig fyrir endurkomunni að sögn Margeirs: „Ég frétti af því að kunnur ævi- sagnaritari hér í bæ, Ingólfur Margeirsson, maðurinn sem allir halda að sé pabbi minn, hefði komist í dagbókina mína og hafist handa við að rita ævisögu mína án þess að láta mig vita og ætlað að gefa hana út fyrir jólin,“ segir hann. „Það var í raun í ljósi þessara tveggja atriða sjálf gefið að slá upp eins og einum diskó- dansleik.“ freyr@frettabladid.is Diskóið læknar svínaflensuna MARGEIR Plötusnúðurinn Margeir heldur diskó- kvöld á Austri annan í jólum. Efsta myndin prýðir kápu ævisögu hans en hinar tvær eru frá því hann djammaði með Cher og John Travolta. Listin að lifa - 6. kafli (bls. 193) Líf er svo nátengt listinni, það á ekki að dylja neitt, en ekkert er falt. Ég vil vera eins og opin bók, ljóðabók og allir mínir gallar og allar mínar syndir og allt saman má koma fram, því það er nátengt minni list. Líf mitt er list. Tónlist. Ég veit og skil allt hér um bil - 2. kafli (bls. 33) Það mætti lýsa diskó- tónlistinni sem ég er að spila sem hómófón- ískri nýrómantík. Sem er eitthvað annað en gerviveröld pönk-rokks- ins, þar sem áhrifin eru mótuð í spéspegli skallapoppsins og allt of lengi er staldrað við í einum hljómi. Þetta eru bara tískupönkarar sem klippa á nafla- streng anarkismanns um leið og þeir skipta um galla. Pönk er feik. Æskuárin - 1. kafli (bls. 10) Ég minnist þess að þegar félagar mínir voru í bófahasar, Tarsanleikj- um eða þá að smíða flugvéla módel, þá lá ég einhverstaðar á afviknum stað og hugs- aði um annars konar módel. Súpermódel. Ég grét mig í svefn á hverju kvöldi, tættur af ástarsorg og aldrei út af sama súpermódelinu. Ég var með súpermód- el á heilanum. Og er enn. Tilbrigði um fegurð - 10.kafli (bls. 412) Maður þarf að hafa ákveðinn „presence”, eins og sagt er á ensku, sem við eigum því miður ekkert gott orð yfir. Sviðsþokki kemst kannski næst því. Maður verður að hrífa fólk með glæsi- leika. Hafa útgeislun. Þess vegna segi ég að fegurð sé hugarástand, því sviðssjarminn kemur útlitinu í sjálfu sér lítið við. En auðvit- að er líka mikilvægt að maður sé hlutfallslega vel skapaður, skárra væri það nú. Ég á mér meira að segja með vissan uppáhalds- kvarða, nokkurs konar „ideal“, sem er þannig að menn eru best skapaðir þegar þeir eru 186-187 sentímetrar á hæð, 80-82 kílógrömm að þyngd, með langt bak og stuttar lappir: sem sagt engin sleggja, en hár, ekki grind- horaður, en grannur. Maður verður að samsvara sér. Fegurð er vanmetin. BROT ÚR ÆVISÖGUNNI FEGURÐ ER VANMETIN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.