Fréttablaðið - 11.12.2010, Page 128
100 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
HANDBOLTI Landsliðskonan Sólveig
Lára Kjærnested er í þeirri óvenju-
legri aðstöðu að vera með unga
fjölskyldu sína með sér í Árós-
um þar sem EM í handbolta fer
fram þessa dagana. Sólveig Lára
á níu mánaða gamla dóttur, Katr-
ínu Ástu, sem fær að hitta mömmu
sína á milli æfinga og leikja.
„Það kom í raun ekkert annað til
greina en að hún kæmi með enda
getum ekki án hvor annarrar verið
í svo langan tíma,“ sagði Sólveig
Lára í samtali við Fréttablaðið í
gær.
Litla stúlkan er reyndar hætt
á brjósti en það er þó nýtilkomið.
„Hún var enn á brjósti þegar við
fórum til Noregs fyrir tveimur
vikum,“ bætti Sólveig Lára við.
Hún missti af öllu síðasta tíma-
bili en stúlkan kom í heiminn
þegar keppnistímabilinu var að
ljúka í vor. Það kom henni því á
óvart að hún skyldi vera valin í
landsliðið nú.
„Mér datt ekki í hug þá að ég
myndi komast með í þessa ferð.
Mér fannst það vera of fjarlægur
möguleiki þá. En svo var ég valin í
hópinn fyrir leikina gegn U-20 liði
Noregs heima og þá fattaði ég að
ég ætti einhvern séns. Þá var bara
kýlt á það og allt gert til að koma
sér í lokahópinn.“
Hún segir að meðgangan hafi
gengið vel og því hafi ekkert verið
því til fyrirstöðu að byrja að spila
handbolta aftur í haust. „Ég fór
reyndar aðeins of hratt af stað og
var ferlega léleg á fyrstu æfing-
unum. Það reyndi aðeins á þolin-
mæðina. En ég varð skárri eftir
því sem á leið.“
Hún er þó ekki eina mamman í
landsliðinu þar sem Hrafnhildur
Ósk Skúladóttir á tvær dætur. „Það
er ágætt að geta skipst á sögum við
einhvern,“ segir hún í léttum dúr.
„En það er ótrúlega gaman að hafa
fjölskylduna með mér og það hefur
munað miklu.“
Ísland mætir Rússlandi í dag og
Sólveig segir leikmenn spennta
fyrir leiknum. „Það eru frábær-
ir leikmenn í hverri stöðu en við
höfum trú á því að við getum strítt
þeim og aðeins hrist upp í þjálfar-
anum þeirra. Sjálfstraustið hefur
aukist í hópnum og ég held að leik-
urinn gegn Svartfjallalandi hafi
hjálpað okkur mikið.“
- esá
Landsliðskonan Sólveig Lára Kjærnested er með níu mánaða gamla dóttur með sér í Árósum:
Getum ekki án hvor annarrar verið
GÖNGUTÚR Á STRIKINU Sólveig Lára
með barnavagninn ásamt kærasta
sínum, Jóhanni Inga Jóhannssyni, á
Strikinu í Árósum. MYND/E. STEFÁN
HANDBOLTI Þorgerður Anna Atla-
dóttir er átján ára gömul og einn
yngsti leikmaðurinn á Evrópumót-
inu í handbolta en hún hefur stað-
ið sig afar vel í leikjum Íslands
til þessa. Hún er yngsti leikmað-
ur landsliðsins en hefur komið inn
á fyrir þann elsta, Hrafnhildi Ósk
Skúladóttur, í leikjum Íslands á
EM.
Þær spjölluðu við Fréttablaðið á
hóteli landsliðsins í Árósum í gær
og ljóst að þær Hrabba og Togga,
eins og þær eru kallaðar, eru góðar
vinkonur.
„Ég er tiltölulega ný í þessum
hópi og þegar ég kom inn kunnu
allir aðrir öll kerfi í landsliðinu
nema ég. Það var þá gott að geta
leitað til einhvers eins og Hrafn-
hildar. Þegar við erum svo að
skiptast á að spila í sókninni fylg-
ist ég vel með því sem hún gerir
og reyni að læra af henni,“ segir
Þorgerður.
Hún segir að vissulega ríki sam-
keppni á milli þeirra, eins og eðli-
legt er. „Það er samkeppni en einn-
ig samstarf. Þannig er það held ég
í öllum liðum,“ segir hún og sam-
sinnir Hrafnhildur því. „Hún býr
yfir mestu reynslunni í hópnum og
því lít ég upp til hennar og vil vera
eins og hún. Maður lærir alltaf af
næsta manni.“
Hrafnhildur hrósar Þorgerði
fyrir frammistöðuna í leikjum
Íslands til þessa. „Mér líst ótrúlega
vel á hana enda er hún gríðar lega
öflugur leikmaður. Ég get lofað
því að þetta verður ekki hennar
síðasta stórmót í handbolta – hún
á eftir að fara á þau mörg.“
Þorgerður er þó aðeins ein af
nokkrum ungum leikmönnum
sem hafa fengið stórt hlutverk í
íslenska landsliðinu á EM. „Það
eru margir frábærir ungir leik-
menn í þessu liði og þær hafa nýtt
tíma sinn mjög vel og fara langt
á því. Margir þessarar leikmanna
unnu þáverandi heimsmeistara
Þjóðverja í U-18 ára landsliðinu
fyrir tveimur árum og segir það
margt um þær. Ég er sannfærð um
að þessar stelpur eiga eftir að ná
langt á næstu árum.“
Þorgerður segist ánægð með
hvernig hún hefur nýtt sínar mín-
útur til þessa. „Það kemur ekkert
annað til greina en að nota það sem
maður fær. Ég er ágætlega sátt við
mitt en vil auðvitað að liðinu gangi
betur.“
Hrafnhildur tekur undir það og
segir það gott að eiga öflugan kost
á bekknum fyrir sig. „Það er frá-
bært. Ég fann mig ekki í fyrsta
leiknum og það gengur ekki að
mín staða skili bara einu marki.
Hún kom inn á og stóð sig vel. Ég
hef ekkert að gera inni á vellinum
ef ég get ekki neitt,“ sagði Hrafn-
hildur.
Stelpurnar grípa oft í fótbolta
til að hita upp á sínum æfingum
og er þá skipt í tvö lið - Yngri og
Eldri. „Þetta hafa verið hörkuleik-
ir og síðustu hefur reyndar lykt-
að með markalausum jafnteflum.
Það hefur ekki verið mikið skorað
í Árósum,“ segir Hrafnhildur. „En
ég held nú að við séum með ein-
hverja vinninga í forskot,“ bætir
hún við.
„Þeir eru þó ekki margir,“ skýt-
ur Þorgerður Anna inn og brosir.
Hrafnhildur segir afar góða
samheldni ríkja í þessum lands-
liðshópi. „Þetta er frábær hópur
og hér ná allir að tengjast vel. Það
eru alls engar klíkur í gangi – alla
vega hef ég ekki tekið eftir því.
Þetta er virkilega góð blanda.“
Sem yngsti leikmaður liðsins
fær Þorgerður það hlutverk að
sjá um boltana, eins og venjan
er hjá íslenska landsliðinu. „Það
er grútleiðinlegt,“ segir hún og
kann greinilega sitt fag. „Þetta
eru fjórtán boltar, svo fótbolti og
vestin. Þetta þarf ég allt að hafa
á hreinu.“
Stelpurnar eiga eftir að ná langt
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Þorgerður Anna Atladóttir keppast um sömu stöðuna í landsliðinu en eru
einnig elsti og yngsti leikmaður liðsins. Þær segja að samkeppni ríki á milli þeirra en einnig mikið samstarf.
HANDBOLTI Ísland mætir í dag heimsmeisturum
Rússa á EM í handbolta og á Júlíus Jónasson
landsliðsþjálfari von á erfiðum leik, eins og
gefur að skilja.
„Rússar eru ríkjandi heimsmeistarar og
með mikla hefð. Nú er spurning hvort það
telur þegar út í leikinn er komið. Staðan er 0-
0 þegar leikurinn í byrjar og gott að hugsa um
það þannig,“ segir Júlíus.
„Við höfum enn trú á því að við getum gert
eitthvað í þessu móti, þótt það sé orðið lang sótt
og erfitt,“ segir hann spurður um markmið
Íslands sem er að komast í milliriðil. Óvíst er
hvort sigur gegn Rússum í dag dugir til þess.
„En ég held að það sé eðlilegt að byrja á því
að reyna að vinna leikinn og sjá svo hvað ger-
ist. Aðalatriðið fyrir okkur er að spila vel og
betur en síðast,“ segir hann og bætir við að
engin meiðsli séu að ráði meðal íslensku leik-
mannanna.
Evgeny Trefilov er þjálfari Rússana og
hefur fjórum sinnum orðið heimsmeistari með
liðinu. Hann er þó afar skrautlegur og lætur
leikmenn sína óspart heyra það. Óhætt er að
segja að hann sé afar líflegur á hliðarlínunni.
„Á mínum ferli höfum við aðeins einu sinni
spilað áður við Rússa og það var fyrir tveimur
árum. Þá var hann veikur og ég hef því aldrei
talað við hann. Það fer einnig mjög lítið fyrir
honum á hótelinu,“ segir Júlíus en öll keppnis-
liðin eru á sama hóteli í Árósum.
„Reyndar hélt hann fund um daginn í næsta
herbergi við okkar fundarherbergi þar sem
hann öskraði á leikmenn í klukkutíma. Miðað
við það og hegðun hans á hliðarlínunni fer
maður að velta fyrir sér hvernig fjölskyldulífið
hans sé. Ég hef litla trú á því að hann sé undir-
gefinn heima hjá sér. Þó getur vel verið að
hann sé ljúflingur á milli leikja og funda.“
En árangurinn talar sínu máli. „Það er ekki
hægt að taka það af honum. Það er gríðarlega
mikil breidd í rússneska liðinu og hann skiptir
leikmönnum óspart út af, sama hvort þeir hafa
staðið sig vel eða ekki.“
Júlíus stefnir þó ekki á að taka þjálfunar-
aðferðir hans til fyrirmyndar. „Ég veit ekki
hversu vel femínistafélagið heima myndi
taka í hans þjálfunaraðferðir,“ segir Júlíus
en á æfingum rússneska landsliðsins er leik-
mönnum yfirleitt refsað með aukaæfingum,
hoppum, armbeygjum eða kollhnísum, fyrir
minnstu sakir. „Ég held að mínar stelpur
myndu aldrei sætta sig við þetta. En þetta er
af allt öðrum skóla og rússnesku stelpurnar
þekkja sjálfsagt ekkert annað.“ - esá
Júlíus Jónasson um leikinn í dag og Evgeny Trefilov, hinn skrautlega landsliðsþjálfara Rússlands:
Er örugglega ekki undirgefinn heima hjá sér
HANDBOLTI Ísland mætir í dag
gríðar sterku liði Rússlands en svo
gæti farið að liðið þurfi átta marka
sigur til að komast áfram í milli-
riðlakeppnina.
Fari svo að Ísland vinni Rúss-
land í dag verða bæði lið með tvö
stig. Króatar mæta Svartfelling-
um og reikna flestir með sigri síð-
arnefnda liðsins þar.
Þá yrðu Króatar einnig með tvö
stig og þá þyrfti að reikna marka-
tölu úr innbyrðisviðureignum
allra þriggja liðanna. Þar stendur
Ísland illa að vígi vegna tapsins
fyrir Króatíu í fyrstu umferðinni,
35-25. Í þeirri stöðu situr Ísland
eftir nema að liðið vinni minnst
átta marka sigur á Rússum.
Ef Króatar vinna hins vegar
sinn leik í dag nægir Íslandi sigur
með minnsta mun gegn Rússum til
að komast áfram. - esá
Möguleikar Íslands í dag:
Helst átta
marka sigur
HANDBOLTI Olga Levina, einn
reyndasti leikmaður rússneska
landsliðsins, var spurð að því
af hverju leikmenn fögnuðu
ekki sigri þess gegn Króötum á
fimmtudaginn.
„Við fögnuðum í raun ekki sigr-
inum því það á í raun að vera eðli-
legt fyrir okkur að vinna leiki. Við
erum ánægð með úrslitin en það
hefði verið mikilvægara að vinna
Svartfjallaland í fyrstu umferð
riðlakeppninnar,“ sagði Levina á
heimasíðu mótsins en Rússar töp-
uðu óvænt fyrir Svartfellingum og
fara því ekki með fullt hús stiga
í milliriðlakeppnina, komist þær
þangað.
Rússland mætir Íslandi í dag í
lokaumferð riðlakeppninnar. - esá
Leikmaður Rússlands:
Eðlilegt að
vinna leiki
HANDBOLTI Myndbandið sem birt-
ist á íþróttavef Vísis í vikunni af
reiðum Evgeny Trefilov, lands-
liðsþjálfara
Rússlands,
hefur vakið
afar mikla
athygli hér í
Danmörku.
Dagblaðið
Ekstra Bladet
fékk mynd-
bandið til birt-
ingar á sínum
vef og TV2
hafði einnig mikinn áhuga á að fá
það. Viðbrögð hafa meira að segja
verið mikil innan evrópsku hand-
knattleikshreyfingarinnar.
„Forystumenn í EHF (Hand-
knattleikssamband Evrópu) höfðu
afar gaman af myndbandinu,“
sagði einn viðmælanda Frétta-
blaðsins sem þekkir vel til á þeim
bænum.
Enn er hægt að nálgast mynd-
bandið á Vísi en á því sést Tref-
ilov úthúða Svartfellingum eftir
að hafa tapað fyrir þeim í fyrstu
umferð riðlakeppninnar á EM í
handbolta. - esá
Myndband á Vísi:
Reiður Trefilov
vekur athygli
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
skrifar frá Árósum
eirikur@frettabladid.is
GÓÐIR FÉLAGAR Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Þorgerður Anna Atladóttir eru báðar
rétthentar skyttur í íslenska landsliðinu í handbolta. Hrafnhildur er aldursforsetinn í
hópnum en Þorgerður sú yngsta. MYND/E. STEFÁN
ÞJÁLFARINN Júlíus Jónasson ætlar ekki að reyna að
líkjast kollega sínum, Evgeny Trefilov.
FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
ERFITT VERKEFNI Fyrirliðinn Rakel Dögg
Bragadóttir á æfingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
EVGENY TREFILOV