Fréttablaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 48
„Þetta er fyrsta mótið í sumar sem
gefur stig til Íslandsmeistara titils,“
segir Árni Gunnlaugsson, varafor-
maður Akstursfélags Suður nesja
og einn skipuleggjenda Tjarnarg-
rillsrallísins. Rallíið hófst í gær, en
þeir fjórtán bílar sem skráðir eru
til leiks óku þá sérleiðir í grennd
við Keflavík og enduðu út í Helgu-
vík. „Á laugardaginn [í dag] verð-
ur svo byrjað við Kleifarvatn og
ekið í Reykjanesbæ, þar sem
við verðum með nýja
leið í Grindavík.
Við keyrum
þar bryggj-
una og út á
Hópsnes,“
segir Árni,
en einn-
ig verður
svokölluð
gestaleið
þar sem velunnurum
rallísins og kostendum er boðið að
setjast upp í rallíbíl og taka eina
bunu með ökumanni. Árni segir
leiðina við bryggjuna í Grindavík
henta vel fyrir áhorfendur og er
áætlað að fyrsti bíll fari þar um
klukkan 11.45. „Við keyrum svo hjá
Bláa Lóninu, förum inn í Stapafell
og keyrum svo Keflavíkurhöfn-
ina eins og við höfum gert marg-
oft,“ segir Árni, en sú leið er einn-
ig spennandi fyrir áhorfendur og
margir sem fylgjast með þaðan.
„Á Keflavíkurhöfninni fer fyrsti
bíllinn inn kl. 15.30 og við ætlum
að keyra þá með 30 sekúndna
millibili, sem þýðir að um leið og
fyrsti bíll fer framhjá og úr hvarfi,
fer næsti af stað,“ segir Árni en
venjan er að láta mínútu líða á
milli bíla. Endamarkið verður svo
við Tjarnargrillið í Innri-Njarð-
vík, þar sem verðlaunaafhending-
in fer fram og hlýtur sigurvegar-
inn fullt hús stiga í keppninni um
Íslandsmeistara titilinn.
kristjana@frettabladid.is
Rallí í Reykjanesbæ
Tjarnargrillsrallí Akstursfélags Suðurnesja fer fram nú um helgina. Rallíið er liður í Íslandsmóti
rallaksturs manna, en fjórtán bílar taka þátt í mótinu. Áhorfendur geta fylgst með víða um Reykjanesið.
Árni Gunnlaugsson, varaformaður Akstursfélags Suðurnesja, og einn skipuleggjenda
Tjarnargrillsrallís, stendur hér við einn af flottari rallíbílum landsins en hann er af
gerðinni Mitsubishi Lancer Evo 7. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sumarhátíð fyrir íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals
verður haldin í Grafarholti í dag. Boðið verður upp á fjöl-
breytta dagskrá frá 10-15, þar á meðal Fram-hlaup, útileiki,
leiktæki fyrir börn og veiðikeppni við Reynisvatn.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
MENNING
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Slys og veikindi barna
Námskeiðsgjald: 6.500 kr. á mann en 5.000 krónur ef maki eða
eldra systkini tekur líka þátt.
Leiðbeinandi er Sigrún Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Innifalin eru námskeiðsgögn og þátttökuskírteini.
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur
Skráning er til 14.mars
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið
Slys og veikindi barna 31. maí og 1. júní kl. 18-21 í
Hamraborg 11, 2 hæð.
Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og
orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri.
Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu
tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna
á sjúkrahús o.fl.
Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 eða
með tölvupósti á kopavogur@redcross.is.
Skráning er til 27. maí.
Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðið og
félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið fá 10% afslátt.
10%
20%
NÝ SENDING
- SKYRTUKJÓLAR