Fréttablaðið - 14.05.2011, Page 62

Fréttablaðið - 14.05.2011, Page 62
14. maí 2011 LAUGARDAGUR12 Radisson Blu 1919 hótel leitar að starfsfólki í eftirfarandi störf. Starfsmanni á næturvaktir í gestamóttöku (unnið í viku frá 20:00 – 08:00 og frí í viku). Matreiðslumanni á vaktir 2-2-3 Reynsla æskileg ásamt góðri tungumálakunnáttu. Æskilegur aldur er 25 ára og eldri. Umsóknir sendist á netfangið: sigridur.valdimarsdottir@radissonblu.com eða Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík. Vinsamlegast tilgreinið hvaða starf er sótt um. Býr í þér svolítill kokkur? Þá getum við leigt þér eldhús, fullbúið nýjustu tækjum og tólum til eldunar, auk pökkunarvéla, kæli- og frystiklefa á mjög sanngjörnu verði. Gott aðgengi að flutningum, markaði og sölukerfi. Eldhúsið er nýstandsett og staðsett í Dalvíkurbyggð. Nánari upplýsingar fást hjá Elvari Reykjalín í síma 466 1016 og í netfanginu elvar@ektafiskur.is TÆKIFÆRI Myndir og upplýsingar má finna á: www.ektafiskur.is/eldhus Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræð- ings um Látrabjarg og friðlýst svæði á sunnanverðum Vestfjörðum. Um er að ræða nýtt starf sem heyrir undir deild náttúruverndar. MEGIN VERKEFNI SÉRFRÆÐINGSINS ERU: » Dagleg umsjón með Látrastofu » Umsjón með Látrabjargi og nágrenni » Umsjón með friðlýstum svæðum á sunnan- verðum Vestfjörðum » Umsagnir og álitsgerðir í náttúruverndar- málum Gerð er krafa um háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. í jarð- fræði, náttúrulandfræði, líffræði eða umhverfis- og auð- lindafræði. Framhaldsmenntun er kostur. ALMENNAR HÆFNISKRÖFUR Auk þeirra hæfniskrafna sem gerðar eru til starfsins og tilgreindar eru að framan verða eftirfarandi þættir um þekkingu, reynslu og hæfni hafðar til viðmiðunar við val á starfsmanni: » Þekking á svæðinu. » Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd » Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórn- sýslu og almennum rekstri » Reynsla af miðlun upplýsinga og fræðslu til mismunandi hópa » Hæfni í framsetningu upplýsinga á skrifuðu og töluðu máli » Hæfni í ensku og einu norðurlandamáli auk góðrar íslenskukunnáttu » Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum sam- skiptum Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Ólafur A. Jónsson deildarstjóri, sem veitir nánari upplýsingar um starfið ásamt Sigrúnu Valgarðsdóttur starfsmannastjóra í síma 591 2000. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Óskað er eftir að starfmaðurinn hefji störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að skrifstofa hans verði á Patreksfirði. Stað- setning Látrastofu hefur ekki verið ákveðin en starfs- maður mun vinna að uppbyggingu hennar í samráði við næstu yfirmenn. Umsóknir skulu sendar til Umhverfisstofnunar, Suður- landsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið ust@ust.is eigi síðar en 27. maí 2011. NJÓTUM UMHVERFISINS OG STÖNDUM VÖRÐ UM ÞAÐ SAMAN LÁTRASTOFA Starf sérfræðings hjá Umhverfisstofnun SJÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR Á UMHVERFISSTOFNUN.IS Prentmet, Lynghálsi 1 í Reykjavík, óskar eftir að ráða í eftir- farandi störf: Prentsmiður í stafræna prentdeild Starfið er aðallega fólgið í móttöku verka og prentun á stafrænar prentvélar. Um er að ræða 100% starf og vinnu- tími er frá kl. 8:00-16:00. Prentsmiður í plötudeild Starfið er aðallega fólgið í útskoti og útkeyrslu á plötur og prentun prófarka. Um er að ræða 100% starf á vöktum, aðra vikuna kl. 8:00-16:00 og hina 12:00-19:00. Í bæði störfin leitum við að aðilum sem eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa góða menntun og reynslu í því sem starfið krefst. Leitað er eftir duglegum, stundvísum, ábyrgðarfullum, heiðarlegum, traustum og samstarfsliprum einstaklingum sem sýna frumkvæði. Við mat á umsóknum verður tekið sérstakt tillit til reynslu og þekkingar um- sækjenda. Prentmet býður upp á hágæða prentun þar sem hraði, gæði og persónuleg þjónusta fara saman. Lögð er rík áhersla á að starfsfólki líði vel á vinnustað. Atvinnuumsókn er á heimasíðunni www.prentmet.is. Um- sóknarfrestur er til 27. maí 2011. Nánari upplýsingar um starfið eru hjá framkvæmdastjóra mannauðssviðs í síma 8560 604. Prentmet er framsækin prentsmiðja með höfuðstöðvar að Lynghálsi 1 í Reykjavík og útibú á Akranesi og Selfossi PRENTSMIÐIR MEÐ REYNSLU ÓSKAST VERKFRÆÐI, NÁTTÚRUVÍSINDI OG SJÁLFBÆR ORKA www.hr.isLagadeild | Tækni- og verkfræðideild | Tölvunarfræðideild | Viðskiptadeild Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík auglýsir eftir starfsmanni til þess að leiða akademískt starf innan orkuskólans REYST. HÆFNISKRÖFUR Þekking og áhugi á sjálfbærum orkukerfum Doktorspróf á sviði verkfræði eða náttúruvísinda Reynsla úr atvinnulífinu æskileg Nánari upplýsingar um REYST er að finna á heimasíðunni www.reyst.is Senda skal umsóknir á netfangið appl@ru.is fyrir 1. júní 2011 og skulu þær innihalda starfsferilskrá, lista yfir birtar rannsóknir, lista yfir helstu verkefni, lýsingu á kennslureynslu og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Guðni Tómasson, forseti tækni- og verkfræðideildar HR (gunnargt@ru.is). Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Orkuskólinn REYST er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Orkuveitu Reykjavíkur. Þar er boðið upp á framhaldsnám á sviði sjálfbærrar orku sem leiðir til MS-gráðu í orkuverkfræði, eða MS-gráðu í orkuvísindum. Námið í REYST byggir á breiðum grunni þar sem allir nemendur taka námskeið á sviði orkutækni, jarðvísinda og orkuhagfræði áður en þeir einbeita sér að sérsviði sínu. Lögð er rík áhersla á sterk tengsl við iðnaðinn og faglegan styrk námsins. Tækni- og verkfræðideild HR er ein stærsta háskóladeild landsins með tæplega 1000 nemendur og um 50 akademíska starfsmenn á mörgum sviðum verkfræði, tæknifræði, íþróttafræði og iðnfræði. Skólinn útskrifar um 2/3 þeirra sem ljúka tækninámi á háskólastigi á Íslandi. Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Nemendur skólans eru um 3000 í fjórum deildum og starfa yfir 250 fastir starfsmenn við skólann auk fjölda stundakennara.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.