Fréttablaðið - 14.05.2011, Side 62
14. maí 2011 LAUGARDAGUR12
Radisson Blu 1919 hótel leitar að starfsfólki í eftirfarandi störf.
Starfsmanni á næturvaktir í gestamóttöku
(unnið í viku frá 20:00 – 08:00 og frí í viku).
Matreiðslumanni á vaktir 2-2-3
Reynsla æskileg ásamt góðri tungumálakunnáttu.
Æskilegur aldur er 25 ára og eldri.
Umsóknir sendist á netfangið: sigridur.valdimarsdottir@radissonblu.com
eða Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík. Vinsamlegast tilgreinið hvaða starf er
sótt um.
Býr í þér svolítill kokkur?
Þá getum við leigt þér eldhús, fullbúið
nýjustu tækjum og tólum til eldunar,
auk pökkunarvéla, kæli- og frystiklefa á
mjög sanngjörnu verði.
Gott aðgengi að flutningum, markaði
og sölukerfi.
Eldhúsið er nýstandsett og staðsett í
Dalvíkurbyggð.
Nánari upplýsingar fást hjá Elvari Reykjalín
í síma 466 1016 og í netfanginu
elvar@ektafiskur.is
TÆKIFÆRI
Myndir og upplýsingar má finna á: www.ektafiskur.is/eldhus
Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræð-
ings um Látrabjarg og friðlýst svæði á sunnanverðum
Vestfjörðum. Um er að ræða nýtt starf sem heyrir undir
deild náttúruverndar.
MEGIN VERKEFNI SÉRFRÆÐINGSINS ERU:
» Dagleg umsjón með Látrastofu
» Umsjón með Látrabjargi og nágrenni
» Umsjón með friðlýstum svæðum á sunnan-
verðum Vestfjörðum
» Umsagnir og álitsgerðir í náttúruverndar-
málum
Gerð er krafa um háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. í jarð-
fræði, náttúrulandfræði, líffræði eða umhverfis- og auð-
lindafræði. Framhaldsmenntun er kostur.
ALMENNAR HÆFNISKRÖFUR
Auk þeirra hæfniskrafna sem gerðar eru til starfsins og
tilgreindar eru að framan verða eftirfarandi þættir um
þekkingu, reynslu og hæfni hafðar til viðmiðunar við val
á starfsmanni:
» Þekking á svæðinu.
» Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd
» Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórn-
sýslu og almennum rekstri
» Reynsla af miðlun upplýsinga og fræðslu til
mismunandi hópa
» Hæfni í framsetningu upplýsinga á skrifuðu
og töluðu máli
» Hæfni í ensku og einu norðurlandamáli auk
góðrar íslenskukunnáttu
» Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum sam-
skiptum
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Ólafur A. Jónsson
deildarstjóri, sem veitir nánari upplýsingar um starfið
ásamt Sigrúnu Valgarðsdóttur starfsmannastjóra í síma
591 2000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Óskað er eftir að starfmaðurinn hefji störf sem fyrst. Gert
er ráð fyrir að skrifstofa hans verði á Patreksfirði. Stað-
setning Látrastofu hefur ekki verið ákveðin en starfs-
maður mun vinna að uppbyggingu hennar í samráði við
næstu yfirmenn.
Umsóknir skulu sendar til Umhverfisstofnunar, Suður-
landsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið ust@ust.is
eigi síðar en 27. maí 2011.
NJÓTUM UMHVERFISINS OG STÖNDUM VÖRÐ UM ÞAÐ SAMAN
LÁTRASTOFA
Starf sérfræðings hjá Umhverfisstofnun
SJÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR Á UMHVERFISSTOFNUN.IS
Prentmet, Lynghálsi 1 í Reykjavík, óskar eftir að ráða í eftir-
farandi störf:
Prentsmiður í stafræna prentdeild
Starfið er aðallega fólgið í móttöku verka og prentun á
stafrænar prentvélar. Um er að ræða 100% starf og vinnu-
tími er frá kl. 8:00-16:00.
Prentsmiður í plötudeild
Starfið er aðallega fólgið í útskoti og útkeyrslu á plötur og
prentun prófarka. Um er að ræða 100% starf á vöktum,
aðra vikuna kl. 8:00-16:00 og hina 12:00-19:00.
Í bæði störfin leitum við að aðilum sem eru sjálfstæðir
í vinnubrögðum og hafa góða menntun og reynslu í því
sem starfið krefst. Leitað er eftir duglegum, stundvísum,
ábyrgðarfullum, heiðarlegum, traustum og samstarfsliprum
einstaklingum sem sýna frumkvæði. Við mat á umsóknum
verður tekið sérstakt tillit til reynslu og þekkingar um-
sækjenda.
Prentmet býður upp á hágæða prentun þar sem hraði,
gæði og persónuleg þjónusta fara saman.
Lögð er rík áhersla á að starfsfólki líði vel á vinnustað.
Atvinnuumsókn er á heimasíðunni www.prentmet.is. Um-
sóknarfrestur er til 27. maí 2011. Nánari upplýsingar um
starfið eru hjá framkvæmdastjóra mannauðssviðs í síma
8560 604.
Prentmet er framsækin prentsmiðja með höfuðstöðvar að
Lynghálsi 1 í Reykjavík og útibú á Akranesi og Selfossi
PRENTSMIÐIR MEÐ
REYNSLU ÓSKAST
VERKFRÆÐI, NÁTTÚRUVÍSINDI
OG SJÁLFBÆR ORKA
www.hr.isLagadeild | Tækni- og verkfræðideild | Tölvunarfræðideild | Viðskiptadeild
Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík auglýsir eftir starfsmanni
til þess að leiða akademískt starf innan orkuskólans REYST.
HÆFNISKRÖFUR
Þekking og áhugi á sjálfbærum orkukerfum
Doktorspróf á sviði verkfræði eða náttúruvísinda
Reynsla úr atvinnulífinu æskileg
Nánari upplýsingar um REYST er að finna á heimasíðunni www.reyst.is
Senda skal umsóknir á netfangið appl@ru.is fyrir 1. júní 2011 og skulu þær innihalda starfsferilskrá, lista yfir
birtar rannsóknir, lista yfir helstu verkefni, lýsingu á kennslureynslu og upplýsingar um umsagnaraðila.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Guðni Tómasson, forseti tækni- og verkfræðideildar HR (gunnargt@ru.is).
Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Orkuskólinn REYST er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Orkuveitu Reykjavíkur. Þar er boðið upp á framhaldsnám
á sviði sjálfbærrar orku sem leiðir til MS-gráðu í orkuverkfræði, eða MS-gráðu í orkuvísindum. Námið í REYST byggir á
breiðum grunni þar sem allir nemendur taka námskeið á sviði orkutækni, jarðvísinda og orkuhagfræði áður en þeir einbeita
sér að sérsviði sínu. Lögð er rík áhersla á sterk tengsl við iðnaðinn og faglegan styrk námsins.
Tækni- og verkfræðideild HR er ein stærsta háskóladeild landsins með tæplega 1000 nemendur og um 50 akademíska
starfsmenn á mörgum sviðum verkfræði, tæknifræði, íþróttafræði og iðnfræði. Skólinn útskrifar um 2/3 þeirra sem ljúka
tækninámi á háskólastigi á Íslandi. Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni
og lífsgæði. Nemendur skólans eru um 3000 í fjórum deildum og starfa yfir 250 fastir starfsmenn við skólann auk fjölda
stundakennara.