Fréttablaðið - 14.05.2011, Side 94

Fréttablaðið - 14.05.2011, Side 94
14. maí 2011 LAUGARDAGUR50 Hvar áttu heima núna? „Í Los Angeles, Kaliforníu, Bandaríkj- unum.“ Saknarðu Íslands? „Já, stundum sakna ég Íslands. Sérstaklega á sumrin því þá fannst mér svo gaman að fara að veiða og vera úti í náttúrunni.“ Fréttirnar hafa sagt okkur að þú hafir leikið Trölla sem stal jólunum – hvað var skemmti- legast við það og hvað var erf- iðast? „Jú, það er rétt. Það sem er skemmtilegast við það er að þegar ég var lítill lásu pabbi minn og mamma söguna fyrir mig og nú segi ég sömu sögu fyrir framan hundruð þúsunda barna og fjölskyldur þeirra í Bandaríkjunum. Það sem getur verið erfitt er að ég leik sýn- inguna 15 sinnum í viku í 5 mis- munandi borgum svo ég þarf að ferðast mikið og þá er ég í burtu frá fjölskyldunni.“ Áttu mörg börn? „Ég á fjögur yndisleg börn. Bríeti, 15 ára, Elínu, 9 ára, Júlíu, 4 ára og Þorstein, 3 ára.“ Það er átak í gangi á Íslandi gegn einelti. Þú hefur lengi barist gegn einelti. Hvað getur maður gert til að stöðva einelti? „Það er frábært að heyra að það sé átak í gangi. Reyndar held ég að við eigum alltaf að vera í átaki, það er eilífðarverkefni fyrir okkur að fá að vera eins og við erum, við sjálf. Besta leiðin til þess að stöðva einelti er að segja frá því. Tala við for- eldra sína og kennarann, skóla- stjórann og þá sem eru eldri og ráða. Þá bregðast þeir við á réttan hátt og hægt er að hjálpa bæði þolandanum og gerandan- um á sama tíma. Svo getið þið líka farið á heimasíðuna regn- bogaborn.is og fleiri góðar síður og fengið upplýsingar um frekari aðstoð. Það versta sem maður gerir er að segja engum frá.” Saknarðu Glanna Glæps, Sollu Stirðu og Íþróttaálfsins? „Ég sakna þess að vinna í Latabæ og hugsa oft um það hversu skemmtilegt það var að vinna með þessu frábæra fólki. Solla og Íþróttaálfurinn eru góðir vinir mínir og ég er svo heppinn að ég þekki Glanna mjög vel líka. En svo er líka gott ráð fyrir alla sem sakna þeirra að setja bara DVD-diskinn í tækið og þá jafnar maður sig fljótt.” Ertu alltaf að æfa þig að leika? Hvernig æfirðu þig? „Besta æfingin er að vinna við að vera leikari. Hins vegar er mikil- vægt fyrir leikara að halda sér í góðu formi, stunda líkams- rækt, borða góðan mat, lesa mikið og fylgjast með því sem er að gerast í lífinu. Fara í leik- hús, horfa á bíómyndir, sér- staklega íslenskar og þær sem standa manni næst. Skemmti- legasta æfingin er að horfa á fólkið í kringum sig, unga sem a ld n a , og sjá hvernig lífið leikur áfram.” krakkar@frettabladid.is 50 það er eilífðar- verkefni fyrir okkur að fá að vera eins og við erum, við sjálf. Besta leiðin til þess að stöðva einelti er að segja frá því. Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is VERST AÐ SEGJA ENGUM FRÁ EINELTI OG STRÍÐNI Leikarann Stefán Karl Stefánsson þekkja flest börn; ef ekki sem hann sjálfan þá að minnsta kosti sem Glanna glæp. Stefán Karl býr í Bandaríkjunum, leikur þar meðal annars Trölla, á fjögur börn og saknar stundum Íslands og þess að vinna í Latabæ. Þrír menn á báti strönduðu á eyju. Í fjörunni fundu þeir flösku, drógu úr henni tapp- ann og samstundis skaust andi upp úr henni. Andinn sagði: „Þar sem þið hafið frelsað mig úr flöskunni gef ég hverjum ykkar eina ósk.“ Fyrsti maðurinn sagði: „Ég sakna konunnar minnar og barnabarnanna. Ég vildi að ég væri kominn heim.“ Púff! Hann hvarf! Næsti maður sagði: „Þetta er æðislegt! Ég vildi að ég væri kominn til Havaí og lægi í sól- baði á ströndinni með góm- sæta máltíð til að gæða mér á.“ Púff! Hann var líka horfinn! Sá þriðji leit í kringum sig og sagði: „Veistu, mér finnst svo einmanalegt hérna, ég sakna félaga minna. Ég vildi að þeir væru komnir aftur!“ Púff! WWW.CREATINGMUSIC.COM er vefsíða þar sem hægt er að búa til sína eigin tónlist með því að teikna laglínuna á skjáinn. Þar er líka hægt að hlusta á alls konar tónlist og finna fróðleik. 1. Hvað heitir Barbossa að fornafni? 2. Hvaða persónu leikur Orlando Bloom í myndunum? 3. Hver er Calypso? 4. Hver drap Jack Sparrow? 5. Hvað var pabbi Wills kallaður? 6. Hvað eru til margir sjóræningjahöfð- ingjar? 7. Hvað er Sao Feng? 8. Hvað er í kistu dauða mannsins? 9. Hvað heitir skip Davy Jones? 10. Hver vinnur kosninguna um konung sjóræningjanna? Spurningar: Sjóræningjar á Karíbahafi Svör: 1. Hektor 2. Will Turner 3. Tia Dalma 4. Elísabet 5. Bootstrap Bill 6. Níu 7. Sjóræningjahöfðingi 8. Hjarta Davy Jones 9. Hollendingurinn fljúgandi 10. Elísabet Hákon Svavarsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali Hlunnavogur 10-rishæð Falleg 71,2 fm 3ja herb. rishæð með suðvestursvölum. Sameiginlegur inngangur með miðhæð. Tvö rúmgóð svefnherbergi, úr hjónaherbergi er gengið út á suðvestursvalir. Stofan er ágætlega rúmgóð. Flísalagt eldhús með fárra ára gamalli innréttingu og borðkrók, búr inn af eldhúsi undir súð. Baðherbergi endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, baðkar innrétting og gluggi á baði. Búið er að endurnýja rafmagnstöflu í íbúð, parket á öllum gólfum nema baði og eldhúsi, ofnalagnir og ofnakranar endurnýjaðar, stallað járn á þaki endurnýjað. Íbúðin er í steinsteyptu þríbýlishúsi, staðsett innarlega í botnlanga, frábær staðsetning. Verð 21,5 millj. Verið velkomin á sunnudag milli kl 12-13. Opið hús sunnudaginn 815. maí frá kl 17-18
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.