Fréttablaðið - 14.05.2011, Qupperneq 102
14. maí 2011 LAUGARDAGUR58
folk@frettabladid.is
Mike Myers, þekktastur fyrir
leik sinn í Austin Powers-mynd-
unum, verður pabbi í fyrsta sinn
á þessu ári. Eiginkona hans,
Kelly Tisdale, á von á sér. Myers
og Tisdale gengu að eiga hvort
annað við leynilega athöfn í New
York og Myers hefur alla tíð
verið ákaflega annt um einkalíf
sitt. Talsmaður hans staðfesti þó
þungunina í viðtali við New York
Post. Myers og Tisdale hafa verið
saman frá því 2006 en þá var
gamanleikarinn
nýskilinn við
handritshöf-
undinn Robin
Ruzan eftir
12 ára hjóna-
band.
Myers pabbi
í fyrsta sinn
Angelina Jolie lenti í miklum
erfiðleikum þegar hún var að tala
inn á teiknimyndina Kung Fu
Panda 2. Jolie segist aldrei hafa
þolað eigin rödd og prófaði því
alls konar hreima og raddir. „Ég
prófaði að tala með Suðurríkja-
hreim, breskum og eiginlega alla
hreima sem ég kunni. Þetta end-
aði með því að framleiðendurnir
komu að máli við mig, sögðu mér
að tala eðlilega og hætta með alla
þessa fáranlegu hreima.“
Hræðileg rödd Jolie
VOND RÖDD Angelina Jolie kveðst ekki
þola eigin rödd og átti erfitt með að tala
inn á Kung Fu Panda 2.
Matthew Perry, best þekktur fyrir
leik sinn í gamanþáttaröðinni Fri-
ends, hefur ákveðið að taka sér frí
frá skemmtanaiðnaðinum til að ná
betri tökum á edrúmennsku sinni.
Perry hefur lengi átt í erfiðleikum
með áfengis- og verkjalyfjafíkn
sína og fór meðal annars tvíveg-
is í meðferð á meðan á velgengni
Friends stóð.
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum
telja reyndar margir hverjir að
þetta sjálfskipaða frí komi ekki til
af góðu. Nýjasta gamanþáttaröð
Perry, Mr.Sunshine, hefur feng-
ið skelfilega dóma vestanhafs og
lítið áhorf og búast raunar flestir
við því að þættirnir verði slegnir
af. Perry hefur því ekki enn náð
að finna sig eftir að Friends-þætt-
irnir runnu sitt skeið.
Perry tekur sér frí
ÆTLAR AÐ VERA EDRÚ Matthew Perry
hyggst taka sér frí frá skemmtanabrans-
anum til að halda sér edrú.
BARNALUKKA Mike
Myers er að verða pabbi
í fyrsta sinn en eiginkona
hans, Kelly Tisdale, á von
á sér seinna á þessu ári.
Samgönguþing 2011
Samgönguráð stendur fyrir samgönguþingi í Súlnasalnum á Radisson
Hótel Sögu fimmtudaginn 19. maí kl. 13-17. Til samgönguþings er
öllum helstu hagsmunaaðilum samgöngumála boðið og þar er gerð
grein fyrir fyrirhuguðum forsendum og markmiðum áætlunarinnar.
Inngangur
13:00 Setning samgönguþings: Ögmundur Jónasson,
innanríkisráðherra
13:10 Samgönguáætlun 2011-2022 – inngangur: Dagur B.
Eggertsson, formaður samgönguráðs
Samgönguáætlun 2011-2022 – Drög að stefnumótun
13:30 Meginmarkmið, stefnumið og áherslur 2011-2022:
Friðfinnur Skaftason og Þorsteinn R. Hermannsson,
verkfræðingar í innanríkisráðuneyti
14:15 Umhverfismat samgönguáætlunar 2011-2022: Mannvit og
VSÓ-Ráðgjöf
14:35 Samfélagsleg áhrif samgangna: Þóroddur Bjarnason,
Háskólanum á Akureyri
14:55 Samþætting samgangna, skipulags og heilsu: Ásdís Hlökk
Theodórsdóttir, Háskólanum í Reykjavík
15:15 Kaffihlé
Samþætting áætlana
15:40 Landsskipulagsstefna: Stefán Thors, forstjóri
Skipulagsstofnunar
15:55 Ísland 2020 – Sóknaráætlanir landshluta: Héðinn
Unnsteinsson, forsætisráðuneyti
Umræður og fyrirspurnir
16:15 Samgönguáætlun 2011-2022 – Næstu skref: Dagur B.
Eggertsson, formaður samgönguráðs
16:20 Pallborðsumræður samgönguráð
16:50 Fundarslit
17:00 Léttar veitingar
Fundarstjóri verður Halla Gunnarsdóttir,
aðstoðarmaður innanríkisráðherra.
Tækifæri verður til spurninga á milli erinda.
Þeir sem hyggjast sitja þingið eru beðnir að skrá sig með tilkynningu á
netfangið kristin.hjalmarsdottir@irr.is eigi síðar en þriðjudaginn 17. maí.
Bræðurnir Gunnlaugur
og Ólafur Egill Egilssynir
stíga í fyrsta sinn saman á
svið í leik- og dansverkinu
Klúbburinn. Aðeins eitt og
hálft ár skilur bræðurna að.
Bræðurnir Gunnlaugur og Ólafur
Egill Egilssynir stíga í fyrsta sinn
saman á svið í leik- og dansverkinu
Klúbburinn sem verður frumsýnt
í Borgarleikhúsinu á Listahátíð í
Reykjavík 3. júní. Leikstjórn og
dans eru eftir Gunnlaug og með-
limi Klúbbsins, þá Ólaf Egil, Björn
Borko Kristjánsson, Björn Thors,
Huginn Þór Arason og Ingvar E.
Sigurðsson.
„Við erum í mismunandi list-
greinum en þær eiga margt sam-
eiginlegt,“ segir Gunnlaugur um
samstarf þeirra bræðra. Hann er
dansari við konunglega ballettinn
í Stokkhólmi á meðan Ólafur Egill
er leikari. Aðeins eitt og hálft ár
skilur bræðurna að og er Ólafur
sá eldri.
Aðspurður segir Gunnlaugur að
samstarf þeirra bræðra á æfing-
um hafi verið gott og engar erjur
átt sér stað. „Maður verður að
vera fagmannlegur þegar maður
stígur inn í sjálft æfingaferlið. Þá
verður maður að sleppa þessum
týpísku systkinaerjum, ég gæti
ekki gert hinum Klúbbmeðlimun-
um það. Enda erum við mjög kær-
leiksríkir bræður og það er ekki
mikið um ágreining okkar á milli,“
segir hann.
Ólafur Egill segir það frá-
bært að standa á sviði með bróð-
ur sínum Gunnlaugi í fyrsta sinn.
„Við vorum samrýmdir bræður og
lékum okkur oft saman. Þetta er
eðlilegt framhald af því og bara
mjög huggulegt.“ Hann viðurkenn-
ir að litli bróðir sé duglegur við að
skipa honum fyrir á æfingum en
það sé bara allt í lagi. „Hann er
búinn að vera að dansa hjá Kon-
unglega sænska ballettinum og
fór út til að læra klassískan ballett
þegar hann var sautján ára, þannig
að hann hefur járnaga.“
Klúbburinn fjallar um karla-
klúbb og hóp listamanna sem elur
með sér draum um að afhjúpa
æðsta leyndarmál listarinnar.
Gunnlaugur segir að flestir leikar-
arnir hafi enga reynslu af dans-
verkum en allir hafi þeir sína nálg-
un og eigi auðvelt með líkamlega
tjáningu, þar á meðal bróðir hans.
„Það er líka gaman að vinna með
hreyfingar sem eru kannski ekki
skólaðar. Við erum öll með okkar
hreyfingar og ef maður reynir
að fá þær út geta þær verið jafn-
spennandi og eitthvað sem er lært
og búið að vinna með í mörg ár,“
segir hann.
Klúbburinn verður sýndur 3. og
4. júní á Listahátíð í Reykjavík og
vikuna á eftir verða fjórar sýning-
ar til viðbótar. freyr@frettabladid.is
Saman á sviði í fyrsta sinn
SAMRÝMDIR BRÆÐUR Bræðurnir Gunnlaugur og Ólafur Egill Egilssynir stíga saman á svið í fyrsta sinn í verkinu Klúbburinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Söngkonan Adele er að slá í gegn í Bandaríkjunum. Plata hennar, 21, er á toppi
Billboard-listans og lagið Rolling in the Deep er á toppi lagalista Billboard.1