Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1990, Síða 5

Faxi - 01.12.1990, Síða 5
Atvinnumál Oddur Einarsson fyrrv. bæjarstjóri Mér er ætlað í þessu ágripi mínu að fjalla um atvinnumál. Ég segi ágripi því að tímans vegna verður ekki unnt að gera mikið meira en að drepa á helstu atriði í þessum viða- mikla málaflokki Atvinnumál og gott atvinnuástand er undirstaða alls og þess vegna einn allra mikil- vægasti málaflokkurinn sem sveit- arfélög fjalla um. Á því byggist rekstur sveitarfélaga að íbúarnir liafi sem mesta og besta atvinnu og viðgangur fyrirtækja sé góður. Ég er ekki og hef aldrei verið tals- maður opinbers rekstrar og það er trú mín að hann eigi að vera sem allra minnstur, en einkaframtak eigi að fá að njóta sín. Eftir sem áður tel ég að opinberir aðilar, ríki og sveit- arfélög eigi að hafa afskipti af at- vinnumálum með því að skapa at- vinnurekstri þau almennu rekstrar- skilyrði að hann fái notið sín sem best. Skilyrði til atvinnurekstrar hafa verið vond á Islandi nú um fjölda ára. Þau hafa verið misjafnlega vond frá einum tíma til annars en þau hafa verið vond. Stöðugleiki er undirstaða þess að atvinnurekstur geti þrifist eðlilega. Þennan stöðug- leika hefur algerlega skort hér á landi og þess vegna hefur enginn at- vinnurekstur getað þróast eðlilega. Rekstrargrundvöllur hefur verið svo ótryggur að segja má að stjórnend- ur fyrirtækja hafi þurft að láta hverj- um degi nægja sína þjáningu, þeir vissu einfaldlega aldrei hvað morg- undagurinn bar í skauti sínu. Sá grundvöllur sem þeir byggðu á í dag gat verið horfinn eða gjörbreyttur á morgun. Við slíkar aðstæður eru áætlanir dagsins í dag orðnar úrelt- ar á morgun og það tekur því ekki að gera neinar áætlanir. Þegar slíkt ástand er viðvarandi ár eftir ár þá letur það athafnamenn til fram- kvæmda og það letur fjármagnseig- endur til að leggja fé í fyrirtæki. Nú á síðustu misserum eru viss teikn á lofti um að þetta sé að breyt- ast og það er vel. Fari svo að hér á landi takist að skapa þann stöðugleika sem verið hefur i nágrannalöndum okkar þá skapast í fyrsta sinn um langan tíma skilyrði til að gera áætlanir og hefja alvöru þróun í atvinnurekstri. Þessa sér þegar stað t.d. með auknum árangri liins almenna fjármagnseig- enda á að leggja fé sitt í atvinnufyr- irtæki. Þáttur sveitarfélaganna í þessari þróun eins og ég sé hann fyrir mér felst einkum i því að skapa grund- völl fyrir stofnun nýrra fyrirtækja og þróun þeirra sem fyrir eru. Þetta gera sveitarfélögin einkum með þvi að hafa tiltækar byggingalóðir og annað það sem þarf til að fyrirtæki FRÁ AÐALFUNDI f VOGUM 14. - 15. SEPT. 1990 Sveitarstjórnarmenn og fjölmargir gestir sátu aöalfund SSS sem ad þessu sinni var haldinn í Stóru-Vogaskóla í Vogum. Formadur stjórnar, Vilhjálmur Gríms- son, flutti skýrslu stjórnarinnar og kom hann víöa viö. Minntist hann í upphafi á fjárhagsnefnd SSS sem hefði hafiö störf á kjörtímabilinu og starfaö vel. Þá minntist hann á hina nýju verkaskiptingarlög ríkis- og sveitarfélaga sem heföu haft miklar breytingar í för meö sér á starfi SSS. Atvinnumál, m.a. álver og feröaþjónusta, almenningssamgöngur um svœöiö, skoðanakönnun um sameiningu voru síöan meöal þeirra mála sem Vilhjálmur fjallaöi um í sinni ítarlegu skýrslu. Nokkur athyglisverö erindi voru flutt á þinginu og birtast tvö þeirra hér. geti komið yfir sig húsnæði og hafið rekstur. Upplýsingaöflunin og miðl- un þeirra er sá þáttur sem ég vil gera að sérstöku umræðuefni. Öll sveitarfélögin hér á Suðurneskjum hafa starfandi atvinnumálanefndir, formenn þeirra mynda síðan at- vinnumálanefnd Suðurnesja og auk þess er starfandi sérstakt atvinnu- þróunarfélag. Þessa krafta þarf alla að sameina. Til þarf að vera einn að- ili sem hefur undir höndum upplýs- ingar um öll þau atriði sem miðla þarf til þeirra sem hugsanlega vildu setja sig niður á Suðurnesjum með nýjan atvinnurekstur. Þessi aðili þarf að geta miðlað upplýsingum um sveitarfélögin almennt, skipulag þeirra, íbúafjölda, atvinnusam- setningu og stærð og fjölda fyrir- tækja sem fyrir eru í hverri grein, stærð markaðar, samgöngumál á sjó og landi, lóðaframboð í hverju sveitarfélagi, möguleika á orku- kaupum, s.s. raforku og heitu vatni og stofnkostnaði vegna þessa og fleiri atriða s.s. opinberum gjöldum. Einnig þarf að vera unnt að gera grein fyrir skipulagi verkalýðsmála, fjölda verkamanna og iðnaðar- manna í hverri iðngrein og svo framvegis. í stuttu máli þurfa að vera til á einum stað allar þær upp- lýsingar sem sá sem ætlar að hefja atvinnurekstur þarf á að halda. En þetta er ekki nóg, ekki dugar að safna að sér öllum nauðsynlegum upplýsingum og sitja síðan og biða eftir að það myndist biðröð við dyrnar. Það þarf að hefja skipulagða kynningarstarfsemi, það þarf að selja Suðurnesin og það sem þau hafa upp á að bjóða. Þetta gerðu sveitarfélögin með eftirminnilegum hætti síðasta vetur þegar ATLANTAL-málið komst á dagskrá. Þá var myndaður sameig- inlegur starfshópur sem fékk það verkefni að stuðla að því að þetta risafyrirtæki yrði staðsett á Suður- nesjum, án tillits til þess hvar á Suðurnesjum það yrði. I dag benda allar líkur til þess að starfshópnum hafi tekist þetta ætlunarverk sitt og þá er líklega í höfn eitt stærsta hags- munamál sem við Suðurnesjamenn höfum augum litið. Jafnframt sýnir það þá hvað hægt er að gera með samstilltu átaki og með faglegum vinnubrögðum, og þar er ég alls ekki að hrósa sjálfum mér, síður en svo, þar eiga fyrst og fremst skilið hrós þær sveitarstjórnir sem ákváðu að takast verkefnið á hendur sam- eiginlega, því næst eiga skilið hrós þeir sem mynda þennan starfshóp, og síðast en ekki síst þeir sérfræð- ingar sem hópurinn fékk til liðs við sig við þá fagvinnu sem vinna þurfti til að málið fengi framgang. Ég sagði að að öllum líkindum væri þetta mál í höfn, en við skulum at- huga eitt, ef við fáum þetta fyrirtæki til okkar. þá skyldum við heldur bet- FAXI 197
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.