Búfræðingurinn - 01.01.1939, Síða 165
Fræverzltinin Flora
Anstnrstræti 7, Iteykjavík
Sívavaiiili sala á FMHM -frjri cr
söiiiiuii þcss að stofninn cr giiður
Frá Grænmetisverzlun
ríkisíns
Til þess aö kartöflur þær, sem Grænmetisverzlun ríkisins kaupir,
verði metnar sem góð og gild söluvara, þurfa þær aö uppfylla
eftirfarandi skilyrði:
1. Kartöflurnar verða að vera þurrar og hreinar. (Ath.: Aldrei má
hreinsa kartöflur með því að þvo þær eða bleyta.)
2. Kartöflurnar eiga að vera sem jafnastar að útliti og stærð.
Allar óvenjulega stórar, vanskapaöar, grænar og skaddaðar
kartöflur verða að vera skildar frá. Sömuleiðis frosnar kartöflur
og sýktar.
3. Allt smælki þarf að vera skilið frá, þannig að kartöflur, sem
eru minna en 35 millimetrar í þvermál, nemi alls ekki meira
en um 5% af vörunni, og að engar 'kartöflur séu minni en 25
millimetrar í þvermál,
4. Kartöflurnar eiga að afhendast í 50 kg pokum, sem verða aö
vera þurrir, heilir og þrifalegir. Skal vera vandlega saumað
fyrir pokana og gerð á horn til að taka í, þegar þeir eru
handleiknir.
5. Seljendur verða að láta fylgja kartöflunum greinilegar upp-
lýsingar um hvaða afbrigði (tegund) þær séu. Ef um fleiri
afbrigði er að ræða í sömu sendingu, má ekki blanda þeim
saman. Hvert afbrigði verður að vera vel sérmerkt, bæöi með
tegundarnafni og nafni seljanda, svo hægt sé að greina á
milli þeirra, án þess að opna pokana.
6. Auk þess verða seljendur að gefa Grænmetisverzlun rikisins
aðrar upplýsingar viðvíkjandi vörunni, eftir því sem óskað er,
og verða má til þess að upplýsa um heilbrigði kartaflanna,
gæði og geymsluþol.