Búfræðingurinn - 01.01.1939, Page 31

Búfræðingurinn - 01.01.1939, Page 31
BÚFRÆÐINGURINN 27 sumri, meðan gagngerðri hirðingu verður komið við, en þegar líður á sumar og matjurtirnar hafa náð ákveðnum vexti, er það ógerlegt og í grænfóðri og korni þó miklu örðugra en í görðunum. 3. Eyðing arfafrœsins. Þar sem arfinn tímgast aðeins með fræi, liggur það í augum uppi, að eyðing fræsins er sama sem eyðing arfans. Arfafræið er harðgert og þolir sitt af hverju og virðist því ekki auðgert að eyða því. Því er líka þannig varið, að eina örugga ráðið, til að eyðileggja arfafræið, er að stuðla að því, að það geti spírað og eyðileggja síðan fræ- plönturnar meðan þær eru viðkvæmastar fyrir. Þetta er auð- veldast á þeim tímum, sem flögin og garðarnir eru ósánir — haust og vor. Þegar uppskerunni er lokið á haustin, liggur venjulega ógrynni af arfafræi á yfirborði jarðvegsins í flögum og görð- um, þar sem arfinn á annað borð er búinn að ná fótfestu. Sé jarðvegurinn látinn óhreyfður að haustinu, fær þetta fræ ekki skilyrði til spírunar, en liggur óskert á yfirborðinu g tekur fyrst til starfa, þegar jarðvinnslu er lokið næsta vor. Sé plægt að haustinu, fer meiri partur arfafræsins svo djúpt í jörð, að það fær ekki skilyrði til spírunar, en geym- ist þar og bíður þess, að endurtekin jarðvinnsla flytji það aftur upp í yfirborðið, þar sem spírunarskilyrði eru fyrir hendi. Þriðja aðferðin er að gefa arfafræinu sem hagkvæm- ust skilyrði til spírunar, strax að lokinni uppskeru á haustin, en það er hægt með því að herfa flögin og garðana, þegar búið er að skera upp, með diskaherfi eða rótherfi, svo arfa- plöntur og fræ hyljist mold og fræið geti strax byrjað að spíra. Sé tíð hagstæð fram eftir haustinu, getur mikið af arfafræinu spírað, en fræplönturnar ná engum verulegum þroska, geta að vísu lifað af veturinn, en eyðileggjast við vorvinnsluna. Á þennan hátt er því hægt að eyða mjög miklu af hinni árlegu viðkomu arfans. Vitaniega spírar aldrei allt arfafræið að haustinu og við vorvinnsluna fær fræ, sem áður hefir legið of djúpt í moldinni, spírunarskilyrði, því arfa- fræið spírar tæplega nokkuð að ráði, ef það liggur dýpra en 5—8 cm. í moldinni. Það er því áríðandi að stuðla að spírun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Búfræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búfræðingurinn
https://timarit.is/publication/696

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.