Búfræðingurinn - 01.01.1939, Side 32
28
BÚFRÆÐIN GURINN
arfafræsins í þessu efsta lagi moldarinnar og reyna aö eyði-
leggja spírurnar, eða fræplönturnar, áður en sáð er í flögin
og garðana.
Flög, sem á að sá í grænfóðri eða grasfræi, er bezt að full-
vinna undir sáningu svo fljótt sem tíð leyfir á vorin, láta
síðan flögin bíða fullunnin í 2—3 vikur, áður en sáð er í
þau, og nota þann tíma til að herfa yfirborðið rækilega, helzt
tvisvar sinnum, með illgresisherfi, og gæta þess að fram-
kvæma þessa herfingu i sólskini. Á þennan hátt er hægt að
eyðileggja ógrynni af arfa, áður en sáð er í flögin og skapa
nytjajurtunum aðstöðu til að hafa yfirhöndina í samkeppn-
inni við hann.
í kartöflugörðum má nota þessa aðferð eftir að búið er
að setja kartöflurnar. Venjulega líða um 3 vikur frá því kart-
öflurnar eru settar og þar til þær koma upp. Þennan tíma
má nota til að herfa tvisvar yfir garðana með illgresisherfi,
t. d. hálfum mánuði eftir að sett er í þá og svo rétt um það
bil, þegar kartöflugrösin eru að byrja að gægjast upp úr
moldinni. Herfingin á að framkvæmast í sólskini, og þrátt
fyrir það, þótt lítið beri á arfa, því á þurru og hrjúfu yfir-
borði garðanna sjást arfafræplönturnar aðeins með ná-
kvæmri athugun, en þegar herfingunni er lokið, má oft sjá,
að moldin er alþakin afar fínum ljósleitum þráðum, sem
eru arfaspírurnar. Á þessu stigi er arfinn svo viðkvæmur,
að hann þolir varla meira en 2—3 klukkustunda sólskin.
Ekki þarf að óttast að herfingin skemmi kartöflurnar. 111-
gresisherfin eru létt og vinna grunnt, og þótt tindarnir snerti
einstaka kartöfluspíru, þá kemur það ekki að sök.
Þótt ég hér hafi aðallega rætt um haust- og vorhirðingu
sáðlanda, á þeim tíma, sem þau eru ósáin, má ekki skilja
orð mín þannig, að þar með séu önnur alþekkt ráð, sem
venja er að nota í baráttunni við arfann, orðin óþörf, en sá
þáttur í baráttunni við arfann, sem ég hefi rætt um hér, má
teljast nýmæli, eða hefir að minnsta kosti verið alltof lítill
gaumur gefinn, en hann er svo auöveldur og kostnaðarlítill,
að sjálfsagt er að reyna hann, og ég hefi nokkra reynslu
fyrir því, að á þennan hátt er hægt að draga mjög verulega