Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 22
20
BÚFRÆÐINGURINN
til áburðar og iðnaðar, og að þessu ári má rekja byrjunina að
stórframleiðslu á kalísöltum, sem notuð voru til iðnaðar og
áburðar víða um heim. Það var Þýzkaland, sem allt fram undir
1920 var einasti framleiðandinn á kalísöltum. í Elsass, sem var
innan þýzka ríkisins þangað til eftir ófriðinn 1914 til ’ 18, voru
kalínámur, sem Frakkar ráku eftir styrjöldina.
Á Spáni og í Póllandi eru kalínámur, sem hafa verið nytjaðar
síðan 1920. í Bandaríkjum Norður-Ameríku fannst mikið af
kalísöltum árið 1921. í Rússlandi fundust kalínámur skammt
frá Úralfjöllunum, og eru þær ásamt öðrum kalínámum í Rúss-
landi taldar hafa um 4/5 af því kalí, sem fundið er í veröldinni.
Áður fyrr var nokkuð notað af kalísöltum til áburðar, beint
úr námunum. Söltin vont aðeins mulin. En á þann hátt var
ekki hægt að fá áburð nema með lágu kalímagni, sem ekki
borgaði sig að flytja nerna stuttar vegalengdir. Oft var líka of-
mikið af klór í þessum sölturn. Þau kalísölt, sem notuð voru á
þennan hátt, voru aðallega karnalit og kainit. í karnalit eru
9.8% af KoO og um 37% af klór. Karnalit er nú mest notað til
framleiðslu á sterkum kalíáburði. í kainit eru 12% af KaO og
30% af klór. Það er enn notað til áburðar sums staðar í kring-
um kalínámurnar.
Sylvin og Sylvinit eru ekki notaðar til áburðar, en til fram-
leiðslu á kalíáburði.
Kalísölt þau, sem grafin eru í námunum og notuð eru til
framleiðslu á kalíáburði, eru leyst upp í heitu saltvatni, sem
er þannig samsett, að það leysir aðallega upp kalíum-klór. Þeg-
ar upplausnin er kæld botnsezt kalíumklórið, og í því eru að
minnsta kosti 50% af KoO. Saman við þetta salt er svo bland-
að muldum kalísöltum beint frá námunum, og fæst þá áburð-
ur, sem í er minna af kalí. Aðallega hefur verið framleiddur
kalíáburður með 40% KoO. Áður fyrr var kalímagnið minna
í áburðinum eða 37%, en fleiri tegundir eru framleiddar með
meiru eða minna kalímagni. Síðustu árin hefur verið fluttur
hingað 60% kalíáburður.
í 40% kalí eru 33.2% af málminum kalí, í vatnsleysanlegum
samböndum og af klór er um 44%.