Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 24
22
BÚ F RÆÐIN G U RIN N
48% aí fosforsýru P205. í ammonphos B eru ltí.5% af köfn-
unarefni og 20% af fosforsýru (P2Or,)- Köfnunarefni þessara
áburðartegunda er allt bundið sem ammoníak. Þær eru mó-
gráar að lit, og það cr gott að dreifa þcim.
í I'ýzkalandi var búinn til áburður, sem nefndur var launaphos. í honum var
19.5% af köfnunarefni og 20% af fosfórsýru (1,,)05). Þessi áburður var fram-
leiddur með því að blanda saman einsúru ammoníumfosfati og atnmoníumsúl-
fati.
Köfnunarefniskalkfosfat er þýzkur áburður, scm samanstendur af ammoníum-
losfati og ammoníumsúlfati, í lionum eru 16% af köfnunarefni og svipað af
fosfórsýru.
2. Köfnunarefnis- og kaliáburður.
Kalísaltpétur (kalíumnitrat) finnst á nokkrum stöðum í náttúrunni, sérstak-
lega í Asíu og Chile í Suður-Ameríku. En kalísaltpétur er líka framleiddur efna-
fræðilega, og eru aðallega nolaðar við það tvær aðferðir. f fyrsla lagi með því
að láta kalsíumnitrat og kalíumsúlfat saman, þá verður sú efnabreyting, að það
myndast kalíumnitrat og kalsíumsúlfat. Þessi efni eru síðan aðskilin.
í öðru lagi er sylvinit (kalísalt) látið verða fyrir áhrifum köfnunarefnisyfir-
sýrings. Framleiðsla á kalísaltpctri til áburðar hefur ekki vcrið mikil. En í þeim
kalí-saltpétri, sem hefur vcrið notaður til áburðar hafa verið 13% af köfnunar-
efni og 37% kalí (K).
Kalíammoníaksaltpétur cr þýzkur áburður, sem búinn cr til mcð því að
blanda saman kalíumklóríð og ammoníumnitrati, þá fæst kornótlur áburður,
sem í er 15% af köfnunarefni og 30% af kalí (K..O). Þcssi áburður kvað ekki
vera mikið vatnssjúgandi, og það cr gott að dreifa honum. Nilroptasse er franskt
nafn á sama áburði.
3. Köjnunarefnis-fosfórsýru-kálíáburður (algildur áburður).
Aburðarefni, sem í eru öll þrjú aðalnæringarefni jurtanna,
koma fyrir með þrennu móti:
1. í jarðlögum,
2. í úrgangsefnum,
3. í tilbúnum áburðarefnum.
Orðið algildur áburður getur oft verið villandi vegna þess,
að það er ekki víst, að magn hinna einstöku jurtanæringarefna
sén í þeim hlutföllum í áburðinum, sem bezt lientar fyrir jurt-
irnar. Oft er svo lítið af éinhverju áburðarefninu í hlutfalli við