Búfræðingurinn - 01.01.1946, Page 25
BÚFRÆÐINGURINN
23
þarfir jurtanna á viðkomandi efni, að það er líkast því, að verið
sé með tvígildan áburð.
a. Gúnno. Það er fuglasaur, senr fannst á eyjum í Kyrrahafi
vestan við ríkið Perti í Suður-Ameríku. Á eyjum þessum er
þurrviðrasamt og mikið fuglavarp. Saur fuglanna hefur safnazt
þarna saman í margar aldir og myndað þykk jarðlög. Frum-
byggjar Suður-Ameríku, Inkarnir, höfðu notað gtianó til á-
burðar löngu áður en Evrópumenn komu þangað.
Eins og áður er getið, var gúanó flutt til Evrópu fyrst árið
1810, en reglulegur útflutningur af þessum áburði byrjaði ekki
lyrr en 1840, og árið 1870 nær innflutningur af gúanó til Ev-
r<)pu hámarki. Það ár var flutt þangað 522 þúsund tonn. En þá
‘óru námurnar að tæmast, og í nokkra áratugi var ekki fram-
'eitt meira en 50 þúsund tonn af gúanó árlega. Nti hefur aftur
tekizt að auka framleiðsluna í 150 þúsund tonn árlega, og er
það aðallega notað í Perú.
Elnasamsetning Perú-gúanós var nokkuð breytileg, köfnun-
arefni frá 8 til 15%, fosfór frá 4 til 5% og kalí 2 til 4%.
Einnig var til gúanó, sem ekki var í neitt teljandi af köfn-
unarefni, en aðallega kalsíumfosfat. Það var á tímabili eftirsótt
til fTamleiðslu á superfosfati, en námurnar tæmdust fljótlega.
Fiskgúanó. Þessi áburður er búinn til úr fiskiúrgangi frá
bskniðursuðu, saltfiskframleiðslu, og tilbúningi á fiskiolíu.
l'ranileiðsla þessi byrjaði í Noregi, en hefur nú verið tekin upp
1 Bandaríkjum Norður-Ameríku og Japan. Þessar áburðarteg-
nndir eru nokkuð breytilegar að efnasamsetningu. Þó liefur
venð framleitt í Noregi úr þorskúrgangi áburður, sem hefur
'eynzt nokkuð jafn að gæðum. í honum hafa verið 8 til 12% af
böfnunarefni, 5 til (5% af fosfór og 0.3% af kalí (K).
Arin fyrir styrjöldina var framleitt af þessum áburði um 15
þúsund tonn árlega. Síldargúanó fæst úr síldarúrgangi. í þeim
■íburði er oft um 10% af matarsalti, af köfnunarefni 9 til 10%,
'osfór 3% og kalí 7%. Sums staðar er framleiddur áburður úr
kÍöturgangi og úrgangi frá sykurverksmiðjum o. fl.
b. Silclar- og fiskimjöl. Oft lreyrist talað um það, að nota beri
S|ldar- og fiskimjöl til áburðar í staðinn fyrir tilbúinn áburð.