Búfræðingurinn - 01.01.1946, Page 42
-10
BÚFRÆÐINGURINN
gott land, þá sé hagkvæmara að bera nokkurn liluta áburðarins
á milli slátta, heldur en að bera hann allan á að vorinu.
Þess er áður getið, að tröllamjöl lrafi verið notað til eyðingar
á arfa í kartöflugörðum og mosa í túnum. Notkun þess við arfa-
eyðingu hefur farið vaxandi á seinni árum. Eftir tilraunum að
dæma, sem gerðar voru á Sámsstöðum árin 1942 til 1944 með
notkun tröllamjöls til arfaeyðingar í kartöflugörðum, hefur
reynzt bezt að dreifa því í kartöflugarða 12 til 15 dögum eftir
setningu kartaflanna og ekki síðar en 6 til 10 dögum áður en
kartöflurnar koma upp.
Bezt er talið að dreila tröllamjölinu í logni á döggvota jörð-
ina, snemma morguns, áður en sólin kemur upp. Því er hand-
dreift eins jafnt og auðið er. Sá, sem dreifir tröllamjöli, þarf að
smyrja hendur og andlit feiti, því að tröllamjölið er eitrað, og
er hættulegt að fá það í sár og sprungur.
Hvað mikið þarf að bera á ha af tröllamjöli, svo arfaeyðingin
verði það mikil, að ekki þurfi að skafa garðinn, fer aðallega
eftir því, hvað mikið af arfafræjum er í því landi, sem borið
er á.
í tilraununum á Sámsstöðum hefur fengizt góður árangur af
250 til 400 kg af tröllamjöli á lia. í mjög arfamiklum görðum
mun þurfa að bera á meira af tröllamjöli en þetta, allt upp í
600 kg á ha.
2. Fosfórsýruáburður.
Á árunum 1925 til 1929 var gerð tilraun í gróðrarstöðinni í
Reykjavík með haustbreitt og vorbreitt superfosfat.
Niðurstöður urðu þessar:
Haustbrcitt Vorbreitt
Taða...................... 4977 5020
Há ....................... 2926 2797
Alls: 7903 78T7
Haustbreiðslan hefur gefið örlítið meiri uppskeru cn vor-
breiðslan, en munurinn er svo lítll, að það virðist vera nokkuð
sama, hvort superfosfat er borið á að haustinu eða snemma vors.
I Danmörku hefur vorbreitt superfosfat reynzt betur en haust-
breitt.