Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 46
44
BÚFRÆÐINGURINN
ammonsaltpéturs. Saman við bráðið ammoníumnitrat er sett
kalsíumkarbónat, eftir réglunni ætti ammoníakið að tapast, en
með vissum aðferðum er liægt að hindra það. Þessa er hér getið
vegna þess, að menn mundu ef til vill freistast til að blanda
saman kalkríkum- og ammoníaks-áburðarefnum, einmitt með
kalkammonsaltpétur í huga. En slíkt er óráðlegt, rneira að segja
má ekki blanda kalkríkum áburði saman við kalkammonsalt-
pétur. Það veldur tapi á köfnunarefni.
Blöndun sumra áburðartegunda verkar þannig að áburðar-
elnin verða torleystari. Þetta á sér stað þegar superfosfati og
Thomasfosfati er blandað sarnan. Fosforsýran verður torleyst-
ari og sama verður með köfnunarefnið, ef kalkköfnunarefni og
superfosfati er blandað saman, þá verður köfnunarefnið tor-
leystara.
í öðrurn tilfellum hefur blöndun áburðartegunda óheppileg
áhrif á dreifingareiginleika áburðarins. Þannig er blanda af
kalksaltpétri og 40% kalíáburði mjög vatnssjúgandi og hleyp-
ur fljótt í köggla eða jafnvel rennur. Sama er að segja um
blöndu af superfosfati og þvagefni, hún rennur fljótt. Blanda
af kalksaltpétri og brennisteinssúru ammoníaki hleypur fljót-
lega í hellu vegna þess, að það myndast gips Jregar þessi efni
koma saman. Svipuð storknun verður þegar lútkennd sambönd
af kalsíum eða magníum blandast með áburðarefnum, sem í
er klór. Stundum verða þessar breytingar í áburðinum ekki
fyrr en eftir nokkurn tíma, að blöndun hefur átt sér stað, og er
hægt í þeim tilfellum að nota blöndurnar nýjar.
í sambandi við þetta blöndunarspursmál, skal minnst á
geymslu áburðarins. Það er oft, að áburðurinn er keyptur
nokkru áður en hægt er að dreifa honum, jafnvel nokkrum
mánuðum fyrir notkunartímann. Flestar tegundir tilbúins
áburðar eru vatnssjúgandi. Það er því sjálfsagt að geyma áburð-
inn í eins þurri geymslu og frekast er unt. Ef raki er í geymsl-
unni dregur áburðurinn til sín vatn úr loftinu, við það eykst
rúmfang hans, stundum það mikið að áburðarpokarnir rifna.
Ef í áburðinum er brennt kalk, leskjast það af rakanum og það
hitnar í áburðinum.
F.kki eru til dæmi um það, að slíkur hiti hafi getað valdið