Búfræðingurinn - 01.01.1946, Blaðsíða 58
56
BÚFRÆÐINGURINN
linþroska fræ getur gefið góða uppskeru, einkum ef ekki er
stefnt að með ræktuninni að leiða það til fræþroska aftur. Við
grasfrærækt er oft nauðsynlegt að taka fræið áður en fullþrosk-
unarstiginu er náð, til þess að forðast frætap við uppskeruna.
2. Geymsla frœsins. Vel þroskað fræ þolir betur geymslu án
þess að tapa grómagninu en illa þroskað, og er þá áríðandi
að það sé vel þurrt. Sumar frætegundir geta gróið strax eftir
fullþroskun, en venjulegt er að nokkur tími líði frá alþroskun
og þar til það er liæft til að gróa. Bezt er að nota fræið til útsæð-
is eftir ddtima þess, því að allt fræ rýrnar í grómagni við margra
ára geymslu. Venjulega er tryggast að nota það fræ til útsæðis,
sem ekki er eldra en 1—2 ára, |>ví að ef það er vel þroskað og vel
geymt, gel'ur það flestar plöntur. Dátími fræa er mislangur fyr-
ir hinar einstöku plöntutegundir. Venjulegast er að fræið spír-
ar ekki strax eftir fullþroskun, en líður nokkur tími þar til það
er hæft til þessa. Rúgur, bygg, hafrar og hveiti geta þó gróið í
öxunum á haustin ef kornið hefur náð góðri hörku, en fær svo
hlýja, raka veðráttu á eftir.
Aldur fræsins hefur mikil áhrif á, livers virði það er til út-
sæðis. Þess vegna er bezt að nota aldrei gamalt útsæði, því að
við geymsluna, þó að þurr og góð sé, tapast smám saman spír-
unarmagn fræsins. Þetta er þó afar mismunandi. Rúgur grær
venjulega illa eftir 2 ára geymslu. Bygg, hafrar og hveiti getur
gróið sæmilega þó geymt sé lengur, en öruggast er að nota fræ-
ið sem nýjast. Belgjurtalræ þolir lengri geymslutíma en korn-
tegundir og geta gróið allvel eftir 4 ára geymslu. Kálfræ geym-
ist allvel í 5—7 ár, grasfræ í 2—3 ár.
Eftirfarandi tafla sýnir, hvað korntegundir geta haldið gró-
magninu lengi við góða geymslu (Burgerstein:
Rúgur Hveiti Byg& Hafrar
1 árs gamalt . . . 96 100 100 98
10 ára gamalt . . . . 1-6 62-77 90-98 80-96
15 ára gamalt . . 0 1-3 70-72 75-80
Sést hér að rúgur heldur skemmst grómagninu.
3. Skilyrði þess, að fræ geti gróið. Þó að fræið sé með góðu
grómagni, þurfa þó viss skilyrði til að koma því til að gróa.