Búfræðingurinn - 01.01.1946, Blaðsíða 66
64
BÚFRÆÐINGURINN
6. Það er og áríðandi, að ekki fylgi frævöru skaðsemdardýr
eða sjúkdómar.
Hér hefir verið getið þeirra atriða, sem varða rannsókn á
grasfræi. Hið sarna gildir um kornútsæði, en hér bætist þó rúm-
vigtin við, það er, hvað hver hektólítri er þungur. Þúsund-
kornþyngdin er venjulega mikilvægara atriði varðandi korn-
útsæði en grasfræ, því að þar er hún mikilvægari mælikvarði
á kornstærðina en á grasfræi, og segir til um, hvað kornið er vel
þroskað miðað við það afbrigði, sem rannsakað er, og er áður
þekkt að kornþyngd. Kornþyngdin er gefin upp í 1000 fræja
þyngd, það er vigtin á 1000 fræum, og táknar það stærð korns-
ins miðað við jafn þurra vöru. Rúmvigt á korni er talin elzta
rannsókn á gæðum þess, og gefur oft nokkra hugmynd um
vatnsmagn, hvort kjarni þess er fastur eða lausbyggður, eða
hvort kornið er vel hreinsað, og getur einnig gefið bendingu
um þroska þess. Annars eru skiptar skoðanir um gildi rúmvigt-
arinnar, en við kornræktina er hún enn notuð sem mælikvarði
á gæðum þess.
Við frærannsóknir þarf að beita nákvæmum aðferðum, og
hafa þær verið allmikið samræmdar á síðari tímum hjá frærann-
sóknastöðvum víðs vegar, bæði hvað sjálfa framkvæmd rann-
sóknanna snertir, grómagnsákvörðun og ákvörðun á hvað fræ-
varan er hrein og eins varðandi það mat, sem t. d. íblöndun
vissra illgresistegunda snertir, en út í það verður ekki farið hér.
í Danmörku og annars staðar á Norðurlöndum starfa frærann-
sóknastöðvar, er rannsaka allt fræ, sem boðið er til sölu. Hið
svonefnda sjdljvirka eftirlit hjá frærannsóknarstofnuninni
dönsku tryggir góða sáðvöru fyrir landbúnaðinn. En það er í
aðalatriðum í því fólgið, að seljendur vörunnar láta frærann-
sóknarstofuna samkvæmt samningi við stofnunina, hafa eftirlit.
með fræsölunni, en það er aðallega fólgið í því, að stofnunin
tekur sýnishorn til rannsókna hjá kaupendum vörunnar, með-
an á kauptíð stendur, og ber saman við þær gæðatölur, sem
seljandinn hefir undirgengizt að ábyrgjast. Ef varan reynist
ekki það sem hún er gefin upp fyrir að vera, fá notendur vör-
unnar skaðabætur, og sér eftirlitið um, að þær séu greiddar.