Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 81
BÚFRÆÐINGURINN
79
un hesta á síðustu öld, þá er það eftirtektarverðast, að hlutverk
lians í samgöngum og flutningum hefir minnkað stórlega, sér-
staklega á langleiðum. Fyrst tóku járnbrautirnar við, síðan
bættust bifreiðarnar í hópinn og nú síðast flugvélarnar. Þetta
hefir verið stórkostleg og skemmtileg þróun.---Ennþá er þó
hesturinn rnikið notaður við margs konar flutninga á stuttum
leiðum, t. d. við flutninga á framleiðsluvörum bænda til aðal-
samgönguleiða og frá þeim, og í stórborgum, jafnvel þeirra
landa, sem lengst eru komin í véltækni, sjást iðulega stórir og
smáir hestvagnar og hestar af rnargs konar kynflokkum. Mér
þykir ekki ósennilegt, að Reykjavík sé sú borg í heiminum, þar
sem minnst er notað af hestum.-----Hvort þetta er vegna hag-
sýni og víðsýni, eða vegna óhagsýni og hégómaskapar, vil ég
ekki dæma urn, en mér er kunnugt, að á mörgum sviðum er-
lendis, þar sem vélknúin flutningatæki hafa ekki getað útrýmt
hestvögnunum, er orsökin sú, að rekstur hestvagnanna hefir
verið ódýrari, Sérstaklega gildir þetta um flutninga á leiðum
með tíðum viðkomustöðum s. s. mjólkurf 1 utninga í hús stór-
borganna og fleiri vöruflutninga.---Hins vegar veit ég einn-
ig dæmi Jress, að ýmsum fyrirtækjum er það metnaðarmál, auk
þess sem það er gert í auglýsingaskyni, að hafa sérkennilega og
skrautlega flutningavagna með fögrum, öldum, vel hirtum og
Skreyttum hestum fyrir. — Þegar ég var erlendis hafði ég alltaf
yndi af að sjá þessa hesta á götum stórborganna, Jreir gerðu
götulífið myndauðugra, og það var eins og hlýr gustur bærist
að hinu frumstæða eðli manns, sem var svo misjryrmt af til-
breytingarlausum straumlínum tízkunnar, sléttu borgargrjót-
inu og hljómlausum aflvélastunum. En hvað sem Jressu líður,
þá finnst mér sennilegast, að srnátt og smátt muni ökuhestarnir
hverfa algjörlega af götum stórborganna, svo að Jrær muni inn-
an skamms ná Reykjavík í þeirri þróun. Vona ég þó að samtím-
is nái ekki straumlínan yfirtökum í sál borgarbúanna eða slétta
grjótið í tilfinningalífi þeirra.
Nú á tímum er hesturinn niest notaður í landbúnaðinum, og
er Jrá bezt að athuga hvaða verkefni hann muni hafa þar í
framtíðinni, eða hvort þau yfirleitt séu þar nokkur. — Til þess
að komast að skynsamlegri niðurstöðu um Jiað, verður að at-