Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 89
BÚFRÆÐINGURINN
87
vegar hef ég veitt því athygli, að menn hafa yfirleitt ekki gert
sér grein fyrir þunga hestanna, heldur einblínt á hæðina, en
lágir hestar geta verið þyngri en háir hestar, en milli hæðar og
þyngdar þurfa þó að vera ákveðin hlutföll.
Þess vil ég geta, svo ekki valdi misskilningi, að þetta sem ég
hefi sagt hér, gildir aðeins um verkhesta. Reiðhestarnir lúta
öðrum lögmálum, og þeir verða aldrei, svo að nokkurt lag sé á,
steyptir í sama mótið og verkhestarnir. Út í þetta fer ég ekki
nánar nú, því ég ræddi það nokkuð í útvarpserindi í fyrravetur.
Sem áherzluorð, byggð á þeim staðreyndum, sem ég hefi nú
lýst, vil ég segja þetta: Ef tæknilegar umbætur landbúnaðarins
eiga að fá eðlilega þróun, verður ekki hjá því kornizt að skapa
tnun meiri kunnáttu í uppeldi, meðferð og tamningu hesta en
nú er almenn hér á landi, og stefna verður samtímis að því með
kynbótum og úrvali, að skapa þróttmikinn og samræmisgóðan
verkhest, sem verður 56—GO tommur að hæð, og sem vegur 400
—450 kg í meðalholdum.
Og hvort tveggja er auðvelt, ef rétt er á haldið.
Ef menn skildu almennt, hve hesturinn gæti gert mikið gagn,
°g hve hann muni í framtíminni hafa mikla þýðingu fyrir land-
kúnaðinn, létu ekki barnalega dráttarvéladraumóra villa sér
sýn um staðreyndir, og hættu að selja og kaupa hrossarusl til
vinnu, en færu í þess stað að greiða sannvirði fyrir góða hesta,
þá myndi skjót breyting verða hér á. Flestum er 1 jóst, að það
senr eyðileggur nýtilega hrossarækt hér á landi er fyrst og fremst
hrossamergðin og framboðið á óræktuðum, illa uppöldum og
otömdum hrossum. A vegum stóðhrossaprangsins má að vísu
oft gera góð kaup, ef það síðar reynist að vera hestur en ekki
höttur í sekknum, en of oft verður hér á landi ódýrt hross að
°f dýru ln ossakjöti.
bað er athyglisvert, að enginn bóndi eða áhugasamur hesta-
'íiaður skuli liafa gert það að aðalatvinnu sinni, að rækta, ala
uPp, temja og selja góða verkhesta, því varla er liægt að hugsa
Ser skemmtilegri atvinnu. En orsök þessa er sú, að það borgar
Slg ekki vegna þess, að ótamdir liestar af útigangi eru seldir
a 900—1100 kr. Mismunurinn á því, sem framleiðandinn fær
°g því, sem kaupandinn greiðir, fer aðallega eftir því, live