Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 92
90
BÚFRÆÐINGURINN
ekkert nema reynslan fær úr því skorið, hvort dýrið getur með
áhrifum sínum bætt stofninn.
Tökum nautgripina sem dæmi. Hér er nautið, sem notað er,
miklu þýðingarmeira en kýrin, þar sem það á jafnaðarlega
miklu fleiri afkvæmi. En sjálft sýnir nautið að mjög litlu leyti,
hvaða eiginleika til mjólkurlægni það býr yfir.
Góð afköst formæðra og systra, sem venjulega er farið eftir,
reynist of oft svikull mælikvarði. Eina leiðin til að dæma um
verðleika nautsins er að bíða þess að reynd komizt á nokkurn
fjölda dætra hans.
Sé meðalnyt dætra hans þannig betri en meðalnyt mæðra
þeirra, þá getur það með réttu kallazt kynbótanaut og sjálfsagt
að nota það á meðan ekkert betra býðst.
Þetta lag við val kynbótagripa er nefnt niðjakönnun. Sú að-
ferð ein getur talizt vísindaleg, því að allt annað byggist á til-
viljun að rniklu leyti.
En sá mikli annmarki er á niðjakönnun, þegar um nautgripi
er að ræða, að nautið er orðið gamalt, 5—6 ára, þegar má fara
að nota það með öryggi. En þá má tæpast reikna með að það
endist meir en 3—4 ár til viðbótar. Það eru auk þess verstu ár
nautsins, þegar því er tekið að hrörna. (Þótt raunar mætti láta
flest naut ná háum aldri, engu síður en kýr, ef gáfulegar væri
með þau farið heldur en nú tíðkast hérlendis).
Þegar þess er og gætt, að einungis lítill hluti allra nauta
stenzt niðjakönnunina, þá er það augljóst, hve geysiþýðingar-
mikið er að nota það sem mest þennan tíma. Hér er það, sem
sæðing getur veitt ómetanlegt lið. Með einu góðu nauti má nú
stórbæta kynstofninn í heilli sýslu ef sæðing er við liöfð. Er-
lendis er það algengt að fá þannig yfir þúsund kálfa undan
einu nauti árlega.
Þannig getur sæðing í sambandi við niðjakönnun verið ör-
uggt og fljótvirkt tæki til kynbóta, þar sem skilyrði eru að öðru
leyti fyrir hendi.
Til þess að kostnaður verði ekki óhóflegur þarf að vera hægt
að sæða einhvern vissan lágmarksfjölda kúa á ári.
í Ameríku þykir öruggt að hefja sæðingu, þar sein 1200 kýr
eru innan 50 km. fjarlægðar. Stærsti kostnaðarliðurinn er oft-