Búfræðingurinn - 01.01.1946, Blaðsíða 98
96
BÚFRÆÐINGURINN
a) Með hcenum.
Útungun með hænum verður aðeins notuð á litlum hænsna-
búum og er vafasamt Iivort sú aðferð yfirleitt borgar sig.
ítalskar hænur vilja sjaldan liggja á og eru lítt til þess hæfar.
Meðaljrung og þung hænsnakyn eru miklu fúsari til þess og
betur til Jress fallin.
Sú hæna, sem vill liggja á, fær eggjahljóð, blóðhitinn hækk-
ar og Jrær hætta að verpa. Áríðandi er að velja góðan útungar-
stað. Skal hann vera hlýr, 13—f 5° C, liggja hæfilega afsíðis,
Jrannig, að hænan verði ekki trufluð. Tryggast mun að reyna
hænuna á glaseggjum eða eggjum, sem ekki á að unga út í ca
2 daga, og setja að ]>eim tíma liðnurn útungunareggin undir
liana ef hún reynist vel. Stærð hreiðursins skal vera 40x40 cm,
með hæfilega stóru opi. í botn hreiðursins skal setja grasþöku
með jarðrakanum í, til Jress að eggin ofþorni ekki, en ofan á
þökuna hæfilegt lag af þurru heyi, hálmi eða tréspónum. Gott
er að strá skordýradufti í hreiðrið og sömuleiðis í hænuna, áður
en hún er lögð á eggin. Hæfilegt er að setja 10 egg undir hæn-
ur af léttari kynjum, en 12—14 undir stærri hænur. Hænan er
tekin af hreiðrinu einu sinni á dag í 7—15 mínútur. Þá er hún
fóðruð og gefið vatn.
Eggin eru skyggð tvisvar, 6. og 18. daginn, og ófrjó egg tek-
in frá. Eftir 18 daga eru eggin ekki hreifð. Bezt er að skyggna
með ljósi í }>ar til gerðum lampa í myrkvuðu herbergi. 6 daga
legin egg, sem reynast frjó og hafa lifandi fóstur, sýna dökkan
blett og fínar æðar, sem fylla mikinn hluta af egginu. Útung-
unin varir að meðaltali 21 dag. Eftir útungun er bezt að láta
hænuna liggja rólega á eggjunum í 24—36 tím'a eftir útungun.
b) Útu7igun ívélum.
Greina má á milli rafmagns- og olíuútungunarvéla. Þar senr
tryggt rafmagn er fyrir hendi, er sjálfsagt að nota rafmagnsvél-
ar, en þar sem því er ekki til að dreifa verður að nota vatnshit-
un með olíukyndingu (lanrpa). Útungunarvélar fást lijá S. í. S.
og fylgir þeim nákvænr lýsing á því, hvernig þær skulu notaðar.
Útungunarvélar eru mjög mismunandi að stærð, taka frá 100