Búfræðingurinn - 01.01.1946, Side 106
104
BÚFRÆÐINGURINN
urðu kvígurnar úlnar og mjóslegnar. Þó voru þessir flokkar
livað þunga snertir svipaðir.
Hinir tveir flokkarnir voru þar á rnilli hvað þrif snertir. En
þegar að því kom að tilraunakvígurnar fara að gefa afurðir,
verða niðurstöðurnar allsundurleitar, og urðu þær í stórum
dráttum sem hér segir:
2. flokkur fæddi mllburða kálfa, þyngd frá 73—75 ensk pund
(síðari talan er meðalþyngd nýfæddra kálfa í U.S.A.). Þeir
þroskuðust eðlilega.
1. flokkur fæddi kálfa 3—4 vikum fyrir tal, þyngd 46 ensk pd.
Eæddust þeir ýmist dauðir eða dóu innan fárra klst.
3. flokkur fæddi kálfa því sem næst að meðalþyngd, 71 e. pd.,
en þeir fæddust 2 vikum fyrir tal. 1 fæddist dauður, 2 voru
veikir og dóu á fyrsta degi, sá 4. var veikur, en með mikilli um-
önnun lifði hann.
4. flokkur fæddi kálfa, sem einnig voru veikburða. 1 fæddist
dauður og sá sem lengst lifði, dó á 6. degi. Tilraununum var
haldið áfram á sama hátt og á næsta ári, og í höfuðdráttum
endurtók sig að nýju það sama, sem áður er greint, um fæðingu
kálfanna hjá liverjum flokki fyrir sig.
Þá var mælt mjólkurmagnið 30 fyrstu dagana eftir burð, og
var mjólkurmagnið að meðaltali sem hér segir á hvern einstak-
ling:
í 2. fl. 24.03 e. pd., í 1. fl. 8.04 e. pd., í 3. fl. 19.38 e. pd. og í
4. 11. 19.82 e. pd. Tilsvarandi tölur á næsta ári voru þessar 30
fyrstu dagana eftir burð: 2. fl. 28.0, 1. fl. 16.1, 3. 11. 30.1 og 4. 11.
21.3. — Er jiað sérstaklega athyglisvert, að 3. 11. mjólkar þá að
jafnaði imeira en 2. fl., enda jrótt engin breyting sé á um þroska
kálfanna frá fyrra ári, sem áður er sagt.
Efnarannsóknir fóru fram á mjólkinni, og reyndist fitan all-
breytileg í hinum ýmsu flokkum. Þvagið reyndist súrt í fyrsta
flokki en lútkennt eða áhrifalaust í hinum flokkunum.
Þegar þessi tilraun var gerð þekktust ekki nein ráð með líf-
fræðilegri el’nagreiningu að uppgötva orsakirnar til þessa mis-
munar, sern áður er greindur, á lífeðlislegri vellíðan hinna um-
getnu einstaklinga. — En um þessar uppgötvanir fjallar þessi
bók, sem jiessi stytti útdráttur er tekinn úr. En bókin fjallar