Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 110
108
BÚI'RÆÐINGURINN
Síðustu árin haí'a flutzt hingað fáeinar múgavélar, nokkrar
höfðu verið keyptar fyrir stríð og reynzt vel.
Múgavél var notuð á Hólum í sumar og reyndist ágætlega.
Hún var notuð til að snúa töðunni. Það eina, sem finna mætti
að véiinni er það, að hún er nokkuð breið og því erfitt að koma
henni yfir brýr og eftir mjóum brautum. Það er hægt að raka
og garða hey með múgavél, og getur hún því komið í staðinn
fyrir rakstrar- og snúningsvél. Hún er dregin af tveimur hest-
um og er það all þungur dráttur á hallandi landi. Á Hólum var
hún dregin af jeppabíl eða Farmall A. Þá er liægt að aka lirað-
ara og snúa meira, en hægt er með hestum.
Múgavélin snýr heyinu vel, mokar því til. En það þarf að
bera vel á hana, því að snúningshraðinn er mikill í sumum
legunum.
Ég tel þetta vera gott heyvinnutæki, sem getur sparað mikla
vinnu og gert heyskapinn auðveldari.
Ég tel að minnsta vinnu þurfi við samantekningu á hálf-
þurru heyi, þegar því er rakað í garða með rakstrarvél eða
múgavél og heyinu í görðunum síðan hraukað með rakstrarvél.
Hraukana þarf svo að laga til með hrífu, raka í kringum þá og
setja á þá topp, svo að rigningarvatn renni út af þeim, en ekki
niður í heyið. í blástri þornar heyið í drílinu ogerstundumnóg
í þurrkatíð að snúa þeim, til að fá heyið vel þurrt. Þegar flatt
hey er orðið þurrt, eða hæft til bólstrunar, er það oft vinnu-
hraðinn og þau tæki, sem hægt er að nota við samantekning-
una, sem ráða lirslitum um það, hvað mikið næst upp af hey-
inu.
Víðast hvar mun sú aðferð notuð, Jrar sem hægt er að koma
við rakstrarvélum, að lieyinu er rakað saman í garða og Jreim
síðan ýtt með heyýtu í hæfilega stórar hrúgur, sem svo eru
bornar upp i bólstra. Á Hólum hefur í mörg ár verið notuð
tveggja hesta heyýta með palli handa ökumanni til að standa á.
Ökumaður getur ekið liðugt Jiegar ekki er hey fyrir
ýtunni og ýtan helzt betur niðri vegna þunga mannsins á pall-
inum og sleppir síður heyi undir sig, en oft er til bóta að aka
rakstrarvél langs eftir görðunum og hrauka Jreim upp, ýtist