Búfræðingurinn - 01.01.1946, Síða 111
BÚFRÆÐINGURINN
109
heyið þá betur. Það er helzt sáðgresishey, sem þessa aðferð þarf
að nota við.
Eg tel ekki heppilegt að hafa bólstrana stóra, ekki stærri en
-ja til 4ra hesta. Það er erfiðara og tímafrekara að bera upp
stóran bólstur, en fleiri minni. Heyið þornar líka betur þegar
það stendur í litlum bólstrum en stórum. Ef bólstrarnir þurfa
að standa yfir lengri tíma, er sjá'lfsagt að nota strigayfirbreiðsl-
Ur- Þær verja heyið fyrir bleytu og foki.
Margar aðferðir eru notaðar við heimflutning á heyi, sums
staðar er það enn bundið í bagga og flutt heim í hlöðu eða hey-
garð á reiðing ;eða böggunum ekið á tví- eða fjórhjóluðum
heyvögnum. Annars staðar er heyinu kastað með göfflum úr
hólstrunum á vagna og ekið lausu heim og síðan mokað af
vögnunum í hlöðurnar. Surnir nota sleða í staðinn fyrir vagna.
Til er það, að bólstrarnir eru dregnir í lieilu lagi upp á lághjól-
aða vagría og síðan dregnir aftur af vögnunum inn í hlöðurn-
ai'. Þá er sú aðferð víða notuð, að brugðið er kaðli um bólstr-
ana og þeir dregnir á honum heim að hlöðu eða lieystæði, og
sums staðar er farið að draga bólstrana inn í hlöðurnar og eftir
þeim þangað, senr heyið á að vera.
Staðliættir eru svo misjafnir, að það er engin leið að nota
sömu aðferð alls staðar, heldur verður hver og einn að laga
þetta til eftir þeim skilyrðunr, sem hann á við að búa.
A Hólum hafa flestar framannefndar aðferðir við heimflutn-
mg og innlátningu að einhverju leyti verið notaðar síðastliðin
10 ár, en nú orðið er bólstradrátturinn mest notaður. Við þá
aðferð tel ég að þurfi minnsta vinnu, sérstaklega ef hægt er að
clraga bólstrana inn í hlöðurnar, en það hefur verið gert á
Hólum tvi) undanfarin sumur. Sumarið 1944 voru bólstrarnir
dregnir á 3ur liestum en síðastliðið sumar var heyið dregið
með Farmall A og jeppabíl.
Þau tæki eru hentug til lieydráttar, fljót í ferð og draga stærri
hólstra en hægt er að leggjá fyrir 3 hesta, þar sem brattlent er.
Þessi heimflutnings- og innlátningaraðferð er að breiðast út,
eu víða eru hlöðurnar byggðar þannig, að ekki er hægt að
óraga bólstrana inn í þær. Innföllin eða baggagötin eru allt of
htil, í stórar hlöður álít ég að bezt væri að draga inn ofarlega í