Búfræðingurinn - 01.01.1946, Side 140
Búnaðarsaga.
1. Mcð hverjum hætti var land numið á Islandi?
2. Yfir hvaða tímabil er landnámsöldin talin að ná?
3. Hvað var hættulegasti gallinn á Jrjóðveldisskipun íslendinga hinni fornu?
4. Hvcr voru helztu opinber gjöld íslenzkra bænda á þjóðveldistímanum?
5. Mcð hverjum hætti var unnið að jarðrækt fyrri alda?
6. Hvcnær voru tíundarlög fyrst samþykkt, hverjir beiltu scr fyrir þeirri lög-
gjöf og hvernig skiptist tfundin?
7. Hvað er hægt að benda á sem sönnun þess, að íslendingar ræktuðu svín,
alifugla og geitur til forna?
8. Hvað er talið að kúigildi hafi jafngilt miklu af lögsilfri?
9. Hverjir unnu hér fyrst að jarðamati, er verulegt gagn varð að, og hvenær
var það gert?
10. Hver flutti fyrst kartöflur hingað til lands, og hvað vann sá maður flcira
sér til ágætis gagnvart búnaðarmálum?
11. Hvenær ferðuðust þeir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson liér um land, og
hver varð helzti árangur af ferð þeirra?
12. Nefnið aðferðir, er notaðar hafa verið við túnasléttun á síðari tímum?
13. Með hverjum hætti hafa bændur girt tún sín fyrr og síðar?
14. Getið helztu brautryðjenda votheysverkunar hér á landi.
15. Með hverjum hætti hefur kornrækt síðari tíma þróazt hér á landi?
1G. Hver er tilgangur með stofnun nautgriparæktunarfélaga, og hvernig hafa
þau unnið að hlutverki sínu?
17. Hver er sú búnaðarlöggjöf, er þið teljið mest um vert, og hverjir unnu mest
að undirbúningi hennar?
18. Gerið grcin fyrir bókaútgáfu á vegum Búnaðarfélags íslands.
19. Gerið grein fyrir stefnu og helztu umbðtum, er þið tcljið að leitt hafi af
störfum kaupfélaga.
20. Teljið bændaskólasetur, er verið hafa hér á landi og gctið uin, hvenær hvcr
skóli var stofnaður.
Flatar- og rúmmálsfræði.
1. Húsgrunnur er 11.5 m á lengd og 7.2 m á breidd. Hvað er flatarmál grunns-
ins?
2. Hve stórt er horn i 10-hyrningi, ef þau eru öll jöfn?
3. Hornlína í ferningi er 12 m. Hvað er flatarmálið?
4. Vatnsþró er 1.5 m á lengd, 1.0 m á breidd og 1.8 m djúp. Hvað cr rúm-
málið?
5. Hinar samsíða hliðar trapisu eru 32 m og 28 m, og flatarmálið er 348 fer-
metrar. Hvað er þá fjarlægðin milli hinna samsíða hliða trapisunnar?
6. Hvað er þvermál þess hrings, sem er 113*/, fermetrar?
7. í jafnarma þríhyrningi eru armarnir 5.3 cm hvor, en þriðja hliðin 9 cm.
Hvað cr flatarmálið?