Frjáls verslun - 01.03.2001, Page 19
FORSÍÐUGREIN VIÐTflL VIÐ BflLTflSflR
Baltasar Kormákur og eiginkona hans, Lilja Pálmatlóttir.
Þau hafa stofnað framleiðslu- og umboðsfyrirtæki á
sviði kvikmynda og leiklistar, Sögn ehf. eða Blue Eyes
Productíöns. í gegnum þetta fyrirtæki hyggjast þau hjón
m.a. selja Baltasar sem leikstjóra og gera út á erlendan
kvikmyndamarkað í framtíðinni.
Mynd: Geir Ólafsson
Andrýmið gaf taekifaerið Baltasar hafði unnið með Ingvari Þórð-
arsyni og Halli Helgasyni í Loftkastalanum frá 1994. Kvikmynda-
fyrirtækið 101 Reykjavik, sem stofnað var af Baltasar og Ingvari,
var einungis stofnað í kringum kvikmyndina 101 Reykjavík og
stóð ekkert frekar til að halda þeim rekstri áfram. Baltasar og
Lilju hafði um alllangt skeið langað til að starfa meira saman og
þegar þessu verkefni lauk myndaðist tækifæri fyrir þau hjón að
setja fyrirtækið á laggirnar. „Núna kemur í ljós hvers konar lif
þetta fyrirtæki á framundan en að öllum likindum lítur það vel
út,“ segir Baltasar.
Nýja fyrirtækið er að stíga sín fyrstu spor en ástæða er til bjart-
sýni því að horfur eru á góðri aðsókn í Operunni og næg verk-
efni eru framundan. Fyrirtækið er aðalframleiðandi að fransk-ís-
lensk-amerísku verkefni í leikstjórn Solveigar Anspach, sem heit-
ir Stormy Weather. Agætlega gengur að ijármagna kvikmynd,
sem gerð er eftir leikritinu Hafið eftir Olaf Hauk Símonarson, auk
þess sem Baltasar mun leikstýra myndinni A Little Trip to Hea-
ven eftir eigin handriti í framleiðslu kvikmyndafyrirtækis Sigur-
jóns Sighvatssonar í Hollywood, Palomar. Tökur á henni heijast í
haust. Hann er einnig búinn að tryggja sér réttinn á Mýrinni eft-
ir Arnald Indriðason og er að láta skrifa kvikmyndahandrit upp
úr Njálu þannig að það er af nógu að taka. Sjálfur hefur Baltasar
hafnað hátt í 30 erlendum verkefnum á síðustu misserum en þau
snerust m.a. um leiksfjórn á „heimskulegum, amerískum há-
skólamyndum, sem ég hef engan áhuga á,“ eins og hann segir,
en af þessum verkefnum eru tvö áhugaverð, sem hann hefur sýnt
áhuga. Verið er að kanna ijármögnun á þeim erlendis og er hann
ekki reiðubúinn að ræða þau neitt frekar á þessu stigi málsins.
- Er fyrirtældð ykkar fyrst og fremst áfangi á leið þinni að þvi að
verða kvikmyndaleikstjóri erlendis?
„Þetta er flókinn heimur. Erlendis stofna leikstjórar og þekktir
leikarar gjarnan framleiðslufyrirtæki í kringum sjálfa sig og
þessi fyrirtæki fara svo í samstarf við önnur fyrirtæki. Þannig
verður viðkomandi fyrirtæki meðframleiðandi að stórum kvik-
myndum. Þetta umhverfi, sem ég er að búa mér tíl, gefur mér
þann möguleika að taka inn verkefni sem ég hef áhuga á að
framleiða og halda um stjórnvölinn. Eg sé ekki ffamtíðina á
mákur sér fyrst og fremst um framleiðsluhliðina. Hún snýst ekki
einungis um fjármálahliðina heldur lika að velja saman fólk í
verkefnið. Fyrirtæki Baltasars og Iilju heitir því rammíslenska
nafni Sögn ehf. en vörumerki fyrirtækisins er Blue Eyes og mun
fyrirtækið ganga undir því nafni erlendis. En af hveiju þetta nafn?
„Vegna þess að konan mín er með blá augu,“ svarar Baltasar og
heldur áfram: „Mig langaði að finna ferskt og létt nafn á fyrirtæk-
ið, sem hefði jákvæð áhrif á fólk. Á íslandi skiptir nafnið ekki
endilega miklu máli, verkefnin standa alveg fyrir sínu og það
hvaða fyrirtæki framleiðir myndina dregur ekki úr athyglinni
sem hún fær. Erlendis er hins vegar ekkert verra að hafa alþjóð-
legt eða enskt nafn til að kynna verkefni fyrirtækisins og þróa
áfram möguleikana á alþjóðamarkaði.“
sundlaugarbarmi með Pina Colada í annarri hendinni en ég vil
hins vegar hafa bæði sambönd og möguleika erlendis. Það er
ekkert sem segir að ekki sé hægt að hafa skrifstofu í Reykjavík
en starfa erlendis. Fyrirtækið hefur tvo möguleika, að starfa er-
lendis og draga verkefni inn í landið. Hugmyndin er náttúrulega
að reyna að komast inn í alþjóðlegt umhverfi án þess að þurfa
endilega að jdirgefa það íslenska. Islensk kvikmyndagerðarlist
getur verið mjög alþjóðleg ef nógu vel er að henni staðið."
Framleiðslan er áhættufjárfesting Framleiðsla á leiksýningum
og kvikmyndum er mikil áhættuJjárfesting, tapið getur orðið
stórt og hagnaðurinn reyndar lika ef vel gengur. Aðsókn í leik-
hús er mjög góð og nemur þvi að hver einasti Islendingur fari í
19