Frjáls verslun - 01.03.2001, Blaðsíða 62
SflGflNABAK
ertu mm
SEE*
□FBELDI ER RLDREI
RÉTTLÆTRNLECT g|
Ofbeldi þrW ískjóli Örn
nauðgum^eðTheZl,uááb>thflÍ Ó SÍfíaSpellum og
(Ath. að myndin er^setiT 0fbeldisma^anna.
Ertu að deyja úr ást?
Blóðblettur sem líkist hjarta, fal-
leg flölskylda, maður sem held-
ur á litlum nærbuxum. Myndir
sem segja svo margt - og vekja fjölda
tilfinninga hjá áhorfandanum. Þó
eru þetta bara myndir. Af hverju ætti
karlmaður ekki að halda á nærbux-
um barns? Hvað er athugavert við
myndina af fjölskyldunni fallegu?
Hvers vegna blæðir hjartanu?
Þessar auglýsingamyndir eru
hluti af herferð Stígamóta, Kvenna-
athvarfsins og Kvennaráðgjafarinn-
ar gegn kynferðislegri misnotkun
og annars konar ofbeldi gegn kon-
um og börnum. Yfirskrift herferðarinnar var: „Ertu að deyja
úr ást?“ og vísar til þess að ást er oft notuð sem skálkaskjól
fyrir kynferðisofbeldi - ofbeldi sem er í raun andhverfa ástar.
Það er ekki einfalt að auglýsa það sem ekki sést - það sem
ekki hefur mátt tala um - það sem er svo viðkvæmt og sárt
að feta verður mjótt einstigi milli ijalls og hyldýpis. Sé geng-
ið of langt í auglýsingunum getur það orðið til þess að
þolendur ofbeldisins ráði ekki við sársaukann og minning-
arnar sem óhjákvæmilega losna úr læðingi þegar horft er á
myndir sem þessar. Einnig er sú hætta fyrir hendi að við-
kvæmt fólk verði fyrir áfalli vegna þeirra. Ef auglýsingarnar
eru hins vegar of varfærnar er líklegt að lítill árangur hljót-
ist af herferðinni.
Að túlha það sem ekki sést Hvíta
húsið fékk það erfiða hlutverk að
þræða þetta einstigi. Þær Anna
Agústsdóttir textasmiður, Sigrún
Gylfadóttir, grafískur hönnuður, og
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, grafískur
hönnuður, unnu með Stígamótum,
Kvennaathvarfinu og Kvennaráðgjöf-
inni að gerð auglýsinganna. Friðrik
Örn Hjaltested tók ljósmyndirnar og
Sigurbjörn Svansson sá um förðun.
„Mjög fljótlega í ferlinu urðum við
ásáttar um að dagskráin fengi heitið
„Ertu að deyja úr ást?“ En það kom
reyndar eftir að hugmyndin að blóð-
blettinum varð til,“ segir Anna. „Þetta var talsvert átakaverk-
efni. Við fórum af stað fullar af bjartsýni og áhuga. Við héldum
hugmyndafundi með Stígamótum en frá þeim kom sú hug-
mynd að sýna gerandann í stað þess að sýna eingöngu þolend-
ur eins og algengast er. I hugmyndavinnu er venjan að láta allt
flakka. Þetta er skemmtilegur kafli í ferlinu, allar hugmyndir
eiga tilverurétt á því stigi, maður þenur hugmyndaflugið og fer
út á ystu nöf. I þessu verkefni var það hins vegar óbærilegt á
köflum."
„Maður reyndi að setja sig í spor fórnarlambs og geranda.
Það var mjög óþægilegt," bætir Kristín Þóra við.
„Við vildum ganga fram af fólki og gera eitthvað sem eng-
inn gæti leitt hjá sér,“ segir Anna. „En það er svo margt sem
Stundum fá auglýsingastofur þaö verk-
efni aö gera auglýsingar um það sem
hvorki sést né vart má tala um. Hvernig
vinnubrögðum á að beita í slíkum tilvik-
um? Hvíta húsið fékk það verkefni að
gera auglýsingaherferð fyrir Stígamót,
Kvennaathvarfið og Kvennaráðgjöfina
gegn kynferðislegri misnotkun.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
62