Frjáls verslun - 01.03.2001, Blaðsíða 85
FYRIRTÆKIN fl NETINU
Stríð í miðasölu?
Miðasala er sú starfsemi á
Netinu sem hefur blómstrað
hvað best, sérstaklega er-
lendis en kannski ekkert síður hér-
lendis, a.m.k. ef miðað er við gengið
frá því fyrsti miðavefurinn, Miða-
vefur.is, hóf starfsemi. Hafdís Gísla-
dóttir, framkvæmdastjóri Miðavefs
ehf., segir að salan hafi numið um 10
prósentum á sýningu í haust en verið
að meðaltali 20-30 prósent eftir ára-
mótin og farið upp í allt að 40 pró-
sent. Miðasala.is tekur sjö prósenta
þóknun af miðaverði og má búast við
að Miði.is taki svipað. Erlendis taka
miðavefirnir 20-25 prósenta þóknun.
Það þarf verulega sölu til að starfsemin borgi sig. Það má því
búast við harðri samkeppni í miðasölu á Netinu.
Selja hugbúnað Báðir miðasöluvefirnir byggja starfsemi
sína á því að selja sérhannaðan hugbúnað og samræmt miða-
sölukerfi á Netinu. Samið er við stjórnendur leikhúsa og að-
standendur menningarviðburða um miðasölu og er svo
Selja miða I leikhúsin Miði.is
(Miðavefur.is eða Vísir.is) er fyrsti ís-
lenski miðasöluvefurinn. Hann hefur
verið starfræktur frá því í haust og selt
miða í Hafnarijarðarleikhúsið og upp
á síðkastið á Fífl í hófi í Islensku Oper-
unni. Miði.is hefur fyrst og fremst lagt
áherslu á að selja miða fyrir leikhúsin
og er verið að ganga frá samningum
við fleiri leikhús, þar á meðal eitt af
stóru leikhúsunum, en einnig er fyrir-
hugað að selja miða á viðburði í
öðrum listgreinum og jafnvel
íþróttum. Um þessar mundir er verið
að opna nýja heimasíðu hjá Miðavefi
ehf. Miðavefur er í eigu Skýrr, Vísis.is,
Inntaks ehf. og Kuggs hugbúnaðarhúss.
Frumraunin tökst vel Miðasala.is er í eigu Veraldarveíjarins
sem aftur er í eigu Kaupþings Luxembourg SA, Uti SA, Gunn-
ars Þórs Ólafssonar, Time Fold Investments SA, Norðurljósa
hf. og Hjálmars Blöndal. Vefurinn fór í loftið í byrjun apríl og
hafa viðtökurnar verið góðar en frumraunin, miðasala á
Tvöfyrirtœki keppa um midasölu á
/
Netinu, Islenska miðasalan hf. með
Miðasala.is ogMiðavefur ehf. með
Miði.is. Þröstur Emilsson, fram-
/
kvæmdastjóri Islensku miðasölunnar,
telur að varla sé markaðurfyrir fleiri
en eitt fyrirtæki ogþví verði hugsanlega
„stnð“millifyrirtækjanna íframtíðinni.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Miðavefur ehf. er með sölugáttir á slóðunum
www.midi.is,www.midavefur.is og www.vis-
ir.is.
Miðasala.is er á slóðinni www.midasala.is.
Þar er auglýst Jjölbreytt úrval af merningar-
viðburðum.
Ticketmaster.com. Ekkert ersótt til þessa vefj-
ar annað en hugmyndin um að selja miða á
Netinu.
beintenging milli allra söluaðila. Þeir sem selja miða eru því
allir að vinna í sama gagnagrunni. A Miði.is (einnig á slóðinni
www.miðavefur.is eða www.visir.is) er einungis hægt að
kaupa miða, ekki panta, en á Miðasala.is er einnig hægt að
panta. Það fyrirtæki hefur einnig gjaldfrjálst símanúmer sem
hægt er að panta í gegnum.
„Við erum búin að setja upp fullkomið bókunarkerfi fyrir
hvern þann sem heldur einhvers konar uppákomu eða við-
burð. Sinfóníuhljómsveit Islands er t.d. búin að setja upp slíkt
kerfi frá okkur og notar það til að bóka á allar sínar uppá-
komur. Einnig er hægt að fá miða á tónleika hjá þeim í vefsölu
þannig að nú geta tónlistarunnendur annað hvort farið til
þeirra, hringt í okkur eða þá eða farið á Netið og keypt sér
miða. Við höfum heimild til að gefa út miða fyrir okkar við-
skiptavini,“ segir Þröstur.
tónleika José Carreras, tókst afar vel. Nú þegar er hægt að
kaupa eða panta miða á mjög ijölbreytta viðburði auk þess sem
upplýsingar um leiksýningar, ballettsýningar og óperur, tón-
leika, íþróttaleiki og staka menningaviðburði eru mjög hand-
hægar. Miðana er hægt að kaupa og sækja eða fá senda í pósti.
Einnig er hægt að skrá sig á póstlista hjá Miðasölu.is og fá til-
kynningu eða jafnvel tilboð í netpósti áður en sala hefst. Vefur-
inn sá er mjög vel hannaður, fjölbreytilegur og fallegur og ætti
ekki vera neitt vandamál að rata í gegnum hann.
Báðir miðavefirnir eru íslenskir að öllu leyti þó að viðskipta-
hugmyndin sé ekki ný af nálinni. Margir Islendingar hafa keypt
miða á menningarviðburði erlendis á Netinu enda kannast
framkvæmdastjórarnir báðir við erlendu „fyrirmyndirnar“, ef
svo má kalla, Ticketmaster.com og Biljett.se eða Billed.net, þó
að þar sé samanburðinum líka lokið. Ekkert hefúr verið sótt til
þessara vefja annað en kannski hugmyndin. ffij
85