Frjáls verslun - 01.03.2001, Blaðsíða 80
Þór Egilsson, hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna: „Það er tvímælalaust mikill ávinningur fyrir launþega að nota
sér sértækan lifeyrissþarnað. “ FV-mynd: Geir Ólafsson
lok aukast á komandi
árum. Þeir sem nýta sér
þessa heimild til sér-
eignarsparnaðar verða
verulega betur settir í
framtíðinni en þeir sem
nýta sér heimildina
ekki hvað þetta varðar.
Þeir sem nýta sér heim-
ildina munu hafa flár-
haglsegt sjálfstæði til
þess að ráða miklu um
sín starfslok því viðbót-
arlífeyrissparnaðinn má
byrja að taka út við 60
ára aldur og það skiptir
fólk miklu máli að eiga
viðbótarsparnað þegar
á þennan aldur er kom-
ið. Fólk hefur þá ýmsa
kosti í stöðunni t.d. að
Þór Egilsson, Lífeyrissjóði verslunarmanna:
Kaflaskil á síðasta ári
ILífeyrissjóð verslunarmanna greiða nú um 40 þúsund
manns og er hann stærsti lífeyrissjóður landsins. „Kafla-
skil urðu í viðbótarlífeyrissparnaði í kjölfar nýrra kjara-
samninga á síðasta ári,“ segir Þór Egilsson hjá Lífeyrissjóði
verslunarmanna.
„Viðbótarlífeyrissparnaðurinn hefur verið að taka hægt og
bítandi við sér og segja má að orðið hafi kaflaskil í kjölfar
nýrra kjarasamninga sem gerðir voru á síðasta ári,“ segir Þór.
„Frá því kjarasamningar voru undirritaðir hefur þeim ijölgað
stöðugt sem nýta sér séreignasparnað og eru nú um þrjú þús-
und hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna einum en þetta er mjög
svo hagkvæm leið til eftirlaunasparnaðar.
Launþegar geta greitt allt að 4% af heildarlaunum í séreign-
arsparnað áður en skattur er reiknaður á laun og fá mótfram-
lag frá ríkinu sem jafngildir einum tíunda eigin framlags. Að
auki fá launþegar skv. nýgerðum kjarasamningum mótfram-
lag frá launagreiðanda sem fer stighækkandi. Sparnaður í
séreignarsjóði getur þannig numið allt að 6,4% af heildarlaun-
um frá og með næstu áramótum."
Sveigjanleg staiisiok Þór segir mótframlag frá ríki og at-
vinnurekanda vera nokkru hærra en framlag þess sem spar-
ar og nefnir dæmi um einstakling sem greiðir 2% af 150 þús-
und króna launum. „Á hveijum mánuði eignast hann 6.300
krónur en er þó ekki að leggja fram nema 1.837 krónur eða
29% af því sem hann eignast," segir Þór. „í þessu dæmi lækka
skattar hans um 1.163 krónur á mánuði, en mótframlagið frá
atvinnurekanda er 3.000 krónur og framlag ríkisins er 300
krónur. Það munar fáa um 1.837 krónur á mánuði, enda dug-
ar sú upphæð rétt fýrir einni pizzu, þó hún skili mun meiru
þegar hún er lögð í séreignarsjóð í stað þess að kaupa eitt-
hvað. Aukin umræða á sér stað í þjóðfélaginu um sveigjanleg
starfslok og mun sú umræða og krafan um sveigjanleg starfs-
draga úr vinnu og láta viðbótarsparnaðinn vega upp það
tekjutap sem það verður fýrir þangað til það getur fengið
greiðslur úr sameignarsjóði, eða að fólk getur hætt að vinna
um sextugt og notað viðbótarsparnaðinn þangað til greiðslur
úr sameignarsjóði heflast."
Meiri mðguleihar „Það er mjög mikilvægt íýrir fólk að átta
sig á þessum möguleikum og huga að því að hefja viðbótar-
sparnað sem íýrst, því lengri tími sem sparað er því hærri verð-
ur inneignin sem úr verður að spila þegar á henni þarf að
halda. Og svo má ekki gleyma því að með því að sleppa þess-
um sparnaði sem samið hefur verið um - er fólk samt sem áður
að spara - fýrir atvinnurekandann." SH
Skattahagræði og mótframlag
launagreiðanda vinna saman
Séreignariðgjald af launum 2% 4%
Sparnaður af 150.000 kr. mánaðarlaunum 3.000 6.000
Skattar lækka um 1.151 2.302
Raunuerulegt framlag launþega 1.849 3.698
Mótframlag atvinnurekanda frá 1.1.2002 3.000 3.000
Mótframlag ríkisins 300 600
Samtals mótframlag 3.300 3.600
Inneign í sáreignarsjóði 6.300 9.600
Af þessari töflu sést að einstaklirigur sem sparar 2%
af 150.000 kr. launum eignast á mánuði 6.300 kr.
frá 1.1.2002 en borgar í rauninni ekki nema 1.849
kr. fyrir.
80