Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2001, Blaðsíða 58

Frjáls verslun - 01.03.2001, Blaðsíða 58
NÆRMYND flF EYÞÓRI flRNALDS Hamskipti Eybórs Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar frá því Íslandssími hf. var stofnaður haustið 1998. Selló- leikarinn Eyþór Arnalds, sem þá var stjórnandi hjá Oz, tók að sér það ábyrgðarmikla hlutverk að byggja upp ijarskiptafyrirtækið Íslandssíma og hefur gegnt því starfi í tvö ár. Má segja að sellóleikarinn hafi á örstutt- um tíma skipt um ham því að á þess- um tíma sem liðinn er frá því hann tók við forstjórastarfmu hefur hann breyst úr tónlistarmanni í toppstjórn- anda í einu helsta fjarskiptafyrirtæki landsins. Aðeins tvö ár eru síðan fréttir bár- ust af nýstofnuðu fyrirtæki, íslands- síma hf., sem hafði á stefnuskránni að bjóða lægra verð sem markaðurinn krafðist og á betri kjörum en áður hafði þekkst. Á bak við fyrirtækið stóðu í upphafi sterkir ijárfestar á borð við Oz en samhliða öflugu uppbyggingarstarfi hefur hluthafahóp- urinn breyst og stækkað og eru Landsbankinn, Burðarás og 3p-flárhús stærstu eigendur í dag. Islandssími hefur stofnað dótturfyrirtækið Íslandssíma-GSM og ruðst inn á farsíma- markaðinn. Móðurfyrirtækið hefur skilað tapi á uppbyggingar- tímanum en á þessu ári er búist við að reksturinn skili hagnaði. Félagið stefnir á markað síðar á þessu ári. Uppruni Eyþór Arnalds er fæddur 24. nóvember 1964 í Reykjavik, elsta barn Sigríðar Eyþórsdóttur, leikstjóra og framhaldsskólakennara, f. 21. 8. 1940, og Jóns L. Arnalds, hrl. og fv. borgardómara og ráðuneytisstjóra, f. 28. janúar 1935. Fyrstu árin bjó hann í Árbæjarhverfi og byrjaði þar skóla- göngu sína en fljótlega flutti ijölskyld- an vestur í bæ og þar hélt hann skóla- göngunni áfram. Segja má að Eyþór sé alinn upp í leiklistarheiminum því hann fylgdist gjarnan með móður sinni í leikhúsinu, tók snemma þátt í vinnu í leikhúsinu og umgekkst mikið af listafólki. Systkini Eyþór á eina systur, Bergljótu Arnalds, rithöfund og leikkonu, f. 15. október 1968. Fjölskyida Eyþór er kvæntur Móeiði Júníusdóttur söngkonu, sem fædd er 4. maí 1972. Þau höfðu vitað hvort af öðru um nokkurt skeið þegar Móeiður kom á burtfarartónleikana hans. Hún segist hafa hugsað gott til glóðarinnar að kynnast klassík- inni í gegnum Eyþór en þá hafi hann verið á því tímaskeiði í líf- inu að vera búinn með klassíkina og kominn á kaf í poppið. Móeiður er dóttir Guðrúnar Guðlaugsdóttur, blaðamanns á / A örskömmum tíma hefur selló- leikarinn Eyþór Arnalds umbreyst á skemmtilegan máta, farið úr lista- mannshlutverkinu og fundið sér skaþandi farveg sem stjórnandi í einu helsta fjarskiþtafyrirtæki lands- ins. Frjáls verslun dregur upþ mynd af tónlistarmanninum og stjórnand- anum Eyþóri Arnalds. Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Nafn: EyþórArnalds. Fæðingardagur: 24. nóvember 1964. Foreldrar: Sigríður Eyþórsdóttir, leikstjóri og framhaldsskóla- kennari, og Jón L. Arnalds, hrl. og fv. ráðuneytisstjóri. Eiginkona: Móeiður Júníusdóttir, söngkona, f. 4. maí 1972. Barn: Ari Elías Arnalds, f. 20. janúar 2001. Menntun: Stúdentspróf frá MH 1984. Útskrifaðist með burtfarar- próf í sellóleik og B.A. próf í tónvísindum og greiningu úr tónsmíða- deild Tónlistarskólans í Reykjavík vorið 1988. Var í framhaldsnámi í tónsmíðum í Hollandi og Bandaríkjunum 1989-1991. Starf: Forstjóri Íslandssíma og Íslandssíma-GSM frá 1999. Átti fjölbreytilegan feril sem tónlistarmaður áður en hann varð fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Oz. Áhugamál: Starfið, stjórnmál, tónlist og vísindi. 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.