Frjáls verslun - 01.03.2001, Page 30
Bíllinn, sem allir gætu uerið sammála um að sé
„draumabillinn", hefur sennilega ekki verið
smíðaður ennþá. Hinn splunkunýi Audi A4
kemst þó nálægt því að uppfylla allar okkar óskir og
jafnvel þeirra kröfuhörðustu líka.
Með þessum bíl fylgir Audi þeirri línu sem búið var að leggja og
auðsætt er að margt hefur verið sótt til „stóra bróður" Audi AB.
f útliti eru þeir svipaðir en þó hefur A4 sitt eigið yfirbragð og
sérstöðu. Að innan er hann nýr og glæsilegur og yfirbragðið fágað
og fallegt en að utan má sjá merki hinnar nýju útlitshönnunar sem
bílar frá Audi hafa fylgt að undanförnu. Glær framljós, vatnskassa-
hlífin og há „mittislfna" er eðlilegt framhald af því sem byrjað var á.
Hjólhafið hefur verið aukið og yfirbyggingin vaxið í allar áttir, sem
leiðir af sér mun meira rými að innan.
Meira rými er fyrir farþega í fram- og aftursætum, sérstaklega fyr-
ir hnén, en það er harla gott fyrir þá sem hafa langa fætur. Pláss
fyrir höfuð og herðar er einnig meira og sömuleiðis fyrir farangur,
en farangursrýmið rúmar 445 lítra. Notkun nýjustu tækni í smíði
A4 kemur vel í Ijós strax við fyrstu ökuferð í bílnum. Enn hefur tek-
ist að bæta frábært umhverfi ökumanns sem líður eins og hann sé
í klæðskerasaumuðu umhverfi. Klæðning er í hæsta gæðaflokki og
frágangur innanrýmis er sérlega fágaður sem eykur þægindi og
vellíðan í akstri.
Staðalbúnaður hefur verið aukinn og má til dæmis nefna loftfrísk-
unarbúnað (Automatic air conditioning]. Ökumaður og farþegi í
framsæti geta valið hvor sitt kjörhitastig í akstrinum. Það að vita
til þess að öryggi var meðal þess sem haft var í huga við endur-
hönnun Audi A4, vekur þægindatilfinningu með ökumanninum.
□ryggisbúnaðurinn, sem lengi hefur verið aðalsmerki Audi var endur-
hannaður og fínpússaður fyrir þennan nýja bíl. Alls eru öryggispúð-
arnir orðnir sex, þar á meðal eru SIDEGUARD, ný lausn Audi á höf-
uðöryggispúðum, sem nú er staðalbúnaður í öllum gerðum Audi A4.
Þessir öryggispúðar, sem byggðir eru inn í þakbrúnina, hlífa nær allri
hlið bílsins að innan, þannig að minni hætta er á því að ökumaður og
farþegar skaðist á höfði við að slást í hlið bílsins komi til áreksturs.
Líkt og í öðrum gerðum Audi er val á framdrifi annars vegar eða
quattro, hinu heimsþekkta aldrifi frá Audi. Val er á fimm eða sex
gíra handskiptum gírkassa jafnt og stiglausri sjálfskiptingu sem hjá
Audi nefnist multitronic. Með multitronic-skiptingunni getur öku-
maðurinn valið á milli þess að láta stiglausa sjálfskiptinguna um að
velja besta skiptihlutfallið eða rennt skiptistönginni til hliðar og átt
þá kost á því að velja sex mismunandi handskiptistig.
Með nýju tveggja lítra bensínvélinni og sjálfskiptingunni er bíllinn
mjög þægilegur í akstri. Vélin er 4ra strokka línuvél með 1.984cc
rúmtak. Hún er með fimm ventla á hverjum strokki og 130 hestöfl
við 5.700 snúninga og nær hámarkssnúningsvæginu, 195 Nm við
3.300 snúninga.
Þessi vél kemur A4 frá kyrrstöðu í 100 km/klst á 9,9 sekúndum og
hámarkshraðinn er 212 km/klst. Meðaleyðslan er sögð vera 7,9
lítrar á hundraðið.
Að framansögðu er það því kannski engin furða að hægt sé með
sanni að kalla Audi A4 „draumabílinn".