Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2001, Page 46

Frjáls verslun - 01.03.2001, Page 46
Dr. Jón Bragi Bjarnason prófessor í lífefnafræði. „Þegar ég kom heim frá námi gerði ég mér grein fyrir því að gaman væri að rannsaka eitthvað sem tengdist ísienskum veruleika og fór að'rannsaka próteinasa úr -* — þorski og síld og sjávarfangi almennt." FV-hyndir: Geir Ólafssoti Undraáburður Jón Jón Bragi Bjarnason, doktor í líf- efnafræði og prófessor við Há- skóla íslands, er vísindamaður í viðskiptum. Nafn hans komst á allra varir sl. vetur þegar hann sagði að syk- ur væri eitur. Núna stefnir hins vegar í að hann verði þekktastur fyrir fram- leiðslu sína á áburðinum Penzim, sem gæti - fari allt á besta veg - orðið dágott efnahagsævintýri á íslenska mælistiku, og þekkt útflutningsvara. Jón Bragi stofnaði fyrirtækið Ensím- tækni ehf. utan um rannsóknir sínar og framleiðslu á Penzim áburðinum og er tilgangur fyrirtækisins að nota snyrtivöruframleiðslu. Ensímtækni er systurfyrirtæki Norðuríss, sem notar ensím til vinnslu bragðefna úr sjávar- fangi, og stendur Jón Bragi einnig að því ásamt fleirum. Ensímtækni settí Penzim á markað hér innanlands á fullveldisdaginn 1. desember sl. og viðtökurnar voru framar öllum vonum, lagerinn er núna uppurinn. Það er Pharmaco sem dreif- ir þessum nýja áburði í apótekin og lýs- ingar fólks á virkni hans eru næstum of góðar til að vera sannar. En eins og tíminn læknar öll sár þá mun tíminn ensím tíl lyijagerða og í leiða í ljós hvernig tíl tekst á næstu árum! Penzim áburðurinn er Nafn dr. Jóns Braga Bjarnasonar var á allra vörum í veturþegar hann sagbi að sykur væri eitur. En núna stefnir í að Jón Bragi verði þekktastur fyrir framleiðslu sína á nýjum áhurði, Penzimi, sem ýmsir telja að geti orðið dágott efnahagsævintýri -gangi allt upp. Eftír Vigdísi Stefánsdóttur „Þegar prófessorar á raunvísindasviði vilja hafa samstarf við atvinnulífið, þá er sjaldnast grundvöllur fyrir slíku samstarfi þannig að oft verða menn að stofna sín eigin fyrirtæki og það er sú leið sem ég valdi.“ 46

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.