Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2001, Side 51

Frjáls verslun - 01.03.2001, Side 51
Gubrún Kristmundsdóttir, framkvœmdastjóri og annar aðaleigandi Pylsuvagnsins, með Asgeiri Arnasyni, samstarfsmanni sínum. Pylsuvagn- inn er fyrsti skyndibitastaðurinn t landinu og líklega einn affyrstu veitingastöðunum. Mynd: Geir Ólafsson Brúðhjón komu úr kirkjunni Veitingastaðamenningin hefur líka gjörbreyst frá því pylsuvagninn hóf göngu sína. Veitinga- staðirnir voru fáir, fyrir rúmlega 20 árum voru Askur og Grillið vinsælir staðir en ekki var samkeppnin mikil. Smám saman fór veitingastaðamenningin að þróast, veitinga- og skyndibitastað- ir risu upp eins og gorkúlur með árunum og algengara varð að fara út að borða. Skyndibitar urðu stöðugt algengari og telur Guðrún að í dag fari fjölskyldur að minnsta kostí einu sinni í viku á skyndibitastað. A hveijum degi, í hádeginu, um miðjan daginn eða á kvöldin, koma gestír við í pylsuvagninum, sem reyndar er enn vagn - hjólin eru bara grafin ofan í jörðina, og fá sér millimál, hádegissnarl eða heila máltíð. Flestir eru við- skiptavinirnir kannski á leið úr eða í vinnu. „Fólk er kannski orðið svangt eftír langan vinnudag og kemur þá við og fær sér aukabita. Þannig hefur það alltaf verið,“ segir Guðrún. Einnig koma margir í sérstakri ferð til að fá sér pylsu í Bæjar- ins bestu og rigar hún upp að fyrir nokkrum árum hafi komið brúðhjón beint úr kirkjunni í pylsuvagninn. Karlinn var í smóking og konan í hvítum brúðarkjól. „Þetta var þeirra staður og þau sendu okkur mynd af sér iyrir utan pylsuvagninn. Það fylgdi ekki sögunni hvort þau hefðu kynnst þar en mér kæmi það ekki á óvart því að það hefur ýmislegt gerst í biðröðinni um helgar.“ Nokkuð erum að pylsuunnendurgeri sér sérferð ípylsuvagninn. Fyrir nokkrum árum komu þessi brúðhjón beint úr kirkjunni í pylsuvagn- inn. „Þetta var þeirra staður og þau sendu okkur mynd af sér fyrir utan þylsuvagninn. Það fylgdi ekki sögunni hvort þau hefðu kynnst þar en mér kœmi það ekki á óvart því að það hefur ýmislegt gerst í biðröðinni um helgar, “ segir Guðrún Kristmundsdóttir. Mynd: úr einkasafni 51

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.