Frjáls verslun - 01.03.2001, Síða 68
STJORNUN AÐ STJÓRNfl FOLKI í FYRSTfl SINN
Að reka einhvern í fyrsta sinn
Ef einhver undirmaður neitar að verða við fyrirmælum ykkar þarf að grípa til formlegrar refsingar
í fullu samráði við yfirmanninn. Endirinn á ósamlyndinu gæti orðið sá að þið þyrftuð í fyrsta sinn
að reka einhvern. Hafið þið búið ykkur undir slíkt?
Sannleikurinn er sá að flestir sætta sig við að fólk yngra en
þeir stjórni þeim. Þá ganga menn auðvitað út frá því að nýi
stjórnandinn komi fram við þá með sömu virðingu og aðra í
hópnum. Heimurinn er að breytast og eldra fólkið er vant því
að sjá mjög ungt fólk komið í yfirmannsstöður. Tækninni
fleygir líka ótrúlega ört fram og unga fólkið á oft auðveldara
með að temja sér tækninýjungarnar en hinir eldri.
Verið ákveðin Það er auðvitað gömul tugga að segja: „Verið
ákveðin, ekki frek,“ en hún er alveg hárrétt. Standið fast á því
sem þið teljið rétt og hvikið hvergi og látið fýrir hvern mun
ekki aðra ráðskast með ykkur.
Ef þið hunsið ijárhagslið starfsins er voðinn vís. Það er áþreif-
anlegt markmið að bæta við hagnaðartölu fýrirtækisins og ef
ykkur tekst það ekki, verður dómurinn í sama stíl - ykkur
tókst ekki ætlunarverkið. Þá þýðir ekkert að segja: „Eg skildi
þetta ekki alveg.“
Leiðið að þvi hugann hvaða daglegu vanaverkum þið hafið sinnt
fýrstu vikurnar eftír að þið tókuð við stjórnunarstarfinu. Skráið
þau. Lítið síðan á starfsmannahópinn og skrifið við hvert verk
nafn einhvers í deildinni sem hefði getað unnið verkið.
Lærið að hlusta! Það er ekki síður list að hlusta en tala þótt fáir
átti sig á því. Þegar þið sinnið því mikilsverða verki að meta
frammistöðu starfsmanna og efla gengi þeirra, er það úrslita-
atriði að samtölin gangi á báða bóga.
Þakkið fyrir ykkur! Það skiptir engu máli hversu mikið er að
gera, kurteisi og mannasiðir eru ávallt mikils virði og starfs-
fólkið eflist og örvast þegar það fær þakkir og hrós fýrir vel
unnin störf.
Lærið af mistökunum! Öllum verður á - sættið ykkur við það.
Þegar þið gerið vitleysu skuluð þið játa það hreinskilnislega
og hvetja aðra til hins sama. Lærið af mistökunum og finnið
leiðir til að slíkt komi ekki fýrir aftur. S3
í verki með íslenskri útrás...
Hlutverk VUR, viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneyfisins, er að efla samkeppnisstöðu og árangur íslenskra fyrirtækja á
alþjóðlegum mörkuðum. Þungamiðja starfseminnar er f sendiskrifstofum erlendis en grunnþjónusta í utanríkisráðuneytinu
í Reykjavík. Auk almennrar fyrirgreiðslu vinnur VUR að sérsniðnum verkefnum fyrir einstök fyrirtæki, en einnig eru í boði
skilgreindir þjónustupakkar s.s.:
Fyrstu skrefin
Leitað upplýsinga um hóp fyrirtækja á skilgr. markaði. Valinn listi yfir tiltekinn fjölda fyrirtækja í umdæmislöndum sendiráðs.
Næstu skref
VUR greinir markhópa, leggur mat á kynningargögn og liðsinnir við að koma á fyrstu markaðstengslum.
Viðskiptavaktin
Tiltekinn tími á dag nýttur til að fylgjast með fréttum af ákv. málefni í umsaminn tíma. Samantekt.
Lönd og markaðir
Stutt samantekt um viðskiptalönd og markaði. Gefin mynd af viðk. landi/markaði miðað við þarfir verkkaupa.
Markaðshæfni vöru
Einföld og árangursrík könnun við mat á útflutningshæfni vöru. Nýtist m.a. við stefnumörkun og markaðssetningu.
VUR á vettvangi
Leiga á viðskiptafulltrúa til fylgdar eða sem fulltrúa fyrirtækisins við tiltekin verkefni.
Eftirfylgni á markaði
Viðskiptafulltrúi viðheldur persónulegum samböndum og fylgir eftir einstökum verkefnum.
VUR viðskiptasetur
Útvegun skrifstofuaðstöðu í sendiráðum ytra. Aðgangur að samskiptatækjum og túlkum.
VUR • Rauðarárstíg 25 • 150 Reykjavík • Sími 560 9930 • Bréfsími 562 4878 • vur@utn.stjr.is • www.utn.stjr.is/vur
68