Frjáls verslun - 01.03.2001, Síða 88
Finnur Thorlacius, markaðsstjóri hjá Tæknival, segist hafa tekið algera þverbeygju í náminu. Farið úr
landfræði í viðskipta- og markaðsfræði en ekki séð eftir því þar sem viðskiptatengt efni hafði lengi vakið
áhuga hans. FV-mynd: Geir Olafsson
FÓLK
hingað 1. ágúst sl. Þetta hefur
verið mjög skemmtileg vinna,
ekki síst við það að taka þátt í
uppbyggingunni sem hefur
átt sér stað hjá þessum fyrir-
tækjum, en ég hef einhverra
hluta vegna starfað hjá fyrir-
tækjum sem standa í stór-
ræðum og þar sem mikið er
um að vera. Eg hef eignast
mikið af góðum vinum í
gegnum störf mín, sem er
ánægjuleg viðbót við æsku-
vinina.
Hvað varðar áhugamál
segir Finnur þau tengjast úti-
veru og íþróttum að miklu
leyti. „Eg er alger íþrótta-
dellumaður. Eg spilaði hand-
bolta með Víkingi lengi vel og
varð tvívegis Islandsmeistari
með þeim. Eg hætti að spila
handbolta þegar ég var 22-23
Finnur Thorlacius, Tæknivali
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
Starf mitt er nokkuð ijöl-
breytt og er meðal ann-
ars fólgið í því að annast
markaðs- og útgáfumál fyrir-
tækisins," segir Finnur Thor-
lacius markaðsstjóri Tækni-
vals. ,Auk þess þarf ég að
gæta að ímynd fyrirtækisins
og vera í samskiptum við
birgja, auglýsingastofur og
fjölmiðla. Einnig þarf að
huga að vefmálum því Netið
er orðinn óijúfanlegur hluti
tölvufyrirækja eins og gefur
að skilja. Með mér í því er
hér í Tæknivali kynningar-
stjóri, Gunnar Salvarsson
sem skrifar mikið á vefinn og
sinnir einnig almannatengsl-
um. Við sjáum sjálfir mikið
um listagerð og útgáfu bæk-
linga af ýmsu tagi sem og
auglýsingar og ekki minnkar
það nú þar sem fyrirtækið
kemur til með að vera með
þijú andlit út á við, en Tækni-
val rekur BT verslanirnar og
svo vorum við að opna nýjan
stórmarkað með skrifstofu-
búnað, Office 1, sem stað-
88
settur er á jarðhæð hjá okk-
ur. Office 1 er hluti stórrar
verslunarkeðju, um 300
verslana um allan heim og
erum við mjög bjartsýnir á
framtíðina með slíkt flagg-
skip. Við erum að vísu ekki
alveg eins stoltir af því að
þurfa að kynna markaðinn
með erlendu heiti en við það
fæst ekki ráðið, við erum
hluti af þessari öflugu keðju
og njótum styrks þeirra und-
ir þessu nafni, þó hann sé al-
farið í eigu Tæknivals hér-
lendis. Meginmarkmið nýja
stórmarkaðarins er að lækka
vöruverð og bjóða allt sem
þarf til skrifstofuhalds á ein-
um stað og við teljum að ís-
lensk fyrirtæki muni taka
komu hans opnun örmum.“
Finnur er fæddur og upp-
alinn í Reykjavík. „Eg þjó
fyrstu 12 árin í Bólstaðarhlíð,
þau 12 næstu í Fossvoginum
en kvæntist svo eiginkonu
minni, Herdísi Sif Þorvalds-
dóttur, 24 ára gamall og flutt-
um við þá vestur í bæ. Eg er
stúdent frá MS og landfræð-
ingur frá HI. En þá tók ég al-
gera þverbeyau í náminu og
sneri mér að viðskiptafræði
þar sem ég tók masterspróf,
MBA, frá háskóla í Florida.
Ástæðan er kannski fyrst og
fremst sú að ég sá heldur litla
tekjumöguleika í landafræð-
inni, en einnig sú að ég hafði
alltaf taugar til viðskiptafræð-
innar og allt valnám mitt í HÍ
var á því sviði“
I miðju námi Finns eign-
uðust þau hjón barn og komu
heim til Islands um tíma. Þá
réði ég mig til BYKO og kom
þangað aftur eftir að ég lauk
náminu, var þar fyrst mark-
aðsfulltrúi en síðan markaðs-
stjóri „Eg var þar í fjögur ár
og fór til IKEA nokkrum
mánuðum áður en þar var
opnað, til að sinna markaðs-
málum og annast opnunina.
Eg starfaði í fjögur ár sem
markaðsstjóri en þá hringdi
Frosti félagi minn hjá Ný-
heija í mig og spurði hvort ég
gæti stungið upp á einhverj-
um góðum í starf markaðs-
stjóra þar og ég stakk upp á
sjálfum mér!. Þar var ég
næstu fjögur árin og kom svo
ára og fór út í fótbolta en það
var meira hobbý með námi
og síðar vinnu. Eg spilaði í 2.
og 3. deild með Skallagrími í
Borgarnesi í 5 ár en hef ann-
ars verið í öllum mögulegum
íþróttum. Keppt í hlaupum og
hjólreiðum og er í fjallahjól-
reiðahópi með mjög
skemmtilegum hópi og svo
fer ég á skiði til útlanda á
hveiju ári en það eru bestu frí
sem ég get hugsað mér. Ann-
ars ferðumst við mjög mikið
því konan mín er flugfreyja
og við höfum mjög gaman af
því að skoða heiminn. Þó
reynum við að eyða sumrinu
hér heima og erum gjarnan á
flakki um landið. Síðasta
sumar eyddum við fjórum
vikum samfleytt í að aka um
landið og eltum bara góða
veðrið. Við gistum annað
hvort í tjaldi eða á hóteli og
nutum þess til fulls að vera
saman öll fjögur, við hjónin
og börnin okkar sem eru tíu
ára strákur og fjögurra ára
stúlka. Þau eru nú reyndar
aðaláhugamálið mitt ef út í
það er farið.“ 33