Frjáls verslun - 01.11.2001, Blaðsíða 79
NflMSKEIÐ í BOÐI
Félagsmenn margra stéttarfélaga njóta afsláttarkjara hjá
Rafiðnaðarskólanum auk þess sem ijölmörg stéttarfélög
styrkja sína félagsmenn til náms.
CTEC á íslandi CTEC á íslandi er tæknikennslusetur með
vottun frá Microsoft og CISCO Systems. Þar er boðið upp á
námskeið fyrir sérffæðinga og námsbrautir fyrir þá sem vilja
styrkja stöðu sína eða undirbúa sig fyrir störf í upplýsinga-
tækni. Rafiðnaðarskólinn hefur um árabil staðið fyrir miklu úr-
vali námskeiða fyrir sérfræðinga í tölvugeiranum og verða
þessi námskeið hér eftir kennd hjá CTEC á Islandi af sömu
kennurum og áður, auk þess sem nýir hafa bæst í hópinn.
Með vottun Microsoft er skólinn skyldugur til að uppfylla
ströng skilyrði varðandi hæfni, menntun og símenntun kenn-
ara og nú þegar hafa nokkrir kennarar uppfyllt skilyrði fyrir
CTT kennaragráðu og nokkrir kennarar hafa MCT kennara-
gráðu frá Microsoft. Þar að auki stunda allir kennarar skólans
stöðugt nám í sinni grein og eru undir handleiðslu kennslu-
fræðings til þess að fylgjast með nýjungum á því sviði og
stöðugt auka færni sína í miðlun námsefnis.
Stærstur hluti námskeiða eru námskeið frá Microsoft fyr-
ir stjórnendur og þjónustuaðila netkerfa en einnig eru mörg
námskeið í hugbúnaðargerð, tölvuöryggismálum og öðrum
stýrikerfum. Þá má ekki gleyma CISCO en CTEC á Islandi
var nýverið útnefnt sem Regional/Local Networking
Academy af Cisco Systems. í þessu felst að stofnunin mun nú
bjóða sérstakt nám sem Cisco hefur þróað til að mennta fólk
í tækni tölvuneta.
Dagskrá námskeiða er ákveðin fyrir eina önn í senn en
þegar ný námskeið bætast við eða eftirspurn eykst eftir ein-
hverju námskeiði bregst skólinn hratt við. Einnig býðst að
setja upp sérstök námskeið fyrir hópa eða fyrirtæki og geta
þau verið sérhönnuð ef fyrirvari er nægur.
Hjá CTEC á Islandi er einnig prófamiðstöð þar sem hægt
er að taka alþjóðleg próf og öðlast vottun á færni með próf-
gráðum.
Annað nám Lengra nám í viðskiptum, tölvutækni og öðru
því sem að gagni kemur í viðskiptalífinu og reyndar atvinnu-
lífinu almennt, er að fá í Háskóla íslands, á Bifröst, Háskólan-
um í Reykjavík, Tækniskólanum, Yiðskipta og tölvuskólan-
um, Iðnskólanum, Háskólanum á Akureyri og fleiri stöðum.
Víst er að fátt er óvinnandi þeim sem læra vill og jafnvel þeim
sem eru í fullri vinnu, eða því sem næst, býðst nám í
nokkrum skólum, bæði viðskiptatengt og stjórnunarnám
sem sérstaklega er sniðið að þeim sem eru í vinnu. Fremstur
er þar Háskóli Islands, með Endurmenntun HI sem hefur
verið í fararbroddi hvað slíkt nám varðar um árabil en fast á
eftir fylgir Háskólinn í Reykjavík.
Og ekki má gleyma ijarnámi en með því aukast möguleik-
ar þeirra sem úti á landsbyggðinni búa og ekki síður þeirra
sem eiga illa heimangengt. Margskonar nám er hægt að
stunda sem ijarnám og hafa nokkrir skólar gengið á undan
með góðu fordæmi og hafa íjölmargir nemendur nýtt sér
þessa möguleika. 55
Þekking og þjálfun
Sérfræðingar IMG hafa fjölbreyttan bakgrunn og mikla
reynslu í að miðla þekkingu til fólks. Daglega takast þeir
á við fjölbreytt verkefni með stjórnendum og frumkvöðlum
atvinnulífsins.
Það er því óhætt að segja að þeir séu með púlsinn á
íslensku atvinnulífi. í krafti þess bjóðum við upp á
fyrirlestra, námskeið og þjálfun í margvíslegum
viðfangsefnum, allt eftir þörfum viðskiptavina.
Leyfðu þínu fyrirtæki að ná mikilvægu samkeppnisforskoti
með þekkingu og þjálfun.
IMG Þekking og þjálfun bíður upp á
fræðslu í eftirfarandi efnisflokkum:
• Færni og árangur
• Stjórnun
• Starfsmannamál
• Stjórnandinn og samskipti
• Þjónusta
• Markaðsmál
• Þjóðfélagsmál
V)
cn
.1
§
Sumir eru alltaf einu skrefi á undan- hvernig fara þeir að því?
IMG • Laugavegi 170 • 105 Reykjavík • Sími: 540 1000 • Fax: 540 1099 • img@img.is
79