Frjáls verslun - 01.11.2001, Side 84
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNflR
Vatn
breytist
kannski
ekki í uín
en...
Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari Frjálsrar
verslunar í Bretlandi, líturyfir árið og blaðar i
breskum blöðum. íslensk fyrirtæki komu þar
nokkuð við sögu á árinu. Evran verður mál
komandi árs og efeitthvað er að marka Abby
Cohen, sem í fiármálaheiminum er í guðatölu
fyrir glöggskyggni, þá breytist vatn kannski ekki í
vín, en hún segir að botninum sé náð og kúrfan
muni vísa upp á næsta ári.
Lundúnapistill eftir Sigrúnu Davíðsdóttur
W
Arið hefur verið rússíbanaferð hjá mörgum fyrirtækjum, sum
farið meira upp en niður, önnur hina leiðina. Margir tala um
óvissu og þeirri óvissu hafa atburðirnir 11. september hert
á - en öldungis ekki skapað. Bretar eru nokkuð öruggir um að
þeir standi sterkar að vígi en bæði Evruland og Bandaríkin og
vissastur allra er Gordon Brown fjármálaráðherra, sem er hugs-
anlega farinn að styðja við bakið á Tony Blair fjármálaráðhcrra í
evrufortölum, þó að það sé enn ekki óyggjandi. Evran verður mál
komandi árs. Nú bíða menn spenntir að sjá hvernig jólaverslunin
verði, hvort áhrifa gæti af uppgufuðum bónusum og uppsögnum,
ekki síst í fjármálageiranum og iðnframleiðslu.
Vatn breytist kannski ekki í vín á næsta ári, en botninum er náb og
kúrfan mun fara að vísa upp, ef marka má Abby Cohen, sem er í
guðatölu í breska jjármálaheiminum.
íslensk fyrirtæki í Financial Times Á árinu hafa íslensk fyrir-
tæki komist ærlega á kortið í breskum ijölmiðlum. Skyldi það
nokkurn tíma hafa gerst áður að íslenskt fyrirtæki kæmist á for-
síðu Financial Times og það með heilar Jjórar tilvísunarfréttir
eins og gerðist þegar sú frétt lak út - ótímabært reyndar - að
Baugur freistaði þess að kaupa Arcadiu? Sjávarleður á Sauðár-
króki með hátískuvöruna fiskroð og Islensk vistorka með nýjar
leiðir í orkumálum hlutu líka umtjöllun, ásamt Netverki og öðr-
um fyrirtækjum, sem voru kynnt á Jjárfestingastefnu Utflutn-
ingsráðs hér í vor. Það er kannski ofsagt að Island hafi verið í
brennidepli athyglinnar á árinu - það þarf meira til en bara að vera
svalt - en umJjöllunin hefur verið drjúg í Englandi. Reykjavík er
ofúrsvöl borg - það vita allir hér, þó fæstum sé almennilega ljóst
af hverju. Helst giskað á að það sé vegna ofuröflugs skemmtana-
lífs og ofurhás bjórverðs. Það er auðvitað viðbrigði að koma héð-
an þar sem fá má tvö háifslltra bjórglös með freyðandi bjór Jyrir
2,50 pund, þó að fallin króna gefi ekki rétta mynd af verðlagi hér.
Pakkaferðir á Ungfrú ísland - keppnina Flugleiðir hafa um
árabil lagt sitt af mörkum til að skapa þessa svölu mynd með
því að gera út á að auglýsa íslenskt kvenfólk af sjaldgæfu
smekkleysi. Beru stelpurnar í lopapeysunni um árið mörkuðu
upphaf þessarar háleitu landkynningar. Hámarkið - alla vega
hingað til - var grein á árinu um pakkaferðir á Ungfrú ísland-
keppnina þar sem þátttakendum var boðið að hitta stelpurnar.
Lýsing bandarísks blaðamanns á ferðamönnunum, mest karl-
mönnum á aldri við feður stelpnanna (því hverjir aðrir en
rosknir menn hafa efni og áhuga á svona ferð) og fundi þeirra
við stelpurnar, var meira en ámátleg. Stelpurnar stóðu sig vel,
létu koma krók á móti Flugleiðabragðinu og gerðu eins og
Islendinga er siður innan um útlendinga: nenntu ekkert að tala
við þá heldur vildu miklu frekar tala sín á milli á móðurmálinu.
Þegar átrúnaðargoðið Abby Cohen talaði yfir okkur erlendum blaðamönnum hér í London var
kvíðinn rekinn á braut. Að hennar sögn er botninum náð og kúrfan mun vísa upp á næsta ári.
84