Frjáls verslun - 01.08.2002, Blaðsíða 32
m 1
miiif
Ráðisi vartil inngöngu hjáfjórum grænmetisheildsölum til að kannagrun um ólöglegt samráð. Þessi mynd er afhúsnæði Sölufélags garðyrkju-
manna.
unar lágu fyrir. Þeim þætti málsins var þar með lokið. Stofn-
unin tilkynnti hinsvegar að hún myndi skoða almennt hvort
ólögmætt samráð ætti sér stað hjá vátryggingafélögunum og
er þeirri athugun ekki enn lokið.BS
Grænmetisfyrirtækin 1999
^Tarfsmþnn Samkeppnisstofnunar stóðu að rannsókn á fram-
'^lejðrfu, innflutningi og dreifingu grænmetis og ávaxta árið
Guðmundur Sigurðsson, framkvœmdastjóri samkeppnissviðs hjá Sam-
keppnisstofnun, segir að húsleit sé neyðarúrræði og henni sé aðeins beitt
þegar það teljist bráðnauðsynlegt í þágu rannsóknarhagsmuna og eina
leiðin til að uþþlýsa mál. Starfsmenn stofnunarinnar fari eftir laga-
heimildum út í ystu æsar og fylgt sé innri starfsreglum, sem ekki séu
birtar oþinberlega.
leit er neyðarúrræði
Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri samkeppnissviðs
hjá Samkeppnisstofiiun, segir að húsleit sé neyðarúrræði og
henni aðeins beitt þegar það teljist bráðnauðsynlegt í þágu rann-
sóknarhagsmuna og eina leiðin til að upplýsa mál. Starfsmenn
stofnunarinnar fari eftir lagaheimildum og innri starfsreglum út
í ystu æsar þegar grunur um brot á sviði samkeppnismála er
rannsakaður en innri starfsreglur eru ekki birtar opinberlega.
Hann segir að húsleitarúrskurður sé afhentur við komu í fyrir-
tækið og ekki sé farið fram af neinni hörku, heldur ekki þótt lög-
reglumenn séu með í för. Þeirra hlutverk sé bara að sjá til þess
að starfsmenn samkeppnisyfirvalda fari að settum reglum og að
þeir fái næði til húsleitar. Guðmundur minnir á að dómstólar
hafi dæmt samkeppnisyfirvöldum í hag þegar reynt hefur verið
að fá húsleit hnekkt eftir á.
- Er nauðsynlegt að beita svona harkalegum aðgerðum?
,Já, það getur verið nauðsynlegt og það eru fleiri þeirrar skoð-
unar en bara við. Þetta er heimild sem öll samkeppnisyfirvöld
hafa eftir þvi sem ég best veit, hvort sem það er hér á landi eða
erlendis. Þessi heimild er mismunandi víðtæk eftír löndum. Það
er misjafnt hvort þarf að taka ljósrit á staðnum eða hvort leggja
má hald á gögnin og taka afrit síðar. Sums staðar erlendis hafa
samkeppnisyfirvöld heimild til að gera húsleit á heimili stjórn-
enda viðkomandi fyrirtækja en hér er ekki lagaheimild tíl þess,“
svarar Guðmundur og vill engu svara um það hvort slík heimild
væri æskileg hér á landi.
Samkeppnisyfirvöld hafa sent leitarsveit tíl húsrannsóknar í
fimm tílvikum og segir Guðmundur að umfangsmesta rann-
sóknin hafi verið árið 2001 þegar gerð var húsleit hjá olíufélög-
unum. Ríflega 50 starfsmenn tóku þátt í þeirri leit og nánast
tæmdist stofnunin meðan starfsmennirnir voru á vettvangi. Það
er þó ekki hlaupið í aðgerð af þessu tagi. Guðmundur segir að
undirbúningurinn hafi verið mjög mikill. Aðeins fáir starfsmenn
hafi unnið að undirbúningnum og því hafi aðeins fáir vitað af yfir-
vofandi rannsókn fram á síðustu stundu. Þá hafi aðrir starfs-
menn verið settir inn í málavöxtu og síðan haldið á vettvang. SU