Frjáls verslun - 01.08.2002, Blaðsíða 50
LUNDUNAPISTILL SIGRUNflR DflVÍÐSDÓTTUR
Boðskapur Mörthu er hlýja og notalegheit Sögusagnirnar
fjalla um hvernig hún niðurlægir starfsfólkið, urrar á aðdáendur,
sem ávarpa hana á veitingastöðum, og traðkar á og sparkar í fólk
eftir þvi sem hún þarf og getur. Myndin, sem er dregin upp af
henni, er af konu, sem veður jörðina í hné af dugnaði, kemst af
með fjögurra klukkustunda svefn og er alltaf að. Það er minna
notalegt en meira manískt í fari hennar ef grannt er skoðað.
Þessar hliðar eru uppistaðan í grínsíðu um Mörthu, www.mrs-
megabyte.com. Aðrir segja sögusagnirnar enduróma óhjá-
kvæmilega af öfund í garð konu, sem hefur byggt upp víðtækt
viðskiptaveldi með rúmlega 600 manns í vinnu.
Eiginmaðurinn Stakk at Þar sem Martha hefur byggt öll sín um-
svif á eigin ævi og sögu þá hefur athygli ljölmiðla líka beinst
ótæpilega að henni. Þegar hún skildi fyrir um tíu árum nærðust
ljölmiðlarnir á þvi mánuðum saman. Asakanir flugu á báða bóga.
Eiginmaðurinn, að sögn orðinn þreyttur á að vera statisti í Mört-
huheiminum, sífellt tuktaður til af eiginkonunni sem var stöðugt
að halda boð, endurskipuleggja garðinn og taka húsið í gegn.
Hann stakk af með yngri samstarfskonu Mörthu, eftir að hafa, að
sögn Mörthu, haldið fram hjá henni, til dæmis með frægðarkonu
eins og rithöfundinum Ericu Jong. Man ekki einhver eftir „Flug-
hræðslu" frá 8. áratugnum? Frægur sækir frægan heim, eins og
máltækið segir. Martha hefur bæði verið séð og óséð í viðskipt-
um. Hún hefur haft einstakt lag á að fá það mesta út úr öllum
samningum. Þegar hið þekkta fyriræki KMart, sem þykir víst
frekar hallærisleg búðarkeðja með ódýru dóti, fékk Mörthu sem
talskonu sína datt ekki nokkrum manni í hug að hún væri valin
sökum ákafra viðskipta í KMart. Fyrirtækið ætlaði bara að notast
ögn við hana til að klippa á borða í nýjum búðum. Samstarfið þró-
aðist svo út í sérstakar Mörthuvörur, seldar í Kmart og síðan
með tengingu milli vefsíðu Mörthu og búðarkeðjunnar. Martha
fékk æ meira fyrir sinn snúð. Um 1990 seldust Mörthuvörur í
Kmart fyrir milljarð dala og skerfur hennar var drjúgur. Nú er
búðarkeðjan í greiðslustöðvun og framtíðin ótrygg. Sérfræðing-
um ber saman um að Martha eigi ekki sök á þvi heldur stafi það
af samkeppni við harð-
snúna andstæðinga, m.a.
Wall-mart, og samdrátt al-
mennt.
En Martha hafði fleira
út úr Kmart. Þegar eigin-
maðurinn yfirgaf hana átti
hún í vandræðum með bú-
skiptin, auk þess sem hún
var einmana í húsinu og
hverfinu. Þá fékk hún ein-
faldlega kjörbúðina tíl að
kaupa af sér húsið fyrir 50
milljónir dala til að nota
sem umgjörð um markaðs-
setningu Mörthuvaranna.
Þetta þykir gott dæmi um
hæfileika hennar til að láta
aðra hirða tapið, meðan
hún sér um gróðann.
Þegar Time Warner
hleyptu tímaritinu Martha
Stewart Living af stokkun-
um seldist tímaritið strax í
Martha hringdi í Waksal og var „svo heppin“
að selja bréfin sín í lyfjaþróunarfyrirtækinu
ImClone deginum áður en bandaríska
lyfjaeftirlitið tilkynnti ákvörðun sína um
fyrirtækið og bréfin í því hrundu í verði.
650 þúsund eintökum. Time Warner keypti Mörthu Stewart-
nafriið. Fyrir þremur árum keypti Martha nafnið sitt aftur og fór
með Martha Stewart Living Omnimedia á markað. Á einum degi
græddust henni næstum 600 milljónir dala. Eignir hennar, metn-
ar á rúma 600 milljónir dala, stukku upp í 1,2 milljarða. Þessi við-
skipti hennar við Time Warner þóttu feikisnjöll.
Skellti sér á bólakaf í hlutabréfaviðskipti Martha hefur alltaf
fylgst með tímanum og auðvitað fór hún að óðaversla í hluta-
bréfúm á síðasta áratug. Dóttir hennar átti um tfcna vingott við
náunga að nafni Sam Waksal, frumkvöðul, sem umgekkst frægt
fólk. Sambandið datt upp fyrir en Martha og Waksal héldu sínu
sambandi og sáust oft saman. Waksal setti á stofn líftæknifyrir-
tækið ImClone, sem Martha Ijárfesti í. Fyrirtækið var í lyfjaþróun
en rétt fyrir síðustu áramót fékk Waksal að vita að bandaríska
lyfyaeftirlitið, Food and Drug Administration, ætlaði að hafria
umsókn um að fá að framleiða krabbameinslyf, sem miklar vonir
voru bundnar við.
Sama dag hringdi Martha í Waksal, en náði bara í símsvarann,
og spurði hvað væri um að vera í ImClone. Hún lét síðan Peter
Basanovic einkaverðbréfasala sinn hjá Merril Lynch selja hlut
sinn í ImClone á gengi sem þá var 58 dalir. Daginn efdr, þegar
ákvörðun FDA varð opinber, féll verðgildið niður í 10 dollara.
Merril Lynch hefur nú rekið Basanovic, fyrrum starfsmann
ImClone, vegna málsins og afhent yfirvöldum gögn um söluna.
Waksal er ákærður fyrir innheijaviðskipti, skjalafals og að hafa
eyðilagt skjöl, sem snerta málið.
Blasir limm ára fangelsi við henni? Þingnefnd, sem er með
ImClone i rannsókn vifl ræða við Mörthu, en hún hefur beitt lög-
fræðingum fyrir sig og neitar að svara. Nú á hún yfir höfði sér
ákæru fyrir falskan vitnisburð. Sannist það gæti hún átt á hættu
allt að fimm ára fangelsi. Einn þingmannanna, sem kemur að
rannsókn málsins er Billy Tauzin, sem til skamms tíma hafði
mynd hangandi á skrifstofunni af sér svuntuklæddum í mat-
reiðsluþætti Mörthu. Svo vill til að þátturinn var endursýndur
þegar ljóst var að Tauzin kæmi að rannsókninni. Einn af mörgu
frægðarfólki, sem kom í hádegismat hjá henni, var Bill Clinton
þáverandi Bandaríkjaforseti.
Fyrir utan þá sem hafa áhuga á frægu fólki fylgjast ýmsir í við-
skiptalífinu af áhuga með Mörthumálinu. Einn athyglisverður
vinkill málsins eru áhrif þessa álitshnekkis Mörthu á fyrirtæki
hennar. Missir fólk lystina á matnum hennar og dótinu, sem hún
mælir með, ef hún verður uppvís að svindli? Undanfarin misseri
hafði það reyndar verið ákaft rætt innan fyrirtækisins hvort ekki
væri nú hollara fyrir afkomuna að draga ögn úr ofurnotkuninni á
persónunni sjálfri og hvort ekki væri best að einhver tæki við af
henni sem æðsti yfirmaður. Spurningin er hvort Martha Stewart
getur staðið sem vörumerki ef hin eina sanna Martha Stewart
verður dæmd fyrir svindl, svo ekki sé nú talað um hvað gerist ef
hún verður einfaldlega dæmd í fangelsi. S3
50