Frjáls verslun - 01.08.2002, Blaðsíða 49
Martha varð 61 árs hinn 3. ágúst sl. Hún lítur samt ekki út fyrir
að vera klukkustund eldri en fertug. Flestir telja að hún sé
frekar ímynd en veruleiki því það er allt svo óendanlega sætt
í kringum hana. Sú ímynd hefur hins vegar gert hana að millj-
arðamæringi.
húsið. Auðvitað er borðið skreytt með gylltum og silfurlitum
könglum, sem húsmóðirin málaði í gær. Og allir landar hennar
vita hvað það þýðir þegar eitthvað er „svo Mörthulegt“.
Innherjaviðskipti (ImClone? Of gott til að vera satt? Kannski
- en nógu gott til að gera Stewart að einni af ríkustu konum í
Bandaríkjunum og þó víðar væri leitað. Um tíma var veldi
hennar metið á rúman milljarð Bandaríkjadala. Nú hefur það
dalað því til að spara sér verðbréfatap upp á 227 þúsund dali er
hún grunuð um innherjaviðskipti í ImClone, hrundu líftækni-
fyrirtæki. Auðvitað skiptimynt miðað við að hlutabréfin í
Martha Stewart Omnimedia, eignarhaldsfélaginu sem stjórnar
Mörthuheimi, hafa rýrnað um 140 milljónir Bandaríkjadala
eftir að hneykslið varð ljölmiðlafæða snemma á árinu. Martha
hefur sýnt sig að búa yfir ýmsum notadrjúgum eiginleikum.
Hún er einkar snoppufríð og einn blaðamaður hefur upplýst að
hún hafi laglegan bakhluta. Ekki margir karlar í viðskiptaheim-
inum sem fá slík meðmæli. Andlitsmyndirnar sýna andlit, sem
á engan hátt kemur heim og saman við konu sem fædd er árið
1941. Á myndunum, sem hafa endalaust þakið allt Mörthuefn-
ið, virðist hún ekki klukkustund eldri en fertug. Martha
Kostyra er næstelst sex systkina og af pólskum ættum. Ævi-
saga Mörthu, þegar efni í tvær bækur, er til í tveimur útgáfum:
hennar eigin, sem hún hefur ausið ótæpilega af í skrif-
um sínum - þar er allt notalegt og sætt - og svo
bækurnar og fjöldi greina þar sem kemur fram heldur
önnur mynd.
Rétt kona á réttum stað á réttum tíma Martha hefur alltaf
haft hæfileika til að gera réttu hlutina á réttum tíma -
nema kannski þetta með ImClone. Hún var sæt og smart
í menntó, kosin best klædda menntaskólastelpan af tíma-
ritinu Glamour. Svo flutti hún sig um set yfir Hudson-ána,
yfir á Manhattan, giftist Andy Stewart laganema. Þegar
þau voru nýgift fæddist þeirn dóttirin Alexis 1965. Fram-
sæknar konur af kynslóð Mörthu fóru út á vinnumarkað-
inn og Martha gerðist verðbréfasali. Svo illa vildi til að fyr-
irtækið, sem hún vann hjá, lenti undir smásjánni hjá
bandaríska Jjármálaeftirlitinu. Martha sjálf lá ekki undir
grun, heldur eigendurnir, en hún flýði af hólmi, að sögn
eins Jjölskylduvinar. Hún og íjölskyldan fluttust til West-
port í Connecticut. Þau keyptu gamlan bóndabæ við göt-
una Turkey Hill, sem núna er orðin jafnfræg og Martha.
Hún gerði bæinn glæsilega upp. Hún hafði tilfinningu fyr-
ir því að góður matur og hugguleg heimboð væri að verða
smai't og komast í tísku í upphafi 8. ái'atugarins. Hún og
vinkona hennar fóru að sjá um veislur og elda mat sem
fólk vildi láta líta út eins og það hefði eldað sjálft. Vinkon-
an féll úr skaftinu, Martha hélt álfam.
Metsölubékin Entertaining Næsta skref kom Mörthu ær-
Iega á kortíð. Matreiðslubókin Entertaining kom út 1982
og hefur orðið ein söluhæsta matreiðslubókin í Bandaríkj-
unurn og sögð sígild. Bókin snerist ekki aðeins um upp-
skriftír, heldur um allt sem tilheyrir mat og matarboðum,
eins og tauservíettur, blómaskreytingar og svo steinselju,
kapers og ólífur í öllu. Uppskrifúrnai' voru ekki endilega
allar verk Mörthu, en hún sauð saman metsölublöndu,
sem hefur dugað í 24 matreiðslubækur, sem allar hafa
selst í metupplögum. Það var þessi lifsstílstenging sem
hefur skapað heilan Mörthuheim. Það er ekki út í bláinn að bók
eftír hana, skrifuð af fyrrum nágranna hennar og vini, Christoper
Byron, heitir Martha Inc. Núna er Byron reyndai- fyrrverandi
vinur. Martha Stewart Living Omnimedia spannar mánaðarrit
eins og Martha Stewart Living, þar sem hvert tölublað selst í 2
milljónum eintaka, Martha Stewart Weddings sem kemur út
Ijórum sinnum á ári og selst í 650 þúsundum eintökum, þó
eigandinn sé löngu komin af besta giftingaraldri. Nýjasta
afkvæmið er Martha Stewart Baby, þó eigandinn sé líka löngu
kominn af barnaeignaaldri. Martha Stewart by Mail er katalógur.
Martha Stewart Everyday eru vörur fyrir eldhús og heimili. Ask-
Martha eru blaðadálkar og útvarpsþættir. Svo eru það sjónvarps-
þættir, að ógleymdu www.marthastewart.com með tvær milljónir
skráðra notenda.
Uppistaðan í útgáfu Mörthu af sögu sinni er að hún hafi alist
upp við kröpp kjör og því snernma lært allt sem sneri að hús-
haldi, bæði matreiðslu, ræstingu og saumaskap. En þarna ríkti
gleði og hlýja í kröppu kjörunum og allt var svo sætt og nota-
legt þó það væri grunnt í buddunni. Aðrir segja frá kaldlyndri
móður og drottnunargjörnum föður. Þeir sem hafa brotið
Mörthu til mergjar í Jjölmiðlunum benda á að hún hafi notað
allt sitt líf í að flikka upp á dapurlega æsku sína og flýja
pabbann, sem dó reyndar 1979, en um leið orðið eins og hann.
49