Frjáls verslun - 01.08.2002, Blaðsíða 105
STADANI flSKIPTALIFINU
Forgangsverkefni forstjóra næstu tólf mánuðina? „Þau eru
auðvitað jafn mismunandi og fyrirtækin eru mörg og í hvaða
geira þau starfa. Að mínu mati felast helstu verkefnin í sjávar-
útvegi í stefnumótun fiskeldis, betri nýtingu rekstareininga og
áframhaldandi hagræðingu innan greinarinnar.“
Botni hagsveiflunnar náð? „Það er erfitt að skynja hvenær
slíkum tímapunkti er náð en ýmis jákvæð teikn eru á lofti sem
styðja það sjónarmið."
Hvað hefur einkcnnt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og telur
þú að það nái settum markmiðum? „Rekstrarskilyrði fyrir-
tækisins hafa að mestu verið góð og á þeim grunni var starf-
semin útvíkkuð með kaupum í öðru fyrirtæki. Markmiðum
þessa árs hefur að mestu verið fullnægt og er ekkert í spilunum
sem gefur tilefni til annars en áframhaldandi bjartsýni." 35
■* I ^ ■
M •**"' Jijj
^I LamJsbankinn arið 2001:
■ a JgmíMm E. stærsta fyrirtækið.
I 31,4 milljarðar.
E • ÆT' 1>8 milljarðar.
ItffllBlMflBBI! 15,5 milljarðar.
„Staðan núna er mjög svipuð og þegar
botni hagsveiflunnar var náð í fyrri alþjóð-
legu efnahagslægðum 1982/1983 og 1991.“
Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Islands.
Halldór Jón Kristjánsson
bankastjóri Landsbanka Islands.
Mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu? „Hinn hraði viðsnúningur
sem varð í efnahagslífinu, m.a. með styrkingu krónunnar, góðum
árangri í baráttunni við verðbólguna sem aftur þýddi að forsendur
voru til að helja ferli vaxtalækkana. Sá mikli viðsnúningur sem
orðið hefur í afkomu og rekstri fyrirtækja á markaði, ekki síst
útflutningsgreinunum, er afar ánægjulegur.“
Forgangsverkefhi forstjóra næstu tólf mánuðina? „Forgangs-
verkefiii forstjóra í fyrirtækjum á næstu 12 mánuðum er að
halda áfram að auka arðsemi með þvi m.a. að leita leiða við að
auka stærðarhagkvæmni. Brýnt er að ná fram frekari sam-
legðaráhrifum með samruna fyrirtækja í sömu atvinnugrein.
Það þarf að vera forgangsverkeíhi stjórnenda banka og spari-
sjóða að nýta þau tækifæri til samvinnu og samruna sem eru á
íslenska tjármálamarkaðnum, samhliða eflingu á þjónustufram-
boði fyrir viðskiptamenn."
Botni hagsveifhmnar náð? „Við teljum að botni hagsveiflunnar
sé náð. Alþjóðlega er þróunin, sem við höfum séð frá þvi seint á
síðasta ári og fyrri hluta árs 2002 - með hægum viðsnúningi, mjög
svipuð og þegar botni hagsveiflunnar var náð í fyrri alþjóðlegu
efnahagslægðum, hvort sem litið er til vetrarins 1982/1983 eða
ársins 1991.“
Hvað hefúr einkennt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og telur þú
að það nái settum markmiðum? ,Aframhaldandi hagræðing í
rekstri hefur einkennt rekstur Landsbankans ásamt vel heppnaðri
útrás með kaupum á Heritable Bank í London. Þrátt fyrir lægð á
verðbréfamörkuðum á öðrum og þriðja ársljórðungi er ekkert
tfarn komið sem bendir til annars en að settum markmiðum
Landsbankans um arðsemi og kostnaðarhlutfall verði náð í ár.“ HD
Hörður Arnarson
forstjóri Marels.
Mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu? ,Á erlendum vettvangi
hafa það einkum verið umfangsmikil spillingarmál í ýmsum
fyrirtækjum í Bandaríkjunum. Á innlendum vettvangi er það
hversu aðhaldssöm peningastefiia Seðlabankans hefur verið
þrátt fyrir skýr merki um að spennan í hagkerfinu sé hjöðnuð."
Forgangsverkefni forsfjóra næstu tólf mánuðina? „Helstu for-
gangsverkefni snúa að aðhaldi í rekstri og að auka framleiðni."
Botni hagsveiflunnar náð? „Vonandi, en þó er það alls ekki
öruggt. Verðbólga hefur náðst niður sem er mjög jákvætt. En
ég hef áhyggjur af þróun hagvaxtar á næstu misserum og
hugsanlegs aukins atvinnuleysis. Mjög mikilvægt er að tjár-
festingar bæði hér innan lands og erlendis komist í eðlilegt
jafitvægi."
Hvað hefur einkennt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og telur
þú að það nái settum markmiðum? „Ymis markmið í rekstri
fyrirtækisins hafa náðst. En þó hefur þurft að endurskoða upp-
haflegar rekstraráætlanir vegna breyttra ytri aðstæðna, svo
sem styrkingar íslensku krónunnar sem hefur haft mjög nei-
kvæð áhrif á rekstur útflutningsfyrirtækja." SIl
Marel árið 2001:
27. stærsta fyrirtækið.
Uelta: 8,5 milljarðar.
Hagn. f. skatta: 341 milljón.
Eigið fé: 2,2 milljarðar.
„Ég hef áhyggjur af þróun hagvaxtar
og hugsanlegu auknu atvinnuleysi.“
Hörður Arnarson, forstjóri Marels.
105