Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 102
Amerísku áhrifin
Jólasiðir og stemning 1 Bretlandi er mjög ólík því sem gerist
hér á landi. Þar var ég gestkomandi um jól fyrir einhveijum
árum síðan hjá tengdaforeldrum og þar fóru aliir saman á
pöbb á aðfangadagskvöld, sem var nokkuð sem maður átti alls
ekki að venjast Eg get heldur ekki neitað því að maður var alveg
að deyja úr heimþrá þegar ég hringdi til foreldra minna þar sem
systkini minum voru saman komin og ailir að taka upp pakkana
efdr að hafa gætt sér á íslenska jólamatnumsegir Jóhanna
Waagfjörd, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga.
„En eins og aðfangadagskvöldið var ólíkt því sem maður á að
venjast hér heima var jóladagur með hátíðlegum blæ. Þá læddist
maður niður á náttfötunum um morguninn og opnaði pakkana
sína og svo var boðið upp á beikon, egg og annað sem er sígilt
á morgunverðarborði Breta. Eg hef einnig verið á jólunum úti í
Bandaríigunum, það var á þeim tfrna þegar ég bjó og starfaði í
Missouri sem er eitt miðríkjanna. Hvorki þar né annars staðar
sem ég þekki til er jafn mikið umstang eða hátíðleild yfir öllu eins
og hér gerist á aðfangadagskvöld,“ segir Jóhanna, sem segir að
hina sönnu jólastemmningu hafi hún fundið og skynjað í ranni
fjfilskyldu sinnar hér heima.
„I dag eru foreldramir búnir að fá frí frá jólaundirbúningnum
og nú komum við sama fjölskyldan á heimili einnar systranna
á aðfangadagskvöld. Allar höfum við systumar bæði búið og
starfað erlendis, sem aftur hefur áhrif á jólasiði okkar. Flestir era
held ég með hangikjöt á borðum á jóladag, en hjá okkur heíúr
hins vegar myndast sú hefð að vera með kalkún sem efalítið em
amerísku áhrifin.“[í]
Jóhanna Waagfjörd, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga.
Steingrímur. J. Sigfússon, alþingismaður.
ÚTíVIST UM JÓLIN:
Gengið sér til hita
Eftír steikur og munaðarlíf jólanna finnst mér góð tilbreyt-
ing að fara í hressandi gönguferð á til dæmis öðmm eða
þriðja degi jóla. Stundum hef ég tekið Esjuna, en upp á
brún hennar úr Kollafirðinum fer ég gjaman einu sinni í viku.
Það finnst mér frábær útívist Um jólaleytið getur verið gaman
að fara þama upp síðla dags þegar aðeins er farið að rökkva,
þá er ævintýri likast að horfa af Þverfellshomi yfir upplýsta
borgina," segir Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður.
A umliðnum ámm hefur Steingrfrnur talsvert stundað útivera
með mági sínum og þeir víða gengið. „Fyrir tveimur ámm
fómm við um jólin afskaplega skemmtilega gönguferð austur
á Hellisheiði. Gengum þá úr Hveradölum og þar inn á Hellis-
heiðina. Þræddum þar austuröxl Hengilsins og upp eftir fallegu
dalverpi sem þama er. A efstu brún þama blasti Þingvallavatnið
við okkur og niður í mót þræddum við leiðina að Nesjavöllum
og vomm komnir þangað um það þil þegar birtu var að bregða.
I aftanskfrnunni var ævintýralegt að horfa yfir ljósum prýdda
virkjunina og gufumekkina sem vom mjög tilkomumiklir og
þrútnir þama í kuldanum,“ segir Steingrímur sem telur senni-
legt að hann haldi í hefðina og fari í góða gönguferð einhvem
tíma nú um hátíðimar.
„Mér finnst ekki síðra að fara út að ganga í svoMum gaddi.
Það er alltaf notalegt að ganga sér til hita, sem yfirleitt tekst sé
gengið rösklega.“!H
102