Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 45
fræðingur að mennt og með MBA-próf frá Lundúnum, en hafði
á námsárum sínum í Háskóla íslands tekið þátt í starfi Vöku og
var formaður Heimdallar 1997 til 1999. Mugi hefur raunar alla
tíð og ekki síst eftir að hann varð aðstoðarmaður Davíðs verið
odeigur við að blanda sér í pólitíska umræðu. Ekki bara sem
málsvari húsbónda síns, heldur líka á eigin forsendum. Er þar
nærtækast að nefna Sunnudagsþáttinn á Skjá einum.
Illugi á þó fleiri strengi í hörpu sinni en pólitíkina eina.
Hann þykir góður píanisti og gaf nýlega út geisladisk með
leik sínum og þá hefur hann einnig gripið í hlutverk organista
við kirkjuna á Flateyri. Þangað vestur á hann tengsl meðal
annars í gegnum eiginkonu sína, Brynhildi Einarsdóttur,
Odds Kristjánssonar alþingismanns og Sigrúnar Gerðu Gísla-
dóttur. Kunnugir telja líklegt að fyrr eða síðar muni Illugi
hasla sér völl í stjómmálum sem beinn þátttakandi; til þess
standi áhugi hans og atgervi bjóði upp á slíkt.
Einn er sá aðstoðarmaður sem hér er ónefndur og fylgt
hefur ráðherranum lengur en allir aðrir, Jón Ámason. Fáir
þekkja sjálfsagt nafnið, en þetta er maðurinn sem hefur verið
hílstjóri Davíðs alveg síðan hann varð borgarstjóri árið 1982.
hegar Davíð fór í forsætisráðuneytið 1991 fylgdi Jón með og
aftur nú í haust þegar húsbóndi hans varð utanríkisráðherra.
Jón er reyndar kominn á eftirlaunaaldur, en grípur í bílstjóra-
starfið þó alltaf annað veifið þegar þörf krefur.
ÖGfgmál bolludagsins En lítum ögn betur á feril þeirra Ijög-
urra aðstoðarmanna sem nefndir em hér að framan. Athygli
vekur að þrír þeir fyrstnefndu, þeir Hreinn, Eyjólfur og Orri,
hafa allir haslað sér völl í viðskiptalífinu. Hreinn var formaður
einkavæðingarnefndar allt þar til á útmánuðum árið 2002. Þá
hafði komið til ýfinga milli Hreins og forsætisráðherra, meðal
annars vegna gagnrýni hins fýrmefnda á sölu Símans sem
mistókst illa. Sömuleiðis hafði staða Hreins sem stjómarfor-
manns Baugs hér mikið að segja, en gagnrýni Davíðs á það
fýrirtæki hófst raunar talsvert fyrr.
„Hann hafði þá skoðun að fýrirtækið stýrði álagningu á
matvöru í gegnum þessar keðjur og væri þar með að stuðla
að hærra matvælaverði og þar með hærri verðbólgu,“ sagði
Hreinn Loftsson í viðtali við DV fýrr á þessu ári. Hann segir
margvíslega árekstra fleiri hafa komið til.
Steininn tók úr með bolludagsmálinu svonefnda 2003. Þá
hafði Fréttablaðið greint frá því að á fundi stjómar Baugs hefði
verið fært til bókar að óttast mætti áhlaup forsætisráðherra
vegna andstöðu hans við fýrirtækið. Fréttin birtist á laugar-
degi en næsta mánudag, bolludag, kom Davíð Oddsson fram
á Morgunvakt Útvarpsins og lýsti þvi yfir að á fundi sínum
með Hreini Loftssyni hefði Hreinn nefht þá hugmynd að múta
mætti Davíð með 300 milljónum króna til að hann léti af and-
Orri er framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Símans og gegnir nú, í krafti þess,
stjórnarformennsku í Islenska
sjónvarpsfélaginu sem rekur Skjá einn.
stöðu sinni við fýrirtækið. Viðbrögðin við þessum ummælum
forsætisráðherra vom líkust sprengju - og ekki laust við að
bergmál hennar heyrist enn einhvers staðar í fjarska.
Splundra dreifðri eignaraðild Svo virðist með öðmm orðum
að Davíð gefi mönnum engin grið þó þeir hafi verið aðstoðar-
menn hans. Það fékk Eyjólfur Sveinsson líka að reyna
síðsumars 1999 þegar hann í félagi við aðra í Orca-hópnum,
þájón Asgeir Jóhannesson, Þorstein Má Baldvinsson og Jón
Olafsson í Skífunni, keypti af sparisjóðunum og Kaupþingi
22,5% í Fjárfestingabanka atvinnulífsins. Kaupunum var fjarri
því tekið fagnandi af forsætisráðherra, sem sagði þau stuðla
að því að markmið ríkisstjómarinnar um dreifða eignaraðild
við sölu ríkisbankanna fæm út um þúfur.
„Þetta getur haft þau áhrif að þau hlutabréf, sem ríkið
á eftir óseld í viðkomandi banka, verði miklu lægri,“ sagði
Davíð og taldi sérstakt átak hafa verið gert til að splundra
stefnu ríkisstjómarinnar um dreifða eignaraðild. Ríkisstjómin
þyrfti því að athuga sinn gang og ef til vill tryggja áðumefnd
markmið um lagasetningu, sem þó var aldrei gert.
En þó vinslit yrðu með Hreini Loftssyni og Davíð Odds-
syni vegna áðumefndra mála lagði hann þessum fyrrnm hús-
bónda sína um margt gott orð í DV-viðtalinu fýrr á þessu ári.
Til að mynda hefði Davíð þann góða kost að . .gefa mönnum
sem hann treystir frið til að vinna að sínum verkefnum. Á
meðan þeir gera engar bommertur fá þeir að vinna að sínum
málum án þess að hann andi ofan í hálsmál þeirra," segir
Hreinn, en sér þykir miður að gagmýnin umræða sé nánast
ekki leyfð í Sjálfstæðisflokknum. Valdinu sé beitt með þeim
hætti að sér blöskri.
Millivegur er ekki til En rétt eins og verða vill með sterka
persónuleika og mikla leiðtoga verður aldrei nein lognmolla
í afstöðu manna til þeirra. Millivegur er ekki til. I bókinni
I hlutverki leiðtogans, sem Ásdís Halla Bragadóttir skráði,
þvertekur Davíð hins vegar fýrir þetta. Kveðst vel gefa unað
gagnrýni. Hann kveðst leggja mikið upp úr því að samstarfs-
menn sínir séu fljótir að greina meginatriði hvers máls og
ekki þurfi að stafa ofan í þá hvem hlut. Að þeir hafi innbyggða
þá flöður sem segi þeim hvað megi og hvað ekki. Húmor sé
einnig mikilvægur, ef hann sé mönnum sem lokuð bók verði
allt svo þungt og erfitt.
Ekki verður hér lagður dómur á persónuleika þeirra manna
sem gegnt hafa starfi aðstoðarmanna Davíðs Oddssonar eða
hvort þeir hafi haft þá eiginleika sem hann sjálfur telur svo mikil-
væga í samstarfi. Þeir em þó hver öðmm ólíkir - enda hver úr
sinni áttinni, sem aftur minnir á að Davíð sjálfúr er býsna marg-
slunginn persónuleiki, rétt eins og listamanna er hátturHD
Illugi hefur alla tíð og ekki síst eftir
að hann varð aðstoðarmaður Davíðs
verið ódeigur við að blanda sér í
pólitíska umræðu.
45