Frjáls verslun - 01.10.2004, Blaðsíða 8
Starfsfólk Mannafls - Liðsauka: Frá vinstri: Davíð Freyr Oddsson, Nathalía D. Halldórsdóttir, Helga Jónsdóttir, Elín Anna
Guðjónsdóttir, Auður Bjarnadóttir, María Jóhannsdóttir, Ragnheiður S. Dagsdóttir, Sigrún Ýr Árnadóttir, Herdís Rán Magnúsdóttir
og Hilmar G. Hjaltason. Á myndina vantar Gunnar Haugen, Ægi Má Þórisson og Evu Hrund Einarsdóttur.
IMG Mannafl - Liðsauki
STÆRSTARÁÐNINGARSTOFA LANDSINS
Starfsemi ráðningastofanna Mannafls og Liðsauka uar sameinuð í
nóvember síðastliðnum. Ráðningarskrifstofan er í eigu IMG, sem
er stærsta rannsóknar- og ráðgjafarfyrirtæki landsins.
Mannafl var stofnað árið 2000 við sameiningu ráðningarstofa Gallup
(1997) og Ráðgarðs (1988). Liðsauki var stofnaður árið 1982 og
varð hluti af IMG árið 2000. Fyrirtækið er í forystu í ráðgjöf vegna
ráðninga starfsfólks í almenn og sérhæfð skrifstofustörf, ráðninga
sérfræðinga, millistjórnenda og í stjórnunarstöður, en einnig er
í boði ráðgjöf vegna uppsagna starfsfólks. Mannafl - Liðsauki er
einnig með útibú á Akureyri. Auður Bjarnadóttir, ráðningarstjóri
Mannafls - Liðsauka, og Gunnar Haugen, forstöðumaður ráðninga-
stofa IMG, voru spurð um starfsemi Mannafls - Liðsauka.
Víötæk þekking og reynsla af íslensku atuinnulífi
Þau Auður Bjarnadóttir og Gunnar Haugen segja að rétt val á
starfsmönnum sé einn mikilvægasti þátturinn í rekstri fyrirtækja
og ræður oft úrslitum um velgengni þeirra. „Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu og reynslu af íslensku atvinnulífi og hafa góð
tengsl við fjölda fólks sem hefur áhuga á að skipta um starfsvett-
vang bjóðist rétta tækifærið. Eru ráðgjafarnir með mikla reynslu að
baki, samanlagt um 60 ár.
Við notum fagleg og stöðluð vinnubrögð við að vinna úr
umsóknum, en það eykur mjög forspárgildi ráðninga, og er unnið
samkvæmt þróuðum og viðurkenndum matsaðferðum sem eru
hluti af ítarlegu ráðningarferli. Notuð eru hegðunartengd viðtöl,
en ráðningarstofur IMG hafa verið frumkvöðlar í prófum og mark-
vissum hæfnismælingum á umsækjendum."
Ráðgjafar Mannafls - Liðsauka nota persónuleikapróf frá alþjóð-
lega prófafyrirtækinu SHL, sem er eitt fremsta fyrirtæki í heim-
inum í dag á sínu sviði. OPQ32 er persónuleikapróf sem metur 32
persónuleika eiginleika og hentar fyrir stjórnendur og sérfræðinga.
Einnig nota ráðgjafarnir CCSQ, persónuleikapróf sem hentar fyrir
fólk í störfum sem krefjast mikilla samskipta við víðskiptavini, svo
sem þjónustufulltrúa, móttökuritara, sölumenn, starfsfólk í þjón-
ustuverum og viðskiptatengslum. CCSQ prófið metur 16 eiginleika
sem eru mikilvægir í starfi.
„Prófin eru bæði notuð við ráðningar og starfsþróun. Pau henta vel
til að meta hvaða umsækjandi hefur þá eiginleika sem þarf til að ná
„Ráðgjafar okkar eru mjög meðvitaðir um þær
gildrur sem hægt er að falla í á ráðningarferl-
inu og hafa tekið upp vinnureglur og viðeigandi
próf til að ná besta mögulegum árangri.“
8